60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar 13. október 2026 07:31 Nú styttist í næstu aðgerðir hjá meirihlutanum hjá Reykjavíkurborg miðað við orð borgarstjóra. Þar eru störf fólks líklega undir eins og í síðustu aðgerðum en meirihlutinn hefur lagt mikla áherslu á launakostnað og nauðsyn þess að fækka starfsfólki. Það er einn stór kostnaðarliður sem hefur fengið furðulega litla athygli í þessari hagræðingarumræðu. Það er aðkeypt þjónusta. Samkvæmt greiningu sem ég hef unnið upp úr ársreikningum Reykjavíkurborgar nam kostnaður vegna aðkeyptrar þjónustu, að frádregnum innri viðskiptum, rúmlega 60 milljörðum króna árið 2025. Þess vegna finnst mér sérstakt hversu lítið hefur verið rætt um þennan kostnaðarlið þegar borgin stendur frammi fyrir umfangsmiklum aðhaldsaðgerðum. Hversu há verður talan árið 2026? Í síðustu viku sat ég fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna. Þar var farið yfir mörg áhugaverð og mikilvæg málefni sem snúa að fjármálum og rekstri sveitarfélaga. Það sem vakti hins vegar athygli mína var hversu lítið var fjallað um aðkeypta þjónustu og þann kostnað sem henni fylgir. Mér finnst þetta svolítið eins og að stíga á vigtina og horfa eingöngu á líkamsþyngdina. Hún segir okkur vissulega eitthvað um heilsufarið en langt frá því alla söguna. Til þess að meta heilsuna þurfum við að skoða heildarmyndina. Það sama á við um rekstur sveitarfélaga. Launakostnaður er stór og mikilvægur hluti rekstrarins en hann er ekki eini kostnaðurinn. Ef við ætlum að taka upplýstar ákvarðanir um hagræðingu verðum við að skoða hvert peningarnir fara og hvað við fáum fyrir þá. Á ráðstefnunni sagði Almar Guðmundsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, að „fólkið vill hafa þjónustuna nálægt sér“. Einmitt, ég tek heilshugar undir þessi orð hans, fólk vill hafa þjónustuna nálægt sér. En þá verðum við líka að ræða hvað gerist þegar verkefni eru færð frá starfsfólki sveitarfélaganna til utanaðkomandi þjónustuaðila. Útvistun getur haft áhrif á nálægð þjónustunnar, þekkingu innan vinnustaðanna og möguleika sveitarfélagsins til að hafa beina stjórn á framkvæmd hennar. Það er ekki ókeypis að útvista verkefnum. Kostnaðurinn hverfur ekki þótt starfsmaðurinn hverfi af launaskrá borgarinnar. Við þurfum líka að spyrja hvað verður um þekkinguna sem byggist upp innan borgarinnar þegar verkefni eru færð annað og hvað kostar að kaupa þá þekkingu aftur þegar hennar er þörf? Áður en meirihlutinn í Reykjavíkurborg fer af stað með frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar tel ég nauðsynlegt að farið verði yfir umfang og þróun aðkeyptrar þjónustu. Á síðustu fimm árum hefur Reykjavíkurborg til dæmis varið um 1.450 milljónum króna í ráðgjöf, skýrslur og rannsóknir samkvæmt opinberum gögnum. Það er einungis einn af mörgum kostnaðarliðum sem ástæða er til að skoða betur. Það getur ekki verið þannig að við rýnum í hvern einasta launaseðil en látum milljarðana sem fara í aðkeypta þjónustu liggja milli hluta. Ef við ætlum að tala af alvöru um ábyrgan rekstur Reykjavíkurborgar verðum við að þora að skoða alla myndina. Höfundur er formaður Sameykis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kári Sigurðsson Kjaramál Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun