„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. október 2026 18:05 Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss. Vísir/Anton Brink Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir það fjarri sinni skoðun að dæma eigi fólk út frá kynferði, lit eða trú. Hann segir að á sama tíma séu miklar samfélagslegar breytingar að verða á Íslandi og að hann hafi áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá Norður-Afríku og Miðausturlöndum. Tími sé kominn á að halda skrá utan um þjóðerni þeirra sem fremji ofbeldisbrot líkt og gert sé í Danmörku.
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar var rætt við Elliða í tilefni af Facebook færslu hans sem vakið hefur mikla athygli þar sem hann sagði meðal annars að óheftur straumur innflytjenda, sérsaklega múslíma, væri að valda skaða hér á landi. Birti hann mynd með færslunni sem honum var fljótlega bent á að væri frá Svíþjóð en ekki Frakklandi. „Þetta gerist nú þannig í gær að þegar ég er að fara yfir fjölmiðlana þá fannst mér svolítið írónískt að íslenskir fjölmiðlar skuli vera að halda því fram að það séu nemendur að mótmæla aðbúnaði í kennslustofum í Frakklandi sem er að valda þessum hræðilegu atburðum sem þar eru og henti í einhverjar tvær, þrjár línur ásamt mynd sem ég valdi nú bara af handahófi þar sem ég gerði grín að því að fullorðnir karlmenn væru nemendafélag. En í framhaldi af því fór hins vegar atburðarás í gang sem maður getur lært af.“ Elliði segist hafa farið að eiga samskipti á þræðinum við fólk sem hann þekki. Hann segir að þá verði maður værukær. „Og mér varð það á að að nefna þarna heilan trúarhóp en að sjálfsögðu var það hvergi mér nærri huga enda fjarri minni skoðun að það eigi að dæma fólk út frá kynferði, lit eða trú. En það breytir hins vegar ekki þeirri skoðun minni að ég hef verulegar áhyggjur af stöðu málefna innflytjenda, bæði í nágrannalöndum okkar en eðli málsins samkvæmt að þá hef ég sérstaklega áhyggjur af þessu á Íslandi og ég ætlast til þess að ég og aðrir fáum einfaldlega frið til að ræða þessi mál ef okkur sýnist svo. Ég get reyndar bætt því við að ég tek mér þann rétt hvort sem að fólki líkar það betur eða verr að ræða þetta.“ Hvað er það sem er slæmt hjá okkur Íslendingum? Er eitthvað slæmt hjá okkur? „Það er nú sem betur fer langflest gott hjá okkur en ég hef áhyggjur af því, að það er að verða þjóðfélagsleg breyting. Ég fór á heilsugæslu um daginn og þar mætti mér einkennisklæddur öryggisvörður. Við sjáum það að lögreglan hefur verið vopnbúin til þess að tryggja öryggi hennar og það er nú bara ekki lengra síðan heldur en í síðustu viku að skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar var að ræða áhyggjur sínar af ítrekuðum öryggisatvikum sem tengjast framkomu hópa gagnvart kennurum og nemendum. Reyndar svo mjög að á Alþingi ræða þingmenn núna um mikilvægi þess að vera með öryggisverði í ákveðnum skólum. Við sjáum að það er að verða samfélagsleg breyting og það gengur ekkert að stinga höfðinu ofan í sundinn. Við þurfum að ræða þessi mál, við þurfum að hafa þetta uppi á borðum og standa frammi fyrir því að ef eitthvað má betur fara.“ Okkur hefur fjölgað mjög ört undanfarin ár, það hefur verið bent á að það sé óvenju ört, ertu að ýja að því að það sé vegna þess? „Ja, ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum að ég hef áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá ákveðnum svæðum og er þar ekkert að setja alla innflytjendur undir sama hatt. Það eru svona sérstaklega þessi lönd í Norður-Afríku og Miðausturlöndum og fleira. Því miður þá er hluti þessa hóps, langt frá því allir, að finna öfgakenndri hugmyndafræði farveg innan Íslam og það er engum greiði gerður með því að standa ekki frammi fyrir þessu. Og nú hefur OECD varað við því að við Íslendingar, við höldum ekki skrá um þetta. Við tökum ekki fram ef gerendur ofbeldisbrota eru af öðru þjóðerni. Danir hinsvegar þeir hafa farið þá leið að taka þetta fram og eyða þannig misskilningi og fordómum bara með því að upplýsa.“ Elliði segist alls ekki halda því fram að allir sem komi frá þessum svæðum séu eins. Né heldur að uppruni segi til um hegðun einstaklinga. „En gögn frá Evrópu, þar sem þjóðir hafa lengri og meiri reynslu af þessu, þau bara sýna að atvinnuþátttaka fólks frá Norður-Afríku og Miðausturlöndum er lægri og atvinnuleysið er hærra. Norrænar rannsóknir sýna líka að það er aukin tíðni í ofbeldisbrotum. Þannig mér finnst bara skynsamlegt að við tökum þessu gula spjaldi alvarlega og tökum okkur umboð til að ræða þetta án þess að veifa stöðugt einhverjum rasistakortum.“ Samkvæmt tölum frá Hagstofunni voru Pólverjar fjölmennasti hópur innflytjenda árið 2026. Innflytjendur telja samkvæmt nýjustu tölum 77.226 eða 19,6 prósent mannfjöldans þann 1. janúar 2026. 29,9 prósent þeirra eru Pólverjar. Þar á eftir komu einstaklingar frá Úkraínu, 6,1 prósent og þess næst frá Litháen, þeir eru 4,9 prósent. 3.531 innflytjandi var fæddur í Miðausturlöndum eða Norður-Afríku, miðað við tölur Hagstofunnar. Það jafngildir 4,6 prósent allra innflytjenda og 0,9 prósent landsmanna. Flestir þeirra eru frá Sýrlandi. Elliði segir hjákátlegt að réttlæta óeirðir í Frakklandi með þeirri staðreynd að mikil og löng hefð sé fyrir mótmælum í Frakklandi. Hann segir erlenda fjölmiðla marga hverji sem hann hafi lesið telja að fjarvinstrið og ákveðnar kreðsur innan íslamssamfélagsins hafi leitt hluta af óeirðunum. Ég er að reyna að sjá þetta í svona samhengi við það sem þú ert að reyna að varpa ljósi á varðandi innflytjendamálin hér, er ég að misskilja þig eitthvað? „Nei, þú ert alls ekki að misskilja mig. Ég hef áhyggjur af því að við séum ekki að nálgast innflytjendamálin af nógu mikilli alúð og vandvirkni og ég held að þurfi og mótmæli sem þessi og framganga þessara þjóðfélagshópa sem er í hærra hlutfalli heldur en ef til vill margra annarra, hún er viðvörunarmerki fyrir okkur. Og því miður þá hafa þessi mál bara ekki verið skoðuð mikið hérna á Íslandi. Kannski vegna þess að það er erfitt að gera það án þess að það veki reiði og hneykslan og trúðu mér, ég er nú sannarlega búinn að fá minn skerf af því síðan í gær en sef svo sem alveg rólegur þrátt fyrir alls lags hótanir og orðaleppa. En við erum illa stödd sem samfélag af sjálf frelsið til þess að ræða málin er frá.“ Er stóri vandinn Elliði að við höfum ekki byggt nóga góða innviði utan um svona mikla fólksfjölgun og innflytjendur? „Ja, ef við höfum ekki gert það, sem erum þó í skárri stöðu heldur en Frakkar, heldur en Bretar, heldur en Svíar, heldur en Danir, heldur en Hollendingar og allar þessar þjóðir sem núna eru að herða landamæri sín. Og þetta er ekki gert af einhverri illsku gagnvart fólki. Þetta er gert vegna þess að við viljum vernda ákveðna innviði. Við erum með ákveðin vestræn gildi sem þessir hópar, ekki allir þessir innflytjendur, heldur þessir öfgahópar ná að ganga upp á lagið með og það er bara eðlilegt og sjálfsagt að við setjum sjálf leikreglurnar í okkar landi.“
Reykjavík síðdegis Innflytjendamál Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Sjá meira