Fleiri fréttir

Kynna þarf úrræðin betur

AGS segir að slá þurfi á væntingar um frekari opinberar aðgerðir eða skuldaleiðréttingu vegna fólks í vanda. Stjórnvöld hafa verið of hógvær í að kynna fyrirliggjandi úrræði, segir yfirmaður sendinefndar AGS. Hann segir að efla þurfi fjárfestingu, en árét

Sala á tónlist dregst saman um helming

Sala á erlendri tónlist hefur dregist saman um meira en helming á síðustu árum. Rúmlega 820 þúsund eintök af hljómplötum seldust hér á landi árið 2005 og dróst salan saman um helming á næstu árum en um 420 þúsund eintök seldust á síðasta ári. Ástæðan er ólöglegt niðurhal.

Stjórnvöld lofa Strauss-Kahn að fara ekki í flatar afskriftir

Stjórnvöld útiloka flatar afskriftir á skuldum heimila landsins. Þá verður ekki boðið upp á frekari úrræði til handa skuldugum heimilum. Þetta kemur fram í viljayfirlýsingu forsætisráðherra, fjármálaráðherra, viðskiptaráðherra og seðlabankastjóra til Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Jöfn kynjahlutföll í Landsbankanum

Landsbankinn hefur lokið ráðningu í stöður framkvæmdastjóra í bankanum , en allar stöður þeirra voru auglýstar lausar til umsóknar nýverið. Nálega 300 umsóknir bárust um stöðurnar átta.

AGS: Gengisdómar kosta ríkissjóð rúma 20 milljarða

Ríkið þarf væntanlega að leggja bönkunum til yfir 20 milljarða króna vegna dóms Hæstaréttar um gengistryggð lán. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Í skýrslunni segir að bankarnir hafi ekki búist við að gengistryggð lán yrðu dæmd ólögmæt í Hæstarétti.

Íbúðalánasjóður þarf tugi milljarða

Ríkið þarf að leggja Íbúðalánasjóði til á bilinu 30 til 45 milljarða í lok ársins. Þetta kemur fram í skýrslu sendinefndar AGS. Þar segir að bráðabirgðamat sérfræðinga sýni að Íbúðalánasjóður þurfi framlag upp á 2 til 3% af landsframleiðslu til að eigið fé sjóðsins haldist yfir lágmarkskröfum.

Icesave samkomulag í sjónmáli

Íslensk stjórnvöld hafa tilkynnt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að viðræður við Breta og Hollendinga um lausn Icesave deilunnar hafi verið árangusríkar á síðustu vikum og stefni allt í að samkomulag náist í málinu. Viðræðurnar snúist um á hvaða kjörum endurgreiðsla til breska og hollenska ríkisins vegna lágmarkstryggingar á Icesave innistæðum fari fram.

AGS: Hagvöxtur 3% á næsta ári

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir 3% hagvexti á Íslandi á næsta ári og telur að verðbólga haldi áfram að hjaðna. Spáir sjóðurinn því að tólf mánaða verðbólga verði komin niður fyrir 5% í lok næsta árs. Þetta kemur fram í skýrslu sendinefndar sjóðsins í kjölfar þriðju endurskoðunar á efnahagsáætlun Íslands.

Greining Íslandsbanka segir fjárlagafrumvarpið ekki koma á óvart

Greining Íslandsbanka segir að fjárlagafrumvarp ársins fyrir næsta ár sé í stórum dráttum í takti við það sem búast mátti við. Til þess að tryggja að ríkisfjármálin verði aftur sjálfbær verði farin blönduð leið aukinnar tekjuöflunar og samdráttar í útgjöldum en að þessu sinni verði þó þungi aðgerðanna að mestu á útgjaldahliðinni.

Fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi verst gjaldþroti

Gjaldþrot blasir við Bjarka Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Kaupþingi, nái úrskurður Ríkisskattstjóra um skattlagningu á söluréttasamningum af hlutabréfum í Kaupþingi fram að ganga. Samningana gerði Bjarki þegar að hann starfaði hjá bankanum. Hann hefur stefnt Ríkisskattstjóra vegna málsins og fer aðalmeðferð fram í málinu í dag.

ESA fellir niður mál gegn Reykjavíkurhöfn

ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hefur ákveðið að fella niður kærmál gegn Reykjavíkurhöfn en kæran snérist um hvort höfnin hafi notið ólögmætrar opinberrar aðstoðar.

Íslendingur í Svíþjóð fær ekki sparifé í bílakaup

„Ef þessi upphæð ógnar stöðugleika í gengis- og peningamálum á Íslandi þá er staðan mun verri þarna heima en ég gerði mér grein fyrir. Það er bæði óskiljanlegt og óréttlátt að beiðni minni hafi verið hafnað,“ segir Vilhjálmur Baldursson vélfræðingur, sem búsettur er í Svíþjóð. Hann sótti um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál til Seðlabanka Íslands til að færa hluta af sparifé sínu til Svíþjóðar.

Orkuverð hækkaði um mánaðamótin

Orkuveita Reykjavíkur hækkaði raforkuverð um 11% þann 1. október síðastliðinn eins og boðað hafði verið. Á vef Orkuvaktarinnar kemur fram að Orkubú Vestfjarða hafi einnig hækkað raforkuverð um 5,3%. Þetta er í annað sinn á árinu sem þessir orkusalar hækka verð. Orkubú Vestfjarða býður hagstæðasta verð á almennum orkutaxta samkvæmt tölum Orkustofnunar, betri kjör en Fallorka, HS Orka, Orkusalan og Orkuveita Reykjavíkur.

Atvinnuleysi minnkar um mitt næsta ár

Atvinnuleysi hér á landi mun ekki taka að lækka að marki fyrr en um mitt ár 2011, segir í fjárlagafrumvarpi sem kynnt var fyrir fjölmiðlamönnum á föstudaginn.

Lánastofnanir hundsuðu skilaboð frá FME

Lánastofnanir fóru ekki eftir tilmælum sem Fjármálaeftirlitið sendi þeim í dreifibréfi þann 14. september síðastliðinn um meðferð fjármögnunarleigusamninga þegar greiðsluseðlar voru sendir út nú um mánaðamótin.

Rannsókn SFO á Kaupþingi lýkur fyrir jól

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, mun fljótlega ákveða hvort einhver verður ákærður í Bretlandi vegna falls Kaupþings. Þetta kemur fram á vef breska blaðsins Mail on Sunday.

Kjötvinnslufyrirtæki ná sátt við Samkeppniseftirlitið

Sláturfélag Suðurlands, Reykjagarður og Kaupfélag Skagfirðinga hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið og ætla að aðstoða við rannsókn á samkeppnishömlum á kjötmarkaði. Fyrirtækin greiða samtals 85 milljónir króna í sekt og grípa til ráðstafana sem ætlað er að efla samkeppni.

Metvelta með skuldabréf í Kauphöllini í september

Heildarviðskipti með skuldabréf námu 487 milljörðum kr. í síðasta mánuði sem samsvarar 22,1 milljarða kr. veltu á dag samanborið við 9,6 milljarða kr. veltu á dag í ágúst mánuði. Þetta er veltumesti mánuður ársins og voru viðskipti með skuldabréf í september nálægt því tvöfalt meiri en í þeim mánuði sem næst kemur (júní).

Cintamani í sókn inn á Þýskalandsmarkað

Kristinn Már Gunnarsson kaupsýslumaður í Þýskalandi hefur keypt þriðjungshlut í Sportís ehf., framleiðanda Cintamani útivistarfatnaðarins. Kaup Kristins felast í hlutafjáraukningu sem ætlað er að styðja sókn Cintamani á markaði í Þýskalandi.

Töluverður kippur í sölu fasteigna í borginni

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 24. september til og með 30. september 2010 var 85. Þetta er töluverð uppsveifla í fjölda samninga því þeir hafa verið 63 talsins að meðaltali undanfarna þrjá mánuði.

Afborganir ríkissjóðs af lánum nema 136 milljörðum

Frá áramótum hafa afborganir af lánum ríkissjóðs numið 136,3 milljörðum kr. og eru þar af 72,8 milljarða kr. vegna innlendra skulda, þá einna helst innlausnar ríkisbréfa sem voru með gjalddaga í mars síðastliðnum.

Afkoma ríkissjóðs töluvert betri en gert var ráð fyrir

Afkoma ríkissjóðs á fyrstu átta mánuðum ársins reyndist töluvert betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tekjur reyndust 25,8 milljörðum kr. meiri en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 7,6 milljarða kr. milli ára.

Rio Tinto leggur 16 milljarða til viðbótar í Straumsvík

Rio Tinto Alcan hefur ákveðið að verja 140 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur 16 milljörðum króna, til breytinga á framleiðsluferli álversins í Straumsvík. Í stað barra verða framleiddir svonefndir boltar (sívalar stangir), sem eru verðmætari afurð. Þetta mun skapa 150 ársverk hjá álverinu.

Hægt að ganga strax frá þriðjungi gjaldeyrislána

Viðskipti Sendir verða út greiðsluseðlar eða uppgjör vegna tæplega þriðjungs bílalánasamninga í erlendri mynt nú í byrjun mánaðarins. Bæði Íslandsbanki Fjármögnun og SP fjármögnun hafa lokið endurútreikningi á lánum sem verið hafa með sama greiðanda frá upphafi.

Fjármögnun er veikasti hlekkurinn

„Nærri 99 prósent íslenskra fyrirtækja falla undir skilgreininguna á litlum og meðalstórum fyrirtækjum,“ benti Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra á í ræðu sinni á fjármögnunarráðstefnu Evrópusambandsins (ESB) í Reykjavík í gærmorgun.

Sjá næstu 50 fréttir