Viðskipti innlent

TAP flýgur milli Kefla­víkur og Lissabon

Agnar Már Másson skrifar
TAP er rúmlega áttatíu ára gamalt flugfélag.
TAP er rúmlega áttatíu ára gamalt flugfélag. WikipediaCommons

Portúgalska flugfélagið TAP Air tilkynnti í dag að það ætlaði að hefja flug milli Keflavíkurflugvallar og Lissabon á sumaráætlun sinni 2027. Flogið verður þrisvar í viku milli áfangastaðanna frá 1. apríl til 28. október 2027.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Isavia en TAP Air bætist þar með í hóp þeirra 28 flugfélaga sem hafa boðað að þau ætli að fljúga til og frá Leifsstöð næsta sumar.

Í tilkynningu Isavia kemur fram að með tengimiðstöð TAP í Lissabon opnist tengingar fyrir farþega til fjölmargra áfangastaða, þar á meðal Faro og Madeira auk áfangastaða í Afríku og Suður-Ameríku.

TAP stendur fyrir Transportes Aéreos Portugueses og var stofnað sem ríkisrekið flugfélag árið 1945 en var einkavætt 1953. Smátt og smátt jók ríkið þó eignarhlut sinn í félaginu að nýju þar til félagið var síðan aftur einkavætt að fullu árið 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×