Sport

Kane lentur og má spila í kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
DeAndre Kane gæti spilað aftur í Smáranum í kvöld.
DeAndre Kane gæti spilað aftur í Smáranum í kvöld. Vísir/Guðmundur

DeAndre Kane leikmaður Grindavíkur lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun.

Grindvíkingar hafa nú þegar fengið leikheimild fyrir leikmanninn og er búið að skrá hann í gagnagrunn KKÍ og í leikmannahóp Íslandsmeistaranna.

Grindavík mætir Breiðabliki í VÍS-bikarnum í Smáranum í kvöld. Kane má spila leikinn. Grindvíkingar hafa verið fáliðaðir í upphafi tímabilsins og tapað fyrstu tveimur leikjunum í Bónus-deildinni, nú síðast gegn Valsmönnum á Hlíðarenda á föstudagskvöldið.

Það er því spurning hvort Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkinga tefli fram Kane í leik kvöldsins. Leikurinn hefst klukkan 19:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×