Bíó og sjónvarp

Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar

Freyja Þórisdóttir skrifar
Það kemur vonandi í ljós á næstu dögum hver mun fara með hlutverk njósnarans James Bond í næstu kvikmyndum.
Það kemur vonandi í ljós á næstu dögum hver mun fara með hlutverk njósnarans James Bond í næstu kvikmyndum. Getty

Fámennur hópur leikara mun spreyta sig í prufutökum fyrir hlutverk breska njósnarans 007 á næstu dögum. Reiknað er með því að í það minnsta þrír leikarar taki þátt í tökunum í von um að taka við af hinum breska Daniel Craig sem lék njósnarann James Bond frá árinu 2006 til ársins 2021.

Er greint frá þessu í umfjöllun The Hollywood Reporter en þar er haft eftir heimildum að meðal þeirra sem séu væntanlegir í prufutökur sé hinn 36 ára gamli Callum Turner en hann er Breti, líkt og njósnarinn. Turner lék nýverið í rómantísku gamanmyndinni One Night Only en hann gekk að eiga söngkonuna Dua Lipa í vor. 

Þá hefur miðillinn einnig eftir heimildum að leikarinn Jack Lowden, sem er einnig 36 ára gamall en hins vegar skoskur, sem hefur meðal annars leikið í sjónvarpsþáttunum Slow Horses. Hann, rétt eins og Turner, er giftur stórstjörnu en hann og leikkonan Saoirse Ronan giftu sig við látlausa athöfn árið 2024 og eiga saman eitt barn.

Samkvæmt tveimur heimildarmönnum eru tökurnar á áætlun núna um helgina og fara þær fram í London. Ekki liggur fyrir hverjir aðrir hafi fengið boð í prufu. Heimildarmenn hafa sagt að að minnsta kosti þrír leikarar taki þátt og annar heimildarmaður að allt að fimm kunni að máta smókinginn.

Þá hafði sá orðrómur verið á kreiki um að enski leikarinn Jack O’Connell, sem er einmitt líka 36 ára gamall, kæmi til greina en svo virðist ekki vera, samkvæmt heimildarmönnum Hollywood Reporter. Jacob Elordi, sem gerði það gott sem Nate í Euphoria, mun samkvæmt sömu heimildarmönnum ekki mæta í prufu.

Kanadíski leikstjórinn Denis Villeneuve var síðasta sumar ráðinn til að leikstýra næstu og 26. kvikmyndinni um breska spæjarann 007. Síðan þá (og sennilega aðeins fyrr) hefur staðið yfir leit að þeim sem mun leika spæjarann geðþekka. Ekki er þó mikill tími til stefnu því samkvæmt skipulagi MGM-Amazon eiga tökur á myndinni að hefjast á næsta ári.


Tengdar fréttir

Blaðri því út um allan bæ að hann sé næsti Bond

Breski hjartaknúsarinn og leikarinn Callum Turner er sagður hafa blaðrað því út úr sér á fjölmörgum stöðum að hann hafi verið ráðinn til þess að leika breska njósnara hans hátignar, James Bond. Hann muni taka við keflinu af Daniel Craig sem lék njósnarann í síðustu mynd sem kom út 2021.

Vill verða Bond illmenni

Norski fyrrum fótboltamaðurinn John Carew á sér stóra drauma innan leiklistarinnar. Hann lærði iðjuna í leyni meðan hann var leikmaður Aston Villa á Englandi og hefur getið sér gott orð að undanförnu.

Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði

Nú þegar búið er að ráða Denis Villeneuve sem leikstjóra næstu James Bond-myndar er leit hafin að næsta 007. Heimildarmenn Variety segja framleiðendur vilja leikara undir þrítugu og að efstir á blaði séu Tom Holland, Jacob Elordi og Harris Dickinson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.