Viðskipti innlent

Ekkert fannst í búi Omnom

Bjarki Sigurðsson skrifar
Kjartan og Óskar stofnuðu Omnom árið 2013.
Kjartan og Óskar stofnuðu Omnom árið 2013. Vísir/Vilhelm

Ekkert fannst í búi fyrirtækisins sem áður rak sælgætisgerðina Omnom. Kröfur í búið námu um 166 milljónum króna. Góa keypti vörumerkið og allan tækjabúnað áður en félagið varð gjaldþrota.

Omnom hf. var stofnað 2013 utan um rekstur samnefndrar sælgætisgerðar. Undir lokin var fyrirtækið í 42 prósenta eigu Óskars Þórðarsonar, Kjartan Gíslason átti sextán prósent og erlendi sjóðurinn Impact Partners Capital XI átti 42 prósent. Óskar og Kjartan voru stofnendur fyrirtækisins. 

Í fyrra var allur rekstur Omnom seldur til Góu og fengu allir starfsmenn framleiðslu fyrirtækisins boð um starf hjá Góu. Í kjölfarið var nafni Omnom hf. breytt í HR101 hf. og félagið var svo úrskurðað gjaldþrota rúmum mánuði síðar. 

Skiptafundur búsins fór fram í fyrradag og segir Anna María Gísladóttir, lögmaður og skiptastjóri búsins, að ekkert hafi fundist upp í 166 milljóna kröfur. 

Fyrir ári síðan ræddi Vísir við nokkra kröfuhafa sem sögðust hafa áhyggjur af því að fá ekki kröfur sínar greiddar úr búinu. Áhyggjur þeirra voru því á rökum reistar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×