Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar 15. október 2026 13:01 17. október er alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt, sem Sameinuðu þjóðirnar stofnuðu til árið 1987, til að vekja athygli á fátækt og réttindum fólks sem búa við örbirgð og félagslega einangrun.Nýjustu birtu tölur Hagstofu Íslands um lágtekjur sýna að 9% landsmanna voru undir lágtekjumörkum árið 2023, eða um 35 þúsund manns. Þótt slíkar tölur mæli ekki fátækt í öllum sínum myndum sýna þær að stór hópur fólks býr við mjög takmarkað fjárhagslegt svigrúm. Íslenskt samfélag státar af ríkidæmi og velferð, en á bak við þá mynd leynist önnur staðreynd. Samkvæmt rannsókn Vörðu fyrir ÖBÍ réttindasamtök frá árinu 2023 bjó rúmlega þriðjungur svarenda sem þáðu örorku- eða endurhæfingargreiðslur við efnislegan skort eða verulegan efnislegan skort. Nær einn af hverjum fimm bjó við verulegan skort og þrír af hverjum fjórum áttu erfitt með að ná endum saman. Þetta eru ekki aðeins tölur á blaði. Þetta er fólk sem þarf að velja á milli nauðsynja, neita sér um eðlilega þátttöku í samfélaginu og glíma jafnvel við skömmina sem fylgir því að eiga ekki fyrir daglegri framfærslu. Í landskönnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2025 sögðust 17% barna í 4. bekk og 13% barna í 5. bekk hafa farið „oft“ eða „stundum“ svöng í rúmið síðustu sjö daga vegna þess að ekki var til matur heima. Hjá eldri grunnskólabörnum var spurt aðeins öðruvísi. Árið 2025 sögðust 11% í 6. bekk, 9% í 7. bekk, 6% í 8. bekk og 5% í bæði 9. og 10. bekk hafa sleppt því að borða að minnsta kosti um það bil vikulega vegna þess að ekki voru nægir peningar til að kaupa mat. Þegar rætt er um fátækt á Íslandi verður ekki litið fram hjá stöðu öryrkja. Margir hafa takmarkaða möguleika á að bæta tekjur sínar með aukinni atvinnuþátttöku og eru því háðir því að almannatryggingakerfið tryggi þeim viðunandi framfærslu. Þegar stór hluti tekna fer í húsnæði, mat, lyf og aðrar nauðsynjar verður lítið eftir til að taka þátt í samfélaginu á sömu forsendum og aðrir. Fátækt snýst nefnilega ekki eingöngu um það hvort matur sé á borðinu. Hún snýst líka um frelsi, þátttöku og reisn. Hún birtist þegar fólk frestar tannlæknaheimsókn, sleppir því að hitta vini vegna kostnaðar, getur ekki veitt börnum sínum sömu tækifæri og jafnaldrar þeirra fá eða þarf að kvíða hverjum óvæntum reikningi. Ofan á fjárhagsáhyggjurnar getur síðan lagst önnur byrði. Skömmin. Í samfélagi þar sem vinna og sjálfsbjargarviðleitni eru sterklega tengd hugmyndum okkar um sjálfstæði og verðmæti einstaklingsins getur verið erfitt að ná ekki endum saman. Fyrir öryrkja getur þessi tilfinning orðið enn þyngri. Fólk getur upplifað tvöfaldan stimpil, annars vegar vegna þess að það er utan hins hefðbundna vinnumarkaðar og hins vegar vegna þess að það hefur lítið á milli handanna. Skömmin getur orðið til þess að fátæktin verði ósýnileg. Fólk afþakkar boð, finnur afsakanir fyrir því að taka ekki þátt og segir jafnvel sínum nánustu ekki frá því hversu erfið staðan er. Þannig verður fátækt ekki aðeins efnahagslegt ástand heldur getur hún einnig leitt til félagslegrar einangrunar og þess að fólk upplifi sig á jaðri samfélagsins. Dagur fátækra ætti því ekki aðeins að vera dagur talna og tölfræði. Hann ætti að minna okkur á fólkið á bak við tölurnar. Að búa við örorku eða fátækt segir ekkert um verðmæti manneskju. Samfélagslegt öryggiskerfi á ekki aðeins að tryggja að fólk lifi af frá einum mánuði til annars. Markmiðið hlýtur einnig að vera að fólk geti lifað með reisn og tekið þátt í samfélaginu. Í tilefni dagsins er því ástæða til að spyrja ekki aðeins hversu margir séu undir lágtekjumörkum, heldur líka hvernig lífið er þegar hver króna skiptir máli. Og kannski mikilvægast. Hvernig getum við byggt samfélag þar sem enginn þarf að skammast sín fyrir að þurfa aðstoð? Höfundur situr í Kjarahóp ÖBÍ réttindasamtaka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun