Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar 12. október 2026 13:30 Ólíkar leiðir að sameiginlegu markmiði Þegar kjarasamningar eru í höfn getur myndast togstreita um það hver hafi náð árangri, hvaða aðferð hafi skilað mestum árangri og hver eigi að njóta viðurkenningar fyrir vinnuna. Þegar umræðan færist frá efnislegum ágreiningi yfir í ásakanir og tortryggni er hætta á að athyglin beinist frá hagsmunum félagsfólks. LÍV, VR, fagfélögin annars vegar og hins vegar Efling , Samiðn/Byggiðn og Starfsgreinasamband Íslands hafa unnið að kjarasamningum með ólíkum hætti er hægt að meta árangur hvers hóps á eigin forsendum. Samvinna krefst ekki þess að allir séu sammála um allt, heldur þess að ágreiningurinn hindri ekki sameiginlega hagsmunagæslu. Fjölmiðlaumræðan færist frá árangri yfir í persónulegt níð. Fjölmiðlar fjalla eðlilega um ágreining í verkalýðshreyfingunni, enda getur hann haft áhrif á launafólk og kjarasamninga. Þarna er mikilvægt að halda þremur sjónarmiðum til haga: Gagnsæi: Forystufólk á að geta gert grein fyrir ákvörðunum sínum og rökstutt niðurstöður. Ábyrg gagnrýni: Það á að vera hægt að gagnrýna samninga og forystu án þess að gagnrýnin breytist í persónulegt níð. Viðurkenning á vinnu annarra: Árangur í kjarabaráttu verður sjaldnast til fyrir tilstilli eins einstaklings eða eins félags. Þar kemur að mörgu fólki, sérfræðingum, samninganefndum og trúnaðarmönnum. Ef opinbera umræðan snýst fyrst og fremst um hver hafi haft betur í átökum er hætt við að minni athygli verði beint að því sem raunverulega skiptir launafólk máli: kaupmætti, launaþróun, starfsöryggi og réttindum. Ásakanir um að „leikrit“ sé í gangi? Ásökun um að leikrit sé í gangi er eingöngu gert til að daga úr trúverðugleika og engum til gagns og vísast það því til föðurhúsanna. Því er rétt að greina á milli þess að: vera ósammála samningsaðferð eða niðurstöðu; efast um hvort samningsferlið hafi verið nægilega gagnsætt; halda því fram að samningsferlið hafi verið sviðsett eða óheiðarlegt, sem er óvægið og engum til framdráttar. Sagan endurtekur sig Árið 2022 sagði Drífa Snædal af sér sem forseti ASÍ. Í yfirlýsingu sinni 10. ágúst það ár vísaði hún til erfiðra samskipta við kjörna fulltrúa, blokkamyndunar og innbyrðis átaka sem hefðu dregið úr vinnugleði og baráttuanda. Hún gagnrýndi einnig samskipti innan hreyfingarinnar og taldi þau ekki þjóna hagsmunum félagsfólks. Sagan endurtekur sig og sömu einstaklingar eiga hlut að máli. Þegar sambærileg mynstur koma aftur upp þarf að skoða hvort innri stjórnskipan, samskiptavenjur og lausn ágreinings séu nægilega góðar til að tryggja að ólík sjónarmið geti átt sér stað án þess að samstarfið lamist. Félagslegt ofbeldi og áhrif þess á starfsemi hreyfingarinnar Með félagslegu ofbeldi er átt við ítrekaða niðurlægingu, útilokun, ógnandi framkomu eða persónulegar árásir í samskiptum innan hreyfingarinnar, geta slík vinnubrögð haft alvarlegar afleiðingar. Mögulegar afleiðingar eru meðal annars: Starfsfólk og kjörnir fulltrúar draga sig í hlé frá umræðum og samstarfi. Fólk veigrar sér við að setja fram gagnrýnin sjónarmið eða óvinsælar tillögur. Traust milli félaga og stofnana veikist. Tími og orka fara í að verja einstaklinga og leysa innbyrðis deilur í stað þess að sinna verkefnum félagsins. Félagsmenn upplifa að hagsmunir þeirra fái ekki nægilega athygli. Hvernig er hægt að bæta stöðuna? Setja skýr viðmið um samskipti Gera þarf greinarmun á málefnalegri gagnrýni og persónulegum árásum. Viðmið þurfa að gilda jafnt um alla, óháð stærð félags, stöðu eða áhrifum formanns. Þegar deilur koma upp þurfa að vera trúverðugar leiðir til að ræða þær, leita lausna innan hreyfingarinnar. Auka sýnileika vinnunnar sem fer fram í félögunum Samninganefndir, starfsfólk, sérfræðingar og trúnaðarmenn eru stór þáttur í starfi félaganna og þeirra framlag er grunnur af ákvörðunum félaganna varðandi kaup og kjör. Umræða um árangur á að byggjast á niðurstöðum og ávinningi fyrir félagsmenn. Skoða þarf launaþróun, kaupmátt, réttindi, atvinnuöryggi og aðra þætti kjarasamninga. Þannig færist umræðan frá persónulegum ágreiningi yfir í mælanlegan ávinning. Verkalýðshreyfingin þarf ekki að vera einhuga um allar leiðir til að vera sterk. Hún þarf hins vegar að geta tekist á um ólík sjónarmið án þess að traust, virðing og samstarf glatist. Árangur eins hóps þarf ekki að vera ósigur annars. Það þarf þó að meta raunverulegar niðurstöður samninganna áður en fullyrt er um hver hafi náð hvaða árangri. Sterk verkalýðshreyfing er ekki sú hreyfing þar sem allir fylgja einum formanni. Hún er sú hreyfing þar sem ólík félög geta unnið saman að sameiginlegum hagsmunum launafólks, jafnvel þótt þau séu ósammála um leiðina. Og að lokum: Félagsmenn eiga rétt á að sjá forystuna verja tíma sínum og kröftum í þeirra þágu. Innri ágreiningur verður ekki alltaf umflúinn, en hann má ekki verða aðalverkefni hreyfingarinnar. Höfundur er formaður Bárunnar, stéttarfélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Vinnumarkaður Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun