Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Birgir Olgeirsson skrifar 20. október 2026 17:22 Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir spurði hvernig tryggja ætti öryggi í skólum án þess að þeir yrðu lokuð öryggissvæði. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri greindi frá vinnu við að fækka opnum inngöngum á ákveðnum tímum skóladagsins. Vísir Reykjavíkurborg skoðar að hafa aðeins einn inngang opinn í grunnskólum á ákveðnum tímum skóladagsins og stýra betur hverjir komast inn. Borgarstjóri greindi frá þessu þegar hún svaraði fyrirspurn um öryggi í skólum og frásagnir af kennurum sem hefðu orðið fyrir ofbeldi.
Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagðist hafa heyrt af kennara sem notaði legghlífar í vinnunni vegna endurtekinna sparka nemanda. Hún lýsti einnig frásögnum af stólkasti í átt að höfði kennara og kennara í veikindaleyfi eftir að hafa fengið stein í höfuðið. Hún spurði hvernig borgarstjóri hygðist tryggja öryggi nemenda og starfsfólks án þess að skólar þróuðust í átt að lokuðum öryggissvæðum. Kortleggja innganga í öllum grunnskólum Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sagði vinnu hafna við verkefnið „Einn inngangur“, sem miðaði að því að bæta aðgangsstýringu í grunnskólum á kennslutíma. Kortleggja þyrfti innganga í hverjum skóla, hversu reglulega þeir væru opnir og á hvaða tímum dags rétt væri að hafa aðeins einn inngang opinn. Aðgangi um þann inngang yrði þá betur stýrt. Hildur tilgreindi ekki hvenær breytingar á aðgangi að skólunum gætu komið til framkvæmda. Kristín Kolbrún hafði í fyrirspurn sinni sagt nauðsynlegar öryggisráðstafanir geta verið réttlætanlegar. Læsingar og myndavélar væru hins vegar viðbrögð við afleiðingum og leystu ekki rót vandans. „Verður næsta skref öryggisgæsla eða öryggisleit við innganginn?“ spurði hún. Grunar að stór hluti atvika sé óskráður Umræðan kemur í kjölfar fundar skóla- og frístundaráðs 12. október. Þar lýsti ráðið áhyggjum af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki væru í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Fulltrúi grunnskólakennara vísaði jafnframt til nýlegra atvika þar sem fólk hefði ráðist til inngöngu og veist að nemendum eða starfsfólki. Kristín Kolbrún fagnaði því að markviss skráning atvika væri hafin en grunaði að innan við helmingur þeirra væri skráður. Hún tengdi það við mikið skrifræði og sagðist hafa fengið fjölmörg einkaskilaboð frá kennurum eftir að hafa leitað eftir upplýsingum á Facebook. Hún kallaði eftir tölum um alvarleg öryggisatvik, ofbeldi gegn starfsfólki og hversu oft lögregla eða barnavernd hefði verið kölluð til. Þá vildi hún kanna aldur, búsetu og bakgrunn þeirra sem tengdust alvarlegum atvikum til að beina forvörnum og stuðningi þangað sem þörfin væri mest. Ný skráning dugar ekki til samanburðar milli ára Hildur sagði borgina nýlega hafa hafið miðlæga skráningu atvika sem vörðuðu öryggi starfsfólks. Þar væru meðal annars skráð föll, högg, umferðarslys og ofbeldi. Skráningin væri svo ný að erfitt væri að bera tíðni og alvarleika atvika saman við fyrri ár. „Þannig að fyrirliggjandi gögn geta ekki sagt okkur hvernig svona atvik hafa þróast í gegnum árin.“ Hildur gaf ekki upp fjölda ofbeldisatvika eða hversu oft lögregla og barnavernd hefðu komið að málum. Hún fjallaði heldur ekki sérstaklega um frásagnirnar af legghlífum, stólkasti og steini. Hún sagði borgina hafa gefið út leiðbeiningar um viðbrögð við ofbeldi gegn starfsfólki og líkamleg inngrip. Fræðsla, þjálfun og sérfræðiráðgjöf væru í boði. Þá stæði til að innleiða heildstæða forvarnaáætlun vegna ofbeldis gagnvart starfsfólki á næstu misserum. Hildur lagði áherslu á að skólar væru almennt öruggir fyrir börn og starfsfólk en taka þyrfti öll ofbeldisatvik alvarlega. „Við þurfum að bregðast við þeim og reyna eftir megni að fyrirbyggja að nokkuð slíkt komi fyrir.“
Reykjavík Skóla- og menntamál Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Sjá meira