Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Kjartan Kjartansson skrifar 12. október 2026 08:49 Finnskur lögreglubíll. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/EPA Dómstóll í Finnlandi dæmdi karlmann á níræðisaldri til þess að greiða á þriðja hundrað þúsund króna í sekt fyrir að raska gröfum. Maðurinn og bróðir hans geymdu lík foreldra sinna í frysti í rúm þrjátíu ár.
Líkin geymdu bræðurnir í frystikistum í skúr í Turku í suðvestanverðu Finnlandi. Foreldrarnir létust af náttúrulegum orsökum um miðjan tíunda áratuginn. Þegar lögregla finn líkin var slökkt á öðrum frystum og hafði líklega verið lengi. Bræðurnir héldu því fram að foreldar þeirra hefðu óskað eftir því að lík þeirra yrðu fryst. Dómstóllinn taldi það ekki duga til þess að sýkna þá þar sem þeir hefðu brotið lög um friðhelgi grafa með því að fela ógrafin lík. Eldri bróðirinn, sem er 81 árs gamall menntaður læknir, er sagður hafa sótt líkin árið 1995, annað þeirra á sjúkrahús og hitt á meinafræðideild Háskólans í Turku, að því er segir í frétt finnska ríkisútvarpsins. Líkin fundust árið 2024 í frystikistunum í skúr við húsnæði fyrirtækis sem eldri bróðirinn átti og var sagt bjóða upp á útfararþjónustu. Lögregla gerði leit þar eftir að eldri bróðirinn var staðinn að því að grafa upp fjölskylduleiði. Dómstóllinn gerði eldri bróðurnum að greiða tvö þúsund evra sekt, jafnvirði rúmra 274 þúsund íslenskra króna. Yngri bróðirinn var sektaður um 640 evrur, jafnvirði tæpra 88 þúsund íslenskra króna.
Finnland Erlend sakamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira