Sport

Hyrox stefnir á Ólympíu­leikana

Sindri Sverrisson skrifar
Eitt af því sem keppendur í hyrox þurfa að gera er að bera sandpoka og taka framstig 100 metra.
Eitt af því sem keppendur í hyrox þurfa að gera er að bera sandpoka og taka framstig 100 metra. Getty/Fred Lee

Hyrox þrekraunakeppnin gæti verið á leiðinni á Ólympíuleika og Ólympíumót fatlaðra áður en langt um líður. Stórt skref hefur verið stigið í þá átt.

Hyrox hefur nú hafið samstarf við Alþjóða þríþrautarsambandið sem felur í sér að „blandað hlaup“ (e. hybrid racing), það er að segja hlaupakeppni með þrekæfingum, verður viðurkennd grein undir hatti þríþrautarsambandsins.

Greinin mun svo skiptast í þrjár ólíkar greinar sem allar eiga það sameiginlegt að keppendur þurfa að hlaupa vissa vegalengd en stoppa inn á milli til þess að klára ákveðnar æfingar.

Í yfirlýsingu frá Hyrox og Alþjóða þríþrautarsambandinu segir að markmiðið sé að komast inn á Ólympíuleikana. Aðeins viðurkennd alþjóðleg íþróttasambönd, sem uppfylla öll skilyrði um lyfjaeftirlit og varnir gegn hagræðingu úrslita, geta komið greinum inn á Ólympíuleikana.

„Allt frá upphafi var markmið okkar að byggja upp alþjóðlega íþrótt sem gæti unnið sér sess á stærsta íþróttasviði heims.

Samstarfið við Alþjóða þríþrautarsambandið er risastórt skref í átt að þeirri framtíðarsýn.

Blandað hlaup er ekki lengur aðeins alþjóðleg líkamsræktarhreyfing, hún er nú formlega á leiðinni á Ólympíuleikana,“ segir Christian Toetzke, annar stofnenda Hyrox.

Undirgreinar „blandaðs hlaups“ verða þrjár eins og fyrr segir: „Fullnaðar-“, „hraða-“ og „ofur-blandað hlaup“ (e. ultimate, fast, ultra).

„Fullnaðarhlaupið“ verður eins og hefðbundið hyrox sem skiptist í átta kílómetra hlaup með æfingum eftir hvern kílómetra. Þessar æfingar eru 1 km í skíðavél, 50 metra sleðapressa, 50 metra sleðatog, 80 metra burpees-stökk, 1 km róður, 200 metra ganga með ketilbjöllu, 100 metra framstig með sandpoka og 100 boltaköst í vegg.

„Hraðahlaupið“ mun reyna enn meira á hraða og ákefð og „ofurhlaupið“ verður lengra og reynir enn meira á úthald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×