Innlent

Frestur til mið­nættis að taka af­stöðu til til­lögu ríkissátta­semjara

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari. Vísir/Anton Brink

Ríkissáttasemjari hefur lagt fram tillögu í virðismatsdeilu kennara og sveitarfélaga. Hafa aðilarnir tíma til miðnættis til að taka afstöðu til tillögunnar en þá rennur út frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningi.

Þetta sagði Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við fréttastofu nú á fimmta tímanum. Ástráður boðaði deiluaðila til fundar skömmu fyrir hádegi í dag en honum lauk um klukkan 16.

Sagði hann að hafi verið boðaður til að ræða þá stöðu sem komin væri upp um óeiningu í virðismatsvinnu. Á fundinum lagði Ástráður fram tillögu um skilmála fyrir framhaldinu og hafa aðilarnir fengið tillöguna í hendur.

Hafa þeir nú frest til miðnættis til að taka afstöðu til hennar en þá rennur út frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningi KÍ og SÍS. Fari svo að það verði virkjað gætu samningar kennara orðið lausið þann 1. mars næstkomandi.

Deilan snýst um vinnuramma vegna virðismats sem unnið hefur verið að síðustu mánuði. Samkvæmt heimildum fréttastofu lögðu stjórnvöld fram tillögu sem er utan þess ramma sem kjarasamningur kveður á um en í samningi var heimild til að fresta mati á vinnunni um allt að sex mánuði.

Magnús Þór Jónsson sagði í viðtali við Vísi í vikunni að kennarar væru ekki tilbúnir að samþykkja lengingu samkomulagsins en í viðtali við Daða Már Kristófersson fjármálaráðherra í gær kom fram að hann teldi ekki að verið væri að víkja frá gildandi samkomulagi.


Tengdar fréttir

Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi

Fjármálaráðherra telur ekki að tillaga stjórnvalda til kennara þýði að vikið sé frá gildandi kjarasamningi. Samningar kennara eru í uppnámi vegna túlkunar á ákvæði um gerð virðismats en náist ekki samkomulag gætu samningar kennara losnað í mars.

Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti

Formaður Kennarasambands Íslands segir óvænt útspil stjórnvalda á þriðjudag hafa sett kjarasamninga kennara í uppnám. Lagt hafi verið til að hvika frá því markmiði sem lengi hafi verið stefnt að nokkrum dögum áður en frestur til að virkja forsenduákvæði í gildandi samningi rynni út. Ef samningsaðilar nái ekki aftur saman fyrir lok laugardags muni kennarar neyðast til að virkja umrætt ákvæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×