Formúla 1

Tætir í sig „sið­ferðis­lega órétt­lætan­lega“ á­kvörðun For­múlu 1

Aron Guðmundsson skrifar
Thérése Kayikwamba Wagner, utanríkisráðherra Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó, er ekki sátt með ákvörðun Formúlu 1 að halda til Rúanda
Thérése Kayikwamba Wagner, utanríkisráðherra Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó, er ekki sátt með ákvörðun Formúlu 1 að halda til Rúanda Vísir/Getty

Utanríkisráðherra Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó segir ákvörðun Formúlu 1 að koma á laggirnar keppni í mótaröðinni í Rúanda siðferðislega óréttlætanlega. 

Fyrr í vikunni var greint frá því að Formúla 1 myndi snúa aftur með keppnishelgi í Afríku, í fyrsta sinn frá árinu 1993, og var skrifað undir tíu ára samning við yfirvöld í Rúanda þess efnis. 

Búist er við því að fyrsta keppnin, á nýrri braut, fari fram í Rúanda upp úr árinu 2030 en Thérése Kayikwamba Wagner, utanríkisráðherra Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó er allt annað en sátt með það. 

Sameinuðu þjóðirnar hafa sakað stjórnvöld í Rúanda um að styðja við bakið á M23 uppreisnarhópnum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Amensty International segir hópinn hafa framið „hrottafengin mannréttindarbrot“ og greitt götu smygls á gulli og kóltán málmgrýtissteinum til Rúanda. Stjórnvöld í Rúanda hafa þvertekið fyrir þær ásakanir.

Keppnishelgi Formúlu 1 í Rúanda hefur verið í bígerð í nokkur ár og segist Thérése utanríkisráðherra Kongó ítrekað hafa komið á framfæri mótmælum við Stefano Domenicali, framkvæmdastjóra Formúlu 1 sem og aðra forráðamenn mótaraðarinnar. 

„Það að halda keppnishelgi í Rúanda væri siðferðislega óréttlætanlegt,“ segir utanríkisráðherrann í skriflegu svari við fyrirspurn The Athletic. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×