Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Jakob Bjarnar skrifar 21. október 2026 14:30 Bjarni gagnrýnir grein Maríu Landslæknis harðlega og segir að embættið eigi að vera útvörður hlutlægra upplýsinga, ekki framlenging á pólitískri baráttu ráðherra. vísir/aðsend/Anton Brink Bjarni Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Duflands sakar Maríu Heimisdóttur landlækni um að fara með fleipur og að ganga erinda Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um hertar reglur um nikótínvörur. Það að fara með rangar tölur geti reynst hættulegur leikur.
Bjarni ritar grein sem hann birtir á Vísi um þetta efni. Hann viðurkennir fúslega, í samtali við Vísi, að hann sé ekki hlutlaus, hann er framkvæmdastjóri fyrirtækis sem flytur inn nikótínvörur, og hagsmunir eru ríkir. Fyrirtæki hans velti 2,9 milljörðum árið 2026 og skilaði hagnaði upp á rúmlega 260 milljónir króna. Hann telur engu að síður þá punkta sem hann setur fram í greininni vera hlutlæga. „Maður heyrir oft rangar fullyrðingar en þegar embætti landlæknis fer af stað með svona fullyrðingar, til að ná fram pólitískum árangri, þá finnst mér það bæði rangt og skakkt. Það er lýðheilsa í því að hafa upplýsingar réttar,“ segir Bjarni. Undir eru drög að frumvarpi til laga um nikótín- og tóbaksvarnir sem Alma hefur lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda. Í greininni fer Bjarni yfir grein sem María birti 16. október en Bjarni segir hana fulla af röngum tölum, villandi samanburði og hræðsluáróðri. Landlæknisembættið eigi að vera traust uppspretta hlutlægra upplýsinga um heilbrigðismál en þessa grein sé ekki hægt að lesa öðruvísi en sem pólitíska stuðningsyfirlýsingu. Hafa megi hugfast að María tók við Landlæknisembættinu af Ölmu þegar hún var kölluð til af Samfylkingunni. Reykingar jukust við skattlagningu á tóbakslausan varning Í grein Maríu er því haldið fram að Danmörk leyfi 9 mg/g af nikótíni í púðum en Ísland 20 mg/g, eða „meira en tvöfalt“. Þetta segir Bjarni kolrangt. „Danska reglugerðin miðar við 9 mg í hverjum púða, ekki á hvert gramm. Það stendur svart á hvítu. Íslenska reglan miðar við 20 mg á hvert gramm. Landlæknir ber saman epli og appelsínur og dregur af því ályktun sem á að réttlæta lagasetningu,“ segir meðal annars í greininni sem er ítarleg. Bjarni bendir á að gögn bendi öll í sömu átt. Reykingar ungs fólks á Íslandi mælist langminnstar á Norðurlöndum. Þegar notkun tóbakslausra nikótínvara jókst þá hafi dregið úr reykingum. „Eftir að ríkið skattlagði tóbakslausar nikótínvörur jukust reykingar aftur. Á þetta er hvergi minnst í grein landlæknis. Hvers vegna sleppir landlæknir þeim gögnum sem ekki styðja málflutning ráðherra?“ spyr Bjarni. Að banna það sama aftur og aftur Bjarni segist taka heilshugar undir markmið frumvarpsins. Nikótínvörur eigi ekki heima í höndum barna. En sala til barna yngri en 18 ára er þegar bönnuð með lögum. Lausn ráðherra og nú landlæknis sé engu að síður sú að banna það sama aftur. „Er ekki nóg að lögfesta bann einu sinni, og ef ekki — af hverju bönnum við þá óæskilega hluti ekki þrisvar sinnum? Eða hundrað sinnum?“ Bjarni segir vandann ekki vera skort á lögum heldur skort á eftirliti með þeim lögum sem þegar gilda. Hann skorar á landlækni að leiðrétta þær rangfærslur sem hann segir blasa við í grein hennar og halda embættinu utan pólitískrar baráttu ráðherra.
Tóbak Nikótínpúðar Embætti landlæknis Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Rafrettur Neytendur Heilbrigðismál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fleiri fréttir Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sjá meira