Erlent

Ók viljandi á ástralska þingkonu

Samúel Karl Ólason skrifar
Helen Haines hefur setið á þingi í Ástralíu sem óháður þingmaður frá 2019.
Helen Haines hefur setið á þingi í Ástralíu sem óháður þingmaður frá 2019. AP/Mick Tsikas, AAP

Ekið var á ástralska þingkonu fyrir utan skrifstofu hennar í Wangaratta í morgun. Útlit er fyrir að 43 ára maður hafi vísvitandi ekið á Helen Haines á Toyota Landcruiser en Anthony Albanese, forsætisráðherra, segir atvikið rannsakað af hryðjuverkalögreglu. Ekki sé um slys að ræða.

Haines, sem er 65 ára gömul, er sögð alvarlega slösuð en maðurinn sem ók bílnum var yfirbugaður á vettvangi af almennum borgurum og svo handtekinn. Lögregluþjónar fundu hníf í bílnum, samkvæmt lögreglunni.

Ástralska ríkisútvarpið hefur eftir Albanese að draga þurfi úr spennu í pólitískri umræðu í Ástralíu. Það er eitthvað sem hann hefur lengi kallað eftir en ástralskir stjórnmálamenn hafa í gegnum árin þótt mjög aðgengilegir og hafa getað gengið um götur án sérstakrar verndar.

Þetta hefur orðið erfiðara á undanförnum árum þar sem ógnanir gegn embættis- og stjórnmálamönnum hafa færst í aukana.

Albanese sagðist í morgun ekki vilja samfélag þar sem stjórnmálamenn geta ekki rætt við almenning í matvöruverslunum eða á götu úti. Það væri mikilvægur liður í áströlsku lýðræði.

„Og auðvitað einhver eins og Helen Haines, sem kemur úr þessu samfélagi, var mjög sýnileg og á ferðinni meðal fólks. Ég hafði ánægju af því að verja tíma með Helen Haines í hennar heimakjördæmi og ég veit að hún nýtur þar mikillar virðingar þvert á pólitískar línur.“

Forsætisráðherrann sagði Haines alltaf koma fram við aðra af virðingu. Hún væri sjálf vel virt af öllum þingmönnum. Ekkert rúm væri fyrir pólitískt ofbeldi í Ástralíu.

Krissy Barrett, yfirmaður Alríkislögreglu Ástralíu, sagði í fyrra að hótunum og ógnum gagnvart þingmönnum hefðu tvöfaldast í fjölda á undanförnum þremur árum.

Hér að neðan má sjá frétt ABC um atvikið, sem Albanese hefur sagt að hafi ekki verið slys, og má horfa á hana hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×