Handbolti

Strax aftur á sigurbraut

Sindri Sverrisson skrifar
Kristján Ottó Hjálmsson skoraði fjögur mörk í sigri Aftureldingar í kvöld.
Kristján Ottó Hjálmsson skoraði fjögur mörk í sigri Aftureldingar í kvöld. vísir/Anton

Eftir fjögurra marka tap gegn KA í síðustu umferð vann Afturelding fjögurra marka sigur á hinu Akureyrarliðinu, Þór, í Mosfellsbæ í kvöld, 38-34, í fyrsta leik 8. umferðar Olís-deildar karla í handbolta.

Afturelding er því með 11 stig, þremur stigum á eftir toppliði Hauka sem enn hafa ekki tapað leik og eiga leik til góða við HK annað kvöld.

Mosfellingar hafa verið öflugir á heimavelli á leiktíðinni og þeir voru sex mörkum yfir í hálfleik í kvöld, 23-17. Þórsarar hleyptu hins vegar mikilli spennu í leikinn í seinni hálfleik og minnkuðu muninn nokkrum sinnum í tvö mörk en komust ekki nær.

Daninn Oscar Sven Leithoff Lykke var markahæstur Aftureldingar með átta mörk og Árni Bragi Eyjólfsson skoraði sjö. Hjá Þór voru þeir Þórður Tandri Ágústsson og Hákon Ingi Halldórsson markahæstir með sex mörk hvor.

Einar Baldvin Baldvinsson varði vel í marki Aftureldingar eða 11 af 30 skotum, 37%, á meðan að Nikola Radovanovic var með 26% markvörslu hjá Þór eða 11 varin skot af 43 sem hann fékk á sig.

Þetta var fimmta tap Þórsara sem sitja sem stendur í 7. sæti með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×