Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar 21. október 2026 13:32 Hún hefur ekki farið fram hjá mörgum undanfarna daga, sú mikla umræða um fyrirhugaðar skattahækkanir og nýjar álögur sem munu að verulegu leyti koma niður á ferðaþjónustunni og þeim samfélögum sem byggja afkomu sína m.a. á henni. Þar á Suðurlandið mikið undir og er þar af leiðandi verulega berskjaldað í þessari undarlegu vegferð. Á mínum tiltölulega stutta ferli í sveitarstjórnarmálum man ég vart eftir því að hafa upplifað jafn mikla togstreitu milli ríkis og sveitarfélaga og nú. Sérstaklega finnst mér bilið hafa breikkað milli ríkis og sveitarfélaga á landsbyggðinni. Við upplifum okkur í eilífri varnarbarátta gagnavart okkar samstarfsfélaga þ.e. ríkinu. Baðlónaskattur, innviðagjald (Bláskógaskatturinn) kílómetragjald, veggjöld, breytingar á eftirliti byggingarfulltrúa, og niðurlagning heilbrigðiseftirlita í núverandi mynd. Þetta eru vissulega ólík mál og klárlega eiga sumar breytingar rétt á sér og gætu mögulega orðið til einhvers góðs. En við verðum samt sem áður að horfa á heildarmyndina og hver áhrifin geta orðið. Þegar nýjar álögur bætast hverjar ofan á aðra, og áhrifin beinast að verulegu leyti að sömu atvinnugrein og sömu samfélögum, hljótum við að þurfa að staldra við og spyrja hvort stjórnvöld hafi í raun gert sér grein fyrir samanlögðum áhrifum þeirra. Það vilja allir leggja sitt af mörkum. Ferðaþjónustufyrirtæki og sveitarfélög á Suðurlandi hafa engan áhuga á að skorast undan ábyrgð sinni. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að uppbyggingu fylgir kostnaður og að það þarf að standa undir nauðsynlegum innviðum og opinberri þjónustu. Ekkert gerist að sjálfu sér Það er stundum hollt að rifja upp hversu ótrúlega stutt er síðan ferðaþjónustan varð sú atvinnugrein sem við þekkjum í dag. Fyrir um fimmtán árum bjó ég á Kirkjubæjarklaustri. Á fallegum sumardögum áttum við fjölskyldan Fjaðrárgljúfur út af fyrir okkur, eftir réttir minnkaði opnunartími verslana og veitingastaða um helming, hótel og gististaðir lögðust í dvala yfir vetrartímann. Á þessum árum var hreinlega ekki mikið af frétta í uppbyggingu nýrra tækifæra á Suðurlandi, t.d. var eina byggingarframkvæmdin í Vík í Mýrdal viðbygging við núverandi hótel. Sjáið svo hvað hefur gerst á þessum stutta tíma. Heilu samfélögin hafa tekið stakkaskiptum. Ný tækifæri hafa orðið til, gömul fyrirtæki hafa vaxið, störfum fjölgað og ungt fólk séð ný tækifæri til að byggja sér framtíð í heimabyggð. Ég tel að jafn öflugur landbúnaður og nú er stundaður á Suðurlandi væri ekki svipur hjá sjón ef ekki væri fyrir ferðaþjónustu. Suðurland hefur verið í fararbroddi þessarar þróunar og lagt gríðarlega mikið af mörkum til þeirrar verðmætasköpunar sem ferðaþjónustan hefur skilað íslensku samfélagi. En þessi uppbygging gerist ekki af sjálfu sér. Að baki hennar stendur fólk sem hefur trú á framtíðinni. Fólk sem hefur lagt allt sitt undir, tekið áhættu, unnið langa vinnudaga og byggt upp sín fyrirtæki með miklum sóma. Sem betur fer hafa margir náð góðum árangri og sum fyrirtæki skilað ágætum hagnaði. Rekstrarumhverfið er krefjandi, fjárfestingar miklar og svigrúm til að mæta sífellt nýjum álögum er ekki endalaust, tala nú ekki um þegar fyrirvarinn er lítill sem enginn. Suðurland, ekki botnlaus tekjulind fyrir ríkissjóð Ferðaþjónustan hefur vissulega skapað áskoranir. Álag á vegakerfið, náttúruna, heilbrigðiskerfið og aðra innviði er mikið og hafa bæði sveitarfélög og ríki þurft að bregðast við örri fjölgun ferðamanna og ákalli um aukna þjónustu. Um þetta eru íbúar, fyrirtæki og sveitarfélög vel meðvituð. Þess vegna er það ekki ágreiningsefni að afla þurfi tekna til að standa undir nauðsynlegri uppbyggingu innviða og þjónustu. En það hlýtur að vera eðlileg krafa að þær tekjur sem þarf að innheimta skili sér að einhverju marki aftur til þeirra samfélaga þar sem álagið verður til. Það gengur illa upp að líta á Suðurland fyrst og fremst sem tekjulind fyrir ríkissjóð en ætlast um leið til þess að sveitarfélögin og atvinnulífið á svæðinu glími sjálft við sívaxandi áskoranir. Við þurfum að geta séð skýr tengsl milli þeirra gjalda sem lögð eru á og þeirra úrbóta sem þeim er ætlað að fjármagna. Það verður að tryggja að álögurnar verði ekki svo miklar að þær dragi úr fjárfestingum, veiki rekstrargrundvöll fyrirtækja og hægi á þeirri jákvæðu byggðaþróun sem við höfum unnið svo ötullega að undanfarin ár. Það væri sérkennileg niðurstaða ef við myndum skattleggja okkur út úr þeim árangri sem við höfum nú þegar náð. Hver á að greiða fyrir hallalaus fjárlög? Það er fullkomlega eðlilegt að núverandi ríkisstjórn vilji ná jafnvægi í ríkisfjármálum. Ábyrg fjármálastjórn er öllum til hagsbóta, sveitarfélögin og fyrirtæki þekkja vel mikilvægi hennar. En þegar stórum hluta fyrirhugaðrar tekjuöflunar ríkisins er beint að einni atvinnugrein, með sérstaklega mikil áhrif á afmarkað landsvæði, hljótum við að mega spyrja hvort jafnræðis og meðalhófs sé gætt. Við viljum öll að ákvarðanir séu teknar af yfirvegun og með langtímahagsmuni allrar þjóðarinnar að leiðarljósi. Suðurland hefur ávallt lagt sitt af mörkum til þjóðarbúsins og mun halda því áfram. En það er ekki hægt að gera ráð fyrir því að umburðarlyndi fyrir landsbyggðarskatti séu ótakmörkuð. Það er ekki nóg að segjast hlusta Eins og ég kom inn á í upphafi þessarar greinar þá veldur það mér aðeins áhyggjum sú staða sem virðist vera komin upp í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Ég held að ansi margir sveitarstjórnarmenn og atvinnurekendur séu orðnir býsna þreyttir á að heyra að stjórnvöld séu að hlusta. Við heyrum aftur og aftur að sjónarmið okkar séu mikilvæg, að samtalið sé gott og að alþingismenn skilji þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Hvað þýðir það í raun að hlusta ef ekkert breytist? Hvers konar samráð og samvinna er það ef niðurstaðan virðist liggja ljós fyrir áður en samtalið hefst? Hvaða tilgangi þjónar það að kalla sveitarfélög og atvinnulíf að borðinu ef þau fá í raun ekkert svigrúm til að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem eru teknar? Við erum ekki að biðja um að fá að sitja við borðið til þess eins að láta í okkur heyra, við viljum og teljum okkur skylt að taka þátt í því að móta lausnirnar. Sveitarfélögin á Suðurlandi búa yfir gríðarlegri þekkingu á þeim aðstæðum sem verið er að fjalla um. Það sama á við um ferðaþjónustufyrirtækin og fólkið sem hefur byggt þau upp. Þessa þekkingu á að sjálfsögðu að nýta þegar ákvarðanir eru mótaðar, ekki eingöngu þegar búið er að taka þær. Það er engum til góðs að samskipti ríkis og sveitarfélaga einkennist af sívaxandi tortryggni og togstreitu. Við erum öll að vinna að sama markmiði, að byggja upp öflugt samfélag og tryggja bjarta framtíð fyrir samfélögin okkar. Samstarf ríkis og sveitarfélaga verður að byggjast upp á gagnkvæmri virðingu. Sú virðing felst ekki bara í því að hlusta kurteislega. Hún felst í því að taka sjónarmið annarra alvarlega og vera tilbúin að breyta um stefnu þegar góð og skynsamleg rök eru færð fram. Við erum tilbúin – Er ríkisstjórnin það? Ég er frekar bjartsýnn og jákvæður að eðlisfari og hef því fulla trú á því að hægt sé að finna farsælar lausnir sem tryggja ríkinu eðlilegar tekjur, standa undir nauðsynlegri innviðauppbyggingu og skapa um leið heilbrigt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi fyrir atvinnulífið. En það er alveg klárt mál að slíkar lausnir verða ekki til með einhliða ákvörðunum, þær verða til með raunverulegri samvinnu. Sveitarfélögin, íbúar og atvinnulífið á Suðurlandi hafa sýnt fram á það að við erum tilbúin að takast á við miklar breytingar og stór verkefni. Við höfum tekið þátt í að byggja upp eina öflugustu atvinnugrein landsins og staðið saman frammi fyrir þeim áskorunum sem þeirri uppbyggingu fylgja. Við erum ekki að biðja um sérmeðferð. Við erum að kalla eftir sanngirni, fyrirsjáanleika og því að ákvarðanir séu teknar með heildarhagsmuni að leiðarljósi. Umfram allt erum við að kalla eftir því að fá að vera raunverulegir þátttakendur í þeirri vinnu sem fram undan er. Við á Suðurlandi erum tilbúin til samstarfs. Við höfum þekkinguna, reynsluna og viljann til að finna góðar lausnir sem verða til hagsbóta fyrir okkur öll. Nú þarf ríkisstjórnin að sýna að þau séu ekki bara hér til að hlusta á okkur, heldur líka að vera tilbúin að vinna með okkur. Ofurskattlagning á einstaka atvinnugreinar, einstaka landshluta og jafnvel einstaka sveitarfélög á ekki eftir að stuðla að því að koma okkur á þann stað sem okkur sæmir. Höfundur er formaður stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og sveitarstjóri Rangárþings eystra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun