Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Lovísa Arnardóttir skrifar 20. október 2026 08:53 Guðrún Aspelund segir ánægjulegt að heilbrigðisráðuneytið hafi ákveðið að gera bólusetninguna varanlega. Vísir/Vilhelm Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir embætti landlæknis nú vinna að því að endurmeta fyrirkomulag bólusetninga vegna RS-veiru næstu árin. Virkni bóluefnisins dvíni eftir um fimm til sex mánuði og því sé best að gefa það meðan á faraldri stendur eða í aðdraganda hans. Markhópurinn hafi verið skilgreindur með tilliti til þess og það sé ástæðan fyrir því að aprílbörn hafi ekki fengið bóluefnið. Foreldrar þeirra hafa gagnrýnt fyrirkomulagið.
Börn eru í mestri hættu fyrir alvarlegum einkennum veirunnar þegar þau eru yngri en sex mánaða og því segir Guðrún að lögð hafi verið áhersla á þann hóp í bólusetningu hingað til. Til greina komi að stækka markhópinn. Guðrún var til viðtals í Bítinu um málið. Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90 prósent foreldra þáðu mótefni fyrir börn sín og varð fækkun á staðfestum sýkingum og sjúkrahúsinnlögnum vegna veirunnar hjá aldurshópnum samhliða því. Í síðustu viku var greint frá því að heilbrigðisráðuneytið hefði tryggt áframhaldandi fjármögnun fyrir bólusetningu gegn RS-veirunni og að börnum yngri en sex mánaða yrði áfram boðið upp á slíka vörn. Móðir gagnrýndi það að aprílbörn fengju ekki bóluefnið. Guðrún segir ánægjulegt hversu vel bóluefninu við RS hafi verið tekið. Hún skilji vel furðu foreldra á því að börn sem eru fædd í apríl fái ekki þessa vörn á meðan börn sem fædd eru í maí fái hana. Hún segir að þegar verkefnið hófst hafi það átt að vera afmarkað verkefni til tveggja vetra og landlæknisembættið hafi þurft að skilgreina markhópinn og hversu mikið bóluefni ætti að kaupa fyrir þessa tvo vetur og tryggja það fyrir fram. „Við ákváðum að leggja áherslu á yngstu börnin, sem eru í mestu hættu á að veikjast alvarlega,“ segir hún og að miðað sé þannig við börn sem eru yngri en sex mánaða þegar RS-tímabilið hefst, sem er yfirleitt í október. „Sú ákvörðun byggði meðal annars á íslenskum gögnum.“ Hún segir auðvitað engan líffræðilegan mun á börnum sem eru fædd í apríl og byrjun maí og það sé vitað að yngri ungbörn hafi gagn af bólusetningunni. Það hafi verið búið að afmarka hópinn og þau verði að halda sig við það. Varanleg bólusetning Heilbrigðisráðherra hafi samt sem áður ákveðið í síðustu viku að bæta þessu bóluefni við bólusetningaráætlun og gera hana þannig varanlega. „Það er auðvitað mjög jákvætt,“ segir Guðrún og að þá geti embættið endurmetið fyrirkomulagið og endurskipulagt það fyrir næstu ár, ekki bara afmarkaðan tíma. „Þannig það er vel mögulegt að fleiri börn fái þetta í framtíðinni,“ segir hún en að það þurfi að byggja slíka ákvörðun á gögnum og upplýsingum. Þau viti að bóluefnið virki mjög vel en það þurfi samt sem áður að nýta það þannig að það hafi sem mestan ávinning fyrir börn á Íslandi. Guðrún segir aprílbörnin ekki beint „skilin út undan“ og þau hafi ekki gleymst. Embættið hafi hafið verkefnið í fyrra og það verið skipulagt með ákveðinn markhóp. „Við þurftum að byrja einhvers staðar,“ segir hún og að ákveðið hafi verið að miða við sex mánaða í stað sjö eða tólf og þá hafi þetta verið svona. Guðrún segir að börn sem eru fædd í apríl á þessu ári fái ekki bóluefnið í ár, það sé ekki hægt að fá bóluefnið skyndilega. Það taki tíma að framleiða og kaupa. „Börnin eru í mestri hættu yngri en sex mánaða en við vitum að þetta hefur líka vörn eftir það, en það eru klárlega bestu gögnin fyrir þau sem eru yngri en sex mánaða,“ segir hún. Það séu alltaf að koma ný gögn, bóluefnið sé frekar nýtt og það eigi eftir að koma í ljós hvort markhópurinn verði endurskilgreindur með tilliti til þess. Vörnin dvíni eftir sex mánuði Spurð hvort hún sjái fyrir sér að öll börn undir eins árs fái bóluefnið, annaðhvort þegar tímabilið stendur yfir eða í aðdraganda þess, segir hún að mótefnið endist best í fimm til sex mánuði og vörnin dvíni eftir það. „Hún er samt áfram og það eru alltaf að koma betri gögn um það eftir því sem það er lengur notað.“ Hún segir það hvenær vörnin byrjar að dvína og hvenær tímabilið byrjar hafa mikil áhrif á það hvernig markhópurinn er skilgreindur. „Og hvenær börnin fái þetta svo það verndi þau á meðan faraldurinn er í gangi,“ segir hún og að það sé ekki verið að reyna að verja eitt og eitt tímabil utan tímabils heldur þegar faraldurinn er í gangi. Guðrún segir bráðabirgðaniðurstöður frá síðasta vetri benda til þess að það hafi verið mjög góður árangur. Það hafi verið færri innlagnir hjá börnum yngri en eins árs, færri komur til heilbrigðisþjónustu og minni lyfjanotkun. Faraldurinn öðruvísi í fyrra „Faraldurinn var öðruvísi í fyrra, hann byrjaði seinna og var minni,“ segir hún og að það þurfi líka að taka það til greina í rannsóknum á honum. Guðrún segir misjafnt eftir mánuðum hversu margir þáðu bóluefnið en hlutfall þeirra sem þáðu af þeim sem bauðst hafi verið á milli 80 til 90 prósent. Hún segir að áður hafi verið um 70 innlagnir ungbarna meðan á faraldri stóð en í fyrra hafi aðeins sjö börn lagst inn. Það verði að taka tillit til þess að faraldurinn hafi verið minni en það sé vísbending um árangur. Eins og má sjá á mælaborði landlæknisembættisins varð veruleg fækkun tilvika síðata vetur á RS veiru. Landlæknisembættið „Bara hérna á Íslandi eru þetta tölurnar en erlendis þar sem þetta hefur verið notað lengur má sjá allt að 80 prósenta fækkun innlagna barna,“ segir hún og að það sé mjög góður árangur. Guðrún segir embættið núna geta skipulagt næstu ár og þá geti það tekið tillit til þess í sínum innkaupum að bóluefnið eigi að vera hluti af bólusetningaráætlun. Lyfið sé ekki eins og inflúensubóluefnið sem er búið til nýtt á hverju ári, heldur sé þetta efni sem geymist en þegar það er gefið virkar vörnin best í ákveðinn tíma.
Bólusetningar Heilbrigðismál Börn og uppeldi Bítið Tengdar fréttir Mótefni við RSV muni draga verulega úr álagi og kostnaði Ef áhrif af notkun mótefnisins nirsevimab við RSV veirunni verða svipuð hér og þau hafa verið erlendis má búast við því að verulega muni draga úr álagi og kostnaði í heilbrigðisþjónustunni vegna RSV. 11. nóvember 2025 08:00 Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Valtýr Thors, yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann, segir heilbrigðisstarfsfólk á spennt að hefja notkun á nýju mótefni við RS-veirunni. Hann segir fullyrðingar hagsmunahóps um að lyfið hafi farið í hraðferð við leyfisveitingu ekki standast og að góð reynsla hafi myndast á notkun lyfsins á bæði Frakklandi og á Spáni. 16. september 2025 09:43 Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Sóttvarnalæknir segir fullyrðingar hagsmunasamtaka um nýtt mótefni gegn RS-veiru vera rangar og efast um áhrif auglýsingar samtakanna. Hún segir að ef árangur af notkun lyfsins verði sambærilegur og í nágrannalöndum muni 300 færri börn þurfa að leita læknisaðstoðar. 16. september 2025 13:11 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Sjá meira
Mótefni við RSV muni draga verulega úr álagi og kostnaði Ef áhrif af notkun mótefnisins nirsevimab við RSV veirunni verða svipuð hér og þau hafa verið erlendis má búast við því að verulega muni draga úr álagi og kostnaði í heilbrigðisþjónustunni vegna RSV. 11. nóvember 2025 08:00
Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Valtýr Thors, yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann, segir heilbrigðisstarfsfólk á spennt að hefja notkun á nýju mótefni við RS-veirunni. Hann segir fullyrðingar hagsmunahóps um að lyfið hafi farið í hraðferð við leyfisveitingu ekki standast og að góð reynsla hafi myndast á notkun lyfsins á bæði Frakklandi og á Spáni. 16. september 2025 09:43
Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Sóttvarnalæknir segir fullyrðingar hagsmunasamtaka um nýtt mótefni gegn RS-veiru vera rangar og efast um áhrif auglýsingar samtakanna. Hún segir að ef árangur af notkun lyfsins verði sambærilegur og í nágrannalöndum muni 300 færri börn þurfa að leita læknisaðstoðar. 16. september 2025 13:11