Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar 16. október 2026 08:32 Í september 2026 bárust Vinnumálastofnun sex tilkynningar um hópuppsagnir sem náðu til 181 starfsmanns. Áhrifin ná þó miklu lengra en bara til þeirra sem missa starfið. Hugsum okkur vinnustað þar sem hópi starfsfólks hefur verið sagt upp. Að loknum uppsagnarsamtölum hittir stjórnandinn fólkið sem heldur áfram og hvetur það til að horfa fram á við. Einn veit hins vegar ekki hvaða verkefnum hann á að taka við. Annar er að kveðja náinn samstarfsfélaga. Sá þriðji óttast að verða næstur. Stjórnandinn hefur sjálfur ekki fengið svör við öllu. Hvatningin er vel meint, en stjórnandinn hefur haft miklu lengri tíma til að átta sig á breytingunum og verður að vita fyrirfram hvað starfsfólkið þarf til að geta tekið næstu skref. Vönduð vinnubrögð ráða áhrifum og árangri óumflýjanlegra uppsagna. Með faglegum og nákvæmum undirbúningi gagnvart óvissu á umrótstímum tryggjum við að mennskan stýri för. Áður en breytingar eru kynntar: Metið áhrifin á fólkið sem hættir, þau sem halda áfram og stjórnendur. Ákveðið hver miðlar upplýsingum, svarar spurningum og fylgir þeim eftir. Skýrið hvaða verkefni ganga fyrir, hverju verður frestað og hverju hætt. Undirbúið stjórnendur fyrir samtöl og tryggið þeim umboð og stuðning. Frá rekstrarrökum til mennsku Fækkun starfsfólks getur verið nauðsynleg til að laga rekstur að breyttum aðstæðum. Mikilvægt er þó að meta áhrifin á fólkið og starfsemina áður en gripið er til aðgerða; meðan enn er hægt að móta útfærsluna. Rekstrarlegu rökin skýra hvers vegna gripið er til uppsagna, en mennskan ræður því hvernig að þeim er staðið. Sambærilegt mat á við þegar breytingar verða án uppsagna. Þegar verkefni falla niður eða ábyrgð breytist getur fólk misst mikilvægan hluta af hlutverki sínu þótt það haldi starfinu. Fólkið sem missir starfið Auk óvissu um tekjur og atvinnu getur sá sem missir starfið þurft að kveðja samstarfsfólk, verkefni og áform um framtíðina. Með því að hlusta eftir áhyggjum viðkomandi má átta sig á hvaða aðstoð nýtist. Í uppsagnarsamtali þarf stjórnandinn að koma sér að efninu og skýra ákvörðunina og ástæður hennar með einföldum hætti. Síðan þarf að hlusta, svara spurningum og gefa viðkomandi ráðrúm. Spurningar og sterkar tilfinningar eru óhjákvæmilegar í slíkum samtölum. Því þurfa upplýsingar um næstu skref að liggja fyrir skriflega: hvaða aðstoð sé í boði, hver svari spurningum og hvenær frekara samtal geti farið fram. Einnig þarf að ræða hvernig starfslokum og kveðjustund verður háttað, enda eru óskir fólks ólíkar. Þau sem halda áfram þurfa líka stuðning Þau sem halda starfinu geta upplifað létti en um leið söknuð, óöryggi og áhyggjur. Með samstarfsfélaga getur farið mikilvæg þekking og stuðningur sem var orðinn sjálfsagður hluti vinnudagsins. Starfsfólkið fylgist líka með því hvernig komið er fram við þau sem hætta. Rannsóknir benda til sterkari tengsla við vinnustaðinn þegar fólk telur að staðið hafi verið að uppsögnum með sanngjörnum hætti. Þar skiptir máli hvernig ákvarðanir eru teknar og kynntar, hvort viðmiðum sé beitt með samræmdum hætti og hvernig fólki er mætt. Starfsfólk getur skilið rekstrarleg rök en samt verið ósátt. Athugasemdir um rangar upplýsingar eða ósamræmi þarf að skoða efnislega. Reiði gerir athugasemd ekki óréttmæta og yfirveguð framkoma þýðir ekki endilega að viðkomandi sé sáttur. Markviss samskiptastjórnun tryggir að spurningar rati rétta leið til þeirra sem geta svarað þeim. Starfsfólk þarf að vita hvað hefur verið ákveðið, hvað er óljóst og hvenær næstu upplýsingar berast. Ef aðgerðirnar geta haft áhrif á verkaskiptingu eða vinnulag þarf að segja það skýrt og fylgja tillögum þess eftir. Þegar færri eiga að vinna verkin Eftir fækkun starfsfólks geta fleiri verkefni lent á þeim sem halda áfram, án skýrra skilaboða um hvað eigi að hætta að gera. Fólki er jafnvel falið að forgangsraða án viðmiða eða heimildar til að fresta verkefnum. Samviskusamur starfsmaður getur þá reynt að sinna öllu. Viðkomandi hefur metnað, vill ekki bregðast samstarfsfólki og óttast jafnvel um eigið starf ef bent er á of mikið álag. Þótt verkefnin klárist sér stjórnandinn ekki endilega hvað það kostar. Þannig getur samviskusemi falið skipulagsvanda um tíma. Stjórnendur þurfa að ákveða með starfsfólki hvað gengur fyrir, hverju verður frestað og hverju hætt. Þekking starfsfólks nýtist við matið, en ábyrgðin á skýrri forgangsröðun og raunhæfum kröfum er stjórnenda. Fólk þarf svigrúm til að móta vinnuna, ráða við verkefnin og tilheyra hópnum. Eftir uppsagnir getur reynt á allt þetta í senn. Sama á við þegar ný tækni, svo sem gervigreind, breytir störfum. Stuðningurinn þarf að mæta raunverulegum vanda: þjálfun, skýrari ábyrgð eða meiri tíma. Stjórnendur þurfa undirbúning og umboð Stjórnendur þurfa að þekkja forsendur breytinganna og vita hvaða ákvarðanir þeir mega taka. Ábyrgðinni þarf að fylgja umboð til að fresta skilum eða draga úr umfangi verkefna. Sé það utan valdsviðs þeirra þarf að liggja fyrir hver tekur ákvörðunina og hvenær. Undirbúningur þarf líka að ná til samtalanna. Með æfingu geta stjórnendur þjálfað hlustun, komið auga á upplýsingar sem vantar og orðið meðvitaðri um eigin viðbrögð, svo sem að fara í vörn eða lofa of miklu. Þeir þurfa jafnframt að geta rætt eigin áhyggjur í trúnaði og fengið aðstoð við álitamál, hjá yfirmanni, mannauðsfólki eða utanaðkomandi ráðgjafa. Eftirfylgnin skiptir máli Skipuleggja þarf eftirfylgni áður en breytingarnar eiga sér stað. Að upplýsingar hafi verið sendar eða þjálfun farið fram segir ekki hvort fólk ráði betur við verkefnin. Eftir breytingarnar: Ræðið við starfsfólk um líðan, álag og óleystar spurningar. Athugið hvort ábyrgð og forgangsröðun séu skýr. Metið hvort þjálfun og stuðningur nýtist í starfi. Ítrið með því að bregðast við ábendingum og breyta framkvæmd ef þarf. Áður en við biðjum fólk að horfa fram á við þurfum við nefnilega að skilja hvað hefur breyst fyrir það. Sá sem tekur við nýjum verkefnum þarf skýr svör, sá sem kveður samstarfsfélaga þarf svigrúm og sá sem óttast að verða næstur þarf heiðarlegar upplýsingar. Mennskan birtist í því að hlusta, meta framlag fólks og sýna virðingu. Hún birtist líka í viðbrögðum þegar álag, óskýr ábyrgð eða skortur á stuðningi kemur í ljós. Höfundur er mannauðs- og stjórnunarráðgjafi og annar eigenda Kjarks ráðgjafar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Mest lesið ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun