Formúla 1

Býst við harðri sam­keppni frá Verstappen

Andri Broddason skrifar
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes, ásamt Kimi Antonelli sem hetur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar um helgina.
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes, ásamt Kimi Antonelli sem hetur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar um helgina. Vísir/Getty

Mercedes byrjaði tímabilið frábærlega og var sterkasta liðið í byrjun tímabilsinsi í Formúlu 1. Eftir því sem leið á tímabilið byrjuðu önnur lið smátt og smátt að ná Mercedes og virðast Red Bull, Ferrari og McLaren vera á svipuðum stað og Mercedes.

Eftir sigurhrynu Mercedes í byrjun tímabils hafa Ferrari, Red Bull og McLaren öll unnið keppnir og virðast liðin vera nær hraða Mercedes en í byrjun tímabils. Max Verstappen, ökumaður Red Bull, hefur unnið síðustu tvær keppnir og býst Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes, við harðri baráttu á næsta tímabili.

„Maður þarf að taka hattinn að ofan fyrir Red Bull á þessu tímabili. Hvernig liðið er búið að þróa bílinn og setur svo Max Verstappen í hann þá vinnur liðið keppnir. Hann var hraðastur [í Singapúr] og hraðastur í Kuala Lumpur,“ sagði Toto Wolff við Sky Sports eftir kappaksturinn í Singapúr.

„Vonandi fara uppfærslur okkar að virka og við getum verið á sama stað og hann, einn eitt er fyrir víst, það verður mikil barátta milli annarra liða á næsta tímabili.“

Þrátt fyrir að núverandi tímabil sé ekki alveg búið þá er Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, kominn með aðra höndina á heimsmeistaratitilinn. Ef úrslitin falla honum í hag þá getur hann formlega orðið heimsmeistari í bandaríska kappakstrinum um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×