Dómurinn segi ekki alla söguna Freyja Þórisdóttir skrifar 12. október 2026 18:15 Sverrir Einar Eiríksson rak á tímabili staðinn B, sem áður hét Bankastræti Club og þar áður B5. Vísir/Vilhelm/Stöð2 Sverrir Einar Eiríksson, skemmtistaða- og áfengisverslunareigandi, segir mikilvægt að ábyrgð á beitingu opinbers valds sé tekin alvarlega en hann var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot, meðal annars í rekstri skemmtistaðarins B í Bankastræti. Þá telur hann aðgerðir tiltekinna starfsmanna lögreglu og Skattsins hafa valdið sér og fyrirtækjunum sínum verulegu tjóni. „
Ég tel að aðgerðir yfirvalda hafi lamað rekstur þeirra fyrirtækja sem um ræðir. Nú er mér gert að sæta þungum viðurlögum vegna vanskila sem ég tel að þessar sömu aðgerðir hafi haft bein áhrif á,“ svona hefst færsla sem hann birti á Facebook-síðu sinni. Það sé að hans mati kjarni málsins. Valdið verulegu tjóni Líkt og fyrr segir var Sverrir í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot en hann þarf að afplána þrjá mánuði af fangelsisrefsingunni og greiða meira en hundrað milljónir í sekt. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir skattsvik en árið 2022 hlaut hann tíu mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að skila ekki opinberum gjöldum af rekstri þriggja einkahlutafélaga. Í færslunni segir Sverrir aðgerðir tiltekinna starfsmanna lögreglu og Skattsins hafa valdið sér og fyrirtækjunum verulegu tjóni, skert tekjuöflun þeirra og haft afgerandi áhrif á möguleika félaganna til að standa skil á vörslusköttum sem hafi komið til greiðslu í kjölfarið. „Í dóminum er fjallað um þessa atburðarás, en að mínu mati eru ekki öll kurl komin til grafar. Ég tel aðgerðirnar ekki standast skoðun og að afleiðingar þeirra hafi ekki fengið nægilegt vægi við ákvörðun viðurlaga,“ skrifar hann og bætir við „ég kvartaði yfir aðgerðunum meðan þær voru að eiga sér stað. Þetta er ekki eftiráskýring sem varð til eftir dóminn.“ Segi ekki alla söguna Hann óski áfram eftir því að aðgerðirnar verði rannsakaðar og upplýst hver tók ákvarðanirnar, á hvaða forsendum og hvaða áhrif þær höfðu á reksturinn. „Ég bendi jafnframt á málavaxtalýsingu dómsins og þá vörn sem þar er rakin,“ skrifar hann í færslunni. Ábyrgð á skattskilum sé tekin alvarlega. Ábyrgð á beitingu opinbers valds verði líka að taka alvarlega. Færsluna má sjá hér fyrir neðan í heild sinni. Sverrir Einar hefur meðal annars rekið Nýju vínbúðina, netverslun með áfengi. Þá hefur hann komið nálægt viðskiptum með gull, rekið starfsmannaleigu og veitinga- og gistihús.
Skattar, tollar og gjöld Dómsmál Samfélagsmiðlar Næturlíf Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira