Formúla 1

„Mér finnst ég vera byggður öðru­vísi“

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton virðist ekki ætla að hætta í bráð í Formúlu 1.
Lewis Hamilton virðist ekki ætla að hætta í bráð í Formúlu 1. Clive Rose/Getty Images

Lewis Hamilton, ökumaður Ferrari, þykir það ekki ólíklegt að hann verði enn í Formúlu 1 þegar afríski kappaksturinn fer fram. Búist er við að kappaksturinn verði ekki fyrr en 2030 eða jafnvel seinna ef kappakstursbrautin í Rúanda verður ekki klár í tæka tíð.

Lewis Hamilton hefur lengi barist fyrir því að Formúla 1 snúi aftur til Afríku þar sem ekki hefur verið keppt þar síðan árið 1993. Hamilton getur þó ekki verið ungur endalaust og árið 2030 verður hann orðinn 45 ára og ekki hafa margir náð þeim aldri í Formúlu 1.

„Íþróttin hefur ekki haft neinn eins og mig í 70 ára sögu [íþróttarinnar], svo mér finnst ég vera byggður öðruvísi,“ sagði Hamilton þegar hann var spurður af Sky Sports hvort hann gæti keppt í afríska kappakstrinum.

„Auðvitað eru áskoranir sem ég get ekki spáð um sem koma með aldrinum. En á vegferðinni sem ég er á hafa margir sagt að viðbragðstíminn lækki með aldrinum. Sástu viðbrögðin mín í síðustu keppni? Ég var með fljótara viðbragð heldur en nokkrir af yngstu ökumönnunum hér.“

Hamilton hefur enn drifkraft og löngun til að vera áfram í Formúlu 1. Á meðan hann heldur honum þá útilokar hann alls ekki að halda áfram. Samningur hans við Ferrari gildir út næsta tímabil en ef Hamilton vill þá getur hann framlengt um eitt ár í viðbót.

Markmið Hamilton er að tryggja Ferrari annað sætið í heimsmeistarakeppni bílasmiða. Þar er liðið með 119 stiga forskot á Red Bull sem er í þriðja sætinu og er því staða liðsins virkilega góð. Heimsmeistarakeppni ökumanna virðist þó vera að renna Hamilton úr greipum þar sem miklar líkur eru á að Mercedes-ökumaðurinn Kimi Antonelli tryggi sér heimsmeistaratitilinn um helgina í Mexíkó. Geri hann það verður Antonelli yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×