Viðskipti innlent

Bein út­sending: Hátækni­brennsla á Ís­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Fundurinn stendur milli klukkan 10 og 11:30.
Fundurinn stendur milli klukkan 10 og 11:30. Fenúr

Greining og mat á mögulegri hátæknibrennslu á Íslandi verður til umræðu á fundi Fenúr – fagráðs um endurnýtingu og úrgang í Norræna húsinu í dag. Fundurinn stendur milli klukkan 10 og 11:30 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilara að neðan.

Í tilkyninngu segir að undanfarin ár hafi hópar á vegum, umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytis, Samtaka Sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SORPU, Sorpeyðingarstöðinni Kölku, Sorpurðun Vesturlands, Sorpstöð Suðurlands, unnið að greiningum og mat á rekstri fyrir hátæknibrennslustöð á Íslandi.

„Slík stöð myndi brenna óendurvinnanlegum úrgangi til orkuvinnslu. Óendurvinnanlegur úrgangur hefur verið urðaður en með innleiðingu hringrásarhagkerfis og lögum um umhverfismál hefur aukin áhersla verið á útflutning til brennslu og orkuvinnslu. Á fundinum verður kynnt vinna hópsins og næstu skref,“ segir í tilkynningunni.

Hægt er að fylgjast með í beinu streymi að neðan.

Afrakstur vinnu hópanna eru þrjár skýrslur:

„Í nýjustu skýrslunni er lagt til að stofnað verði undirbúningsfélag fyrir hátæknibrennslu til að vinna áfram á grundvelli ofangreindra skýrslna.

Vaxandi þörf fyrir meðhöndlun á óendurvinnanlegum úrgangi

Gert er ráð fyrir að á árinu 2035 muni falla til á Íslandi allt 140.000 tonn af óendurvinnanlegum úrgangi sem hátæknibrennsla þyrfti að geta afkastað. Áætlað er að 140 þúsund tonna hátæknibrennsla geti framleitt um 97 GWh af raforku á ári og um 4 milljónir rúmmetra af heitu vatni.

Miklar framfarir hafa átt sér stað við byggingu slíkra hátæknibrennslna og má víða um Evrópu sjá þær reistar nálægt íbúðabyggð. (Amagarbakken í Kaupmannahöfn og Spittelau í Vín). Í Evrópu voru árið 2020 um 504 hátæknibrennslur sem samtals meðahöndluðu 101 milljónir tonna af óendurvinnanlegum úrgangi. Á Íslandi yrði horft yrði til bestu fáanlegu tækni við brennslu og hreinsibúnaði á útblæstri,“ segir í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×