Handbolti

Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga

Sindri Sverrisson skrifar
Einar Bragi Aðalsteinsson er algjör lykilmaður í liði Kristianstad.
Einar Bragi Aðalsteinsson er algjör lykilmaður í liði Kristianstad. EPA/Sandor Ujvari

Íslendingaliðið Kristianstad verður að sætta sig við að fara niður í Evrópudeildina í handbolta eftir 39-30 tap gegn GOG í Danmörku í dag, í D-riðli Meistaradeildarinnar. Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Evrópumeistaraliði Barcelona eru aftur á móti í toppmálum.

Einar Bragi Aðalsteinsson gerði sitt besta til þess að halda lífi í vonum Kristianstad um að komast lengra í Meistaradeildinni. Hann skoraði sjö mörk í kvöld en það dugði skammt fyrir sænska liðið í 39-30 tapi gegn GOG.

Ólafur Guðmundsson, Baldur Fritz Bjarnason og Andri Erlingsson voru einnig í leikmannahópi Kristianstad í kvöld en ekki á meðal markaskorara.

Kristianstad er nú án stiga eftir fjóra leiki og getur því ekki lengur náð öðru tveggja efstu sætanna í D-riðli, þar sem GOG er með sex stig, Sporting Lissabon fimm og Pick Szeged þrjú (Sporting og Szeged mætast í kvöld). Tvö neðstu liðin fara í Evrópudeildina að riðlakeppninni lokinni.

Barcelona vann 36-22 stórsigur gegn Dinamo Búkarest í Rúmeníu. Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson er kominn af stað eftir veikindi en spilaði ekkert í leiknum. Sergey Hernández stóð í markinu og varði 16 af 38 skotum eða rúmlega 42%.

Barcelona hefur unnið alla þrjá leiki sína til þessa en Dinamo Búkarest tapað sínum þremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×