Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 12. október 2026 13:45 Það er eðlilegt að sum gjöld ríkis og sveitarfélaga breytist milli ára. Kostnaður við þjónustu hækkar og hið opinbera þarf reglulega að endurskoða tekjuforsendur sínar. En hækkanir verða að vera hóflegar og samræmdar. Þær mega ekki leggjast hver ofan á aðra án þess að stjórnvöld meti hvað þær þýða samanlagt fyrir heimilin. Þess vegna spurði ég félags- og húsnæðismálaráðherra á Alþingi 7. október sl. hvort ráðherra eða ráðuneytið hefði lagt heildstætt mat á áhrif fyrirhugaðra skatta- og gjaldahækkana á fjárhag ólíkra fjölskyldna. Þeirri spurningu þarf að svara skýrt áður en fjárlagafrumvarpið verður að lögum. Heimilin greiða heildarreikninginn Í fjárlagafrumvarpinu eru nefnilega ýmsar breytingar sem snerta fjárhag heimilanna. Þar má nefna hækkanir krónutölugjalda og kílómetragjalds, niðurfellingu raunhækkunar skattleysismarka og óbreyttar fjárhæðir barnabóta. Við bætist fyrirhugað afnám vaxtabóta. Boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinna eru skref í rétta átt, en aðeins skref. Hver breyting kann að virðast viðráðanleg ein og sér. En fjölskyldur greiða þær allar úr sama veskinu. Hækkun eins gjalds kemur til viðbótar við aðrar hækkanir og minni stuðning. Einhver verður því að bera ábyrgð á heildarmyndinni. Við í Framsókn höfum metið áhrif frumvarpsins á ólíkar fjölskyldur. Samkvæmt þeim útreikningum geta áhrifin á hjón með tvö börn og húsnæðislán numið um 200 þúsund til yfir 300 þúsund krónum á ári þegar áætluð óbein áhrif á húsnæðislán eru talin með. Niðurstaðan fer eftir tekjum, lánasamsetningu og öðrum aðstæðum. Þetta eru sviðsmyndir sem þarf að bera saman við mat stjórnvalda og uppfæra þegar endanlegar breytingar á frumvarpinu liggja fyrir. Þær sýna hvers vegna nauðsynlegt er að reikna dæmið til enda. Búsetan skiptir máli Heildarmat þarf einnig að taka mið af búsetu. Tvær fjölskyldur með sömu tekjur og jafn mörg börn geta haft mjög ólíkt svigrúm eftir því hvað vegalengdir eru langar til vinnu, í skóla og að sækja þjónustu. Þar sem einkabíllinn er nauðsyn og aðrir ferðamátar óraunsæir verður kostnaður við akstur ekki auðveldlega skorinn niður. Fólk getur ekki einfaldlega stytt leiðina til vinnu eða fært heilbrigðisþjónustuna nær heimilinu. Þess vegna þarf að skoða breytingar á akstursgjöldum út frá raunverulegum aðstæðum fjölskyldna. Meðaltal segir ekki alla söguna. Þetta snýst líka um framþróun á landsbyggðinni. Ef við viljum efla matvælaframleiðslu og fjölga atvinnutækifærum verðum við að huga að fjárhag þeirra fjölskyldna sem bera uppi byggðirnar. Landbúnaður, sjávarútvegur og matvælavinnsla þurfa fólk sem sér framtíð í að búa, starfa og ala upp börn í viðkomandi samfélögum. Áform um atvinnuuppbyggingu verða því að endurspeglast í ákvörðunum um skatta, gjöld og þjónustu. Það þarf að vera fjárhagslega raunhæft að setjast að þar sem tækifærin eru. Kjarabætur þurfa að skila sér Í sumum heimilisdæmum okkar þyrfti um tveggja til fjögurra prósenta launahækkun, umfram almennar launahækkanir næsta árs, til að mæta áætlaðri viðbótarbyrði. Þá fer hluti ávinnings af kjarabótum í að standa undir ákvörðunum hins opinbera um hækkanir gjalda eingöngu. Þetta ætti að vera sérstakt áhyggjuefni fyrir ráðherra félags- og vinnumarkaðsmála. Tekjulægri barnafjölskyldur hafa lítið svigrúm til að mæta auknum útgjöldum. Sama krónutala vegur þyngra hjá þeim. Boðaðar breytingar til að létta byrðar af heimilunum eru fagnaðarefni. En fjárhæðirnar þurfa að liggja fyrir. Ef barnabætur hækka þarf jafnframt að skýra hvort skerðingarmörkin fylgi með og hver ávinningurinn verður þegar aðrar breytingar eru teknar með í reikninginn. Heildarmat áður en ákvörðun er tekin Þetta er kjarninn í Heimilissátt Framsóknar: að meta skatta, gjöld og bætur saman út frá fjárhag ólíkra fjölskyldna og samræma ákvarðanir hins opinbera. Ég kalla eftir að ríkisstjórnin birti slíkt mat áður en fjárlög verða samþykkt. Þar þarf að sýna áhrif eftir tekjum, fjölskyldugerð og búsetu og greina á milli beinna áhrifa og áætlaðra óbeinna áhrifa. Ábyrg ríkisfjármál og öflugar byggðir kalla á heildarsýn. Við verðum að vita hvað ákvarðanir okkar kosta fólkið sem á að búa, starfa og byggja upp starfsemi fyrirtækja um allt land. Höfundur er bóndi og alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Ingi Pétursson Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun