Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útlán ÍLS dragast saman um 20% milli ára Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) námu rétt rúmum 3,8 milljörðum króna í september, en þar af voru tæpir 1,9 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrstu níu mánuðum ársins 2010 rúmum 20 milljörðum króna samanborið við rúmlega 24 milljarða á sama tímabili ársins 2009. Þetta er samdráttur upp á 20%. 13.10.2010 10:05
Pólverjar eru 63% útlendinga á atvinnuleysisskrá Alls voru 2.034 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok september á landinu. Þetta eru hátt í 20% af öllum atvinnulausum samkvæmt nýjum tölum Vinnumálastofnunnar. 13.10.2010 09:38
Tæplega 3.000 manns skráðir í sérstök úrræði Alls voru 2.925 skráðir í sérstök úrræði hjá Vinnumálastofnun í september samkvæmt frumúttekt stofnunarinnar. 13.10.2010 09:11
Heildaraflinn hefur minnkað um tæp 10% milli ára Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum septembermánuði, metinn á föstu verði, var 2,2% minni en í september 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 9,9% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði. 13.10.2010 09:02
Óvíst um fjármögnun vatnsfyrirtækis Óvissa ríkir um eignarhald og fjármögnun vatnsátöppunarverksmiðju Iceland Glacier Products á Rifi á Snæfellsnesi. Verksmiðjuhúsið er fokhelt og var dyragötum og gluggum lokað fyrir rétt rúmum mánuði. 13.10.2010 05:00
Gerir kröfur í 39 prósentum uppboða Íbúðalánasjóður á hlutdeild í flestum framhaldsuppboðum heimila, og hefur gert kröfu í ríflega 39 prósent af þeim eignum sem auglýstar hafa verið á framhaldsuppboði það sem af er ári, samkvæmt samantekt miðlunarfyrirtækisins Creditinfo. 13.10.2010 03:15
Töpuðu milljörðum í áhættusömum viðskiptum Tveir lífeyrissjóðir, Lífeyrissjóður verkfræðinga og Almenni lífeyrissjóðurinn, töpuðu milljörðum í áhættusömum viðskiptum rétt fyrir hrun sem kunna að hafa verið ólögleg. Glórulaust fjárhættuspil, segir sjóðsfélagi. 12.10.2010 18:30
GBI vísitalan hækkaði um 0,6% á rólegum degi Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,6% í dag í 8,2 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,7% í 4,6 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,4% í 3,6 milljarða kr. viðskiptum. 12.10.2010 15:58
Ný tæki sett upp í verksmiðju Actavis í Hafnarfirði Ný tæki til lyfjaframleiðslu hafa verið sett upp í stækkaðri lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði. Þetta er stærsta einstaka fjárfestingin við stækkun verksmiðjunnar, en verðmæti tækjanna er yfir 200 milljónir króna. 12.10.2010 15:35
Sala áfengis dróst saman um 4,7% milli ára í september Sala áfengis dróst saman um 4,7% í september miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og jókst um 0,5% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í september 5,2% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 5,4% hærra í september síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. 12.10.2010 15:21
Erlendir aðilar minnka við sig ríkisbréfaeignir Eignarhlutdeild erlendra aðila í ríkisbréfum hefur minnkað þó nokkuð á fyrstu átta mánuðum ársins. Þannig áttu erlendir aðilar 52% útistandandi ríkisbréfa um síðust áramót en í lok ágúst var hlutdeild þeirra komin niður í 42%. 12.10.2010 14:48
Jóhannes hættir við að kaupa tískuverslanir Jóhannes Jónsson hefur fallið frá kaupum á tískuverslunum undir merkjum Zara, Topshop og All Saints sem nú eru reknar af Högum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka en þar segir að þann 30. ágúst hafi verið tilkynnt um samning bankans við Jóhannes um hann myndi kaupa þrjár sérvöruverslanir af Högum, Zara, Topshop og All Saints. „Jóhannes Jónsson hefur nú ákveðið að nýta ekki umsaminn kauprétt og verða því verslanirnar þrjár áfram hluti af Högum,“ segir í tilkynningunni nú. 12.10.2010 14:31
Arion banka heimilt að yfirtaka BM Vallá Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að heimila yfirtöku Arion banka á BM Vallá en eftirlitið segir yfirtökuna fela í sér samruna. Yfirtökunni eru sett ströng skilyrði. 12.10.2010 14:11
Avant fær heimild til nauðasamnings Héraðsdómur Reykjavíkur hefur veitt bráðabirgðastjórn Avant hf. heimild til að leita nauðasamnings við lánardrottna félagsins. Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri Avant segir að rekstur félagsins haldi áfram þrátt fyrir þetta og að starfsfólk Avant muni leiðbeina viðskiptavinum félagsins ef þeir hafa einhverjar spurningar vegna málsins. 12.10.2010 13:26
Vogunarsjóður tapar 900 milljóna kröfu á hendur Glitni Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að hafna beri að taka kröfu vogunarsjóðsins Venor Capital Master Fund á hendur Glitni inn á kröfuskrá þar sem krafan barst of seint. Um er að ræða kröfu upp á 5 milljónir punda eða tæplega 900 milljónir kr. Þá var sjóðnum gert að greiða Glitni 300 þúsund kr. í málskostnað. 12.10.2010 12:48
Atvinnuleysi minnkar áfram, mælist nú 7,1% Skráð atvinnuleysi í september 2010 var 7,1% en að meðaltali 11.547 manns voru atvinnulausir í september og minnkar atvinnuleysi um 0,2 prósentustig frá ágúst, eða um 549 manns að meðaltali. 12.10.2010 12:04
Leigusamningum fjölgar töluvert milli mánaða Heildarfjöldi þinglýstra leigusamninga á landinu var 1.553 í september 2010 og fjölgar þeim um 25,3% frá ágúst 2010 og 2,6% frá september 2009. 12.10.2010 11:59
Icelandtilboð hækkaði verð skuldabréfa Landsbankans Verð á skuldabréfum gamla Landsbankans hefur hækkað í vikunni úr genginu 9 og upp í 11. Þetta þýðir að alþjóðamarkaðurinn telur að nú fáist 11% upp í kröfurnar í þrotabú bankans. Nær öruggt er að fréttin um milljarðs punda tilboð Malcolm Walker í Iceland lágvöruverslunarkeðjuna ráði hér ferðinni. 12.10.2010 11:17
Lækkun á erlendum eignum lífeyrissjóðanna Hrein eign lífeyrissjóða í lok ágúst sl. var 1.827,6 milljarða kr. og lækkaði hún um 6,6 milljarða kr. í mánuðinum. 12.10.2010 08:11
Könnun LÍÚ: Meirihluti vill svokallaða samningaleið Meirihluti kjósenda eða 51,7% vill semja við núverandi handhafa fiskveiðiheimilda um veiðiheimildir gegn gjaldi eins og lagt er til í svokallaðri samningaleið. Þetta er niðurstaða könnunar sem fyrirtækið Markaðs- og miðlarannsóknir, MMR, vann fyrir LÍÚ dagana 5. -8. október sl. 12.10.2010 08:05
Krónum skipt í skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum Í skoðun er að fjárfestar geti skipt krónueignum fyrir skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum. Það yrði gert í útboðum og því framhjá mörkuðunum og ætti því að hafa lágmarksáhrif á markaðina. 12.10.2010 08:01
Íslandsbanki kvartaði til FME vegna hótana slitastjórnar Glitnis Slitastjórn Glitnis hótaði starfsmönnum Íslandsbanka uppsögn ef þeir yrðu ekki samvinnuþýðir við skýrslutöku í yfirheyrsluherbergi slitastjórnarinnar. Málið var rætt innan stjórnar Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitinu tilkynnt um þetta þar sem um ólöglegt athæfi er að ræða. 11.10.2010 18:40
Ívar greiði 12 milljónir í stjórnvaldssekt Eignarhaldsfélagið Ívar ehf. mun greiða 12 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að brjóta gegn banni samkeppnislaga við því að samruni Ívars og Lýsis kom til framkvæmda áður en Samkeppniseftirlitið hafði heimilað hann. 11.10.2010 16:33
365 miðlar töpuðu 344 milljónum í fyrra Fjölmiðlafyrirtækið 365 miðlar ehf. tapaði 344 milljónum kr. á síðasta ári. Samkvæmt efnahagsreikningi nam eigið fé félagsins 773 milljónum kr. í árslok 2009 og eiginfjárhlutfall 9,3%. Þá nam handbært fé félagsins 235 milljónum kr. 11.10.2010 13:24
Einn virtasti hagfræðingur heims telur framtíð evru í uppnámi Joseph Stiglitz, sem er einn virtasti hagfræðingur í heiminum, telur framtíð evrunnar sem sjálfstæðs gjaldmiðils í uppnámi og að hagkerfi ríkja Evrópu verði lengi að koma sér upp úr kreppunni. 11.10.2010 12:09
Hefðu getað lækkað Icesave kröfur verulega Íslensk stjórnvöld hefðu getað takmarkað kröfur vegna Icesave reikninga um tugi ef ekki hundruð milljarða, með frumvarpi til laga sem lá fullbúið í viðskiptaráðuneytinu, í ársbyrjun 2008. Ráðherra þorði hins vegar ekki að leggja frumvarpið fram vegna óróleika á mörkuðum. 11.10.2010 12:00
Bryndís Hrafnkelsdóttir ráðin forstjóri HHÍ Bryndís Hrafnkelsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Happadrættis Háskóla Íslands (HHÍ). 11.10.2010 10:10
Forbes telur vert að fylgjast með Rúnu Magnúsdóttur Rúna Magnúsdóttir, eigandi Connected-Women.com og meðstofnandi BRANDit, komst á lista sem birtur var á heimasíðu viðskiptatímaritsins Forbes yfir tuttugu konur í alþjóðaviðskiptalífinu sem Forbes telur vert að fylgjast með. 11.10.2010 10:00
Boðar endurkomu Íslands á alþjóðlegan skuldabréfamarkað Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að unnið sé að því að undirbúa komu Íslands á alþjóðlegan skuldabréfamarkað. Aðspurður um hvort ríkisstjórnin myndi gefa út skuldabréf á þessu markaði á næstunni svarar Steingrímur því að ...“við erum að undirbúa þetta skref.“ 11.10.2010 08:03
Aldrei reiknað með að 200 milljarðar fengjust Breytir synjun slitastjórnar Sparisjóðabankans á kröfu Seðlabankans einhverju um endanlegt tap Seðlabankans? 11.10.2010 03:15
Skoða skaðabótamál vegna ástarbréfa seðlabankastjóra Sú ákvörðun slitastjórnar Sparisjóðabankans (áður Icebank) að hafna kröfum Seðlabankans í búið vegur þungt í athugun sérstaks starfshóps á því hvort ríkið geti sótt skaðabætur til fyrrverandi seðlabankastjóra vegna fjárhagstjóns sem þeir ollu ríkinu. 11.10.2010 00:01
Bankarnir verða að vera sammála um niðurfærslu skulda Bankarnir munu væntanlega höfða skaðabótamál á hendur ríkinu fari svo að ríkisstjórnin beiti lagasetningu til að knýja á um almenna niðurfærslu skulda. Skaðabótakrafan gæti numið tugum milljarða króna. 10.10.2010 18:29
Þjóðverjar gætu eignast Byr en Íslandsbanki bætist í hóp áhugasamra Ekki er útilokað er þýskur banki verði stærsti hluthafi Byrs, en viðræður um uppgjör á eignum hans hafa tafist. Margir renna hýru auga til Byrs, þar á meðal bankastjóri Landsbankans, sem vill sameina Byr og Landsbankann. Þá hefur Íslandsbanki einnig áhuga. 9.10.2010 18:45
Brynjar Níelsson vill rétta yfir Jóni Ásgeiri og félögum á Íslandi Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags Íslands, lagði fram yfirlýsingu fyrir dómi í New York í dag, þar sem það er rökstutt að málaferlin gegn Jóni Ágeiri Jóhannessyni, og sex öðrum einstaklingum, eigi að fara fram hér landi en ekki í Bandaríkjunum. 9.10.2010 15:49
Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 59 milljarða í september Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 487,2 milljarða kr. í lok september og lækkaði um 59 milljarða kr. milli mánaða. Erlendur gjaldeyrir minnkaði um 58,3 milljarða kr. og aðrar eignir lækkuðu samtals um 761 milljónir kr. í mánuðinum. 9.10.2010 10:13
Öllum hugmyndum tekið fagnandi Verið er að skoða leiðir innan menntamálaráðuneytisins til þess að sporna við ólöglegu niðurhali á tónlist. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að aukin gjöld á nettengingar séu ein þeirra leiða sem verið sé að athuga. 9.10.2010 09:00
1.400 vilja láta endurútreikna Rúmlega 1.400 viðskiptavinir Íslandsbanka Fjármögnunar hafa farið fram á endurútreikning gengisbundinna lána eftir að bankinn opnaði fyrir það síðasta föstudag, að því er fram kemur í tilkynningu bankans. Alls verða rúmlega fimm þúsund lán endurreiknuð í fyrsta áfanga, en hann nær til lána þar sem sami greiðandi hefur verið frá útgáfu þess. Ofgreiðslur er hægt að láta ganga upp í eftirstöðvar láns, eða fá þær lagðar inn á reikning viðskiptavinarins.- óká 9.10.2010 06:00
Gangi ekki að veðum Harry Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, biður bandarískar fjármálastofnanir um að ganga ekki að veðum fólks vegna íbúðalána. Brýnt sé að fólk fái að halda húsnæði sínu ekki síst í ljósi þess að Bank of America hefur ákveðið að ganga ekki að slíkum veðum meðan farið yfir ákveðin vandamál sem komið hafa upp í tengslum við lánin. 8.10.2010 20:34
Skuldatryggingaálag Íslands helst nokkuð stöðugt Skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands er enn nokkuð stöðugt líkt og upp á síðkastið. Í lok dags í gær stóð álagið í 306 punktum (3,06%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni sem er á svipuðu róli og það hefur verið síðustu mánuði. 8.10.2010 12:22
Kröfulýsingarfrestur framlengdur hjá VBS Slitastjórn VBS fjárfestingarbanka hf. hefur ákveðið að framlengja kröfulýsingarfrestinn sem renna átti út þann 14. október 2010 um tæpan mánuð eða til föstudagsins 12. nóvember næstkomandi. Fjármálaeftirlitið skipaði VBS fjárfestingabanka bráðabirgðastjórn. 8.10.2010 11:25
Nýr fjármálastjóri hjá HB Granda Jónas Guðbjörnsson hefur tekið við starfi fjármálastjóra HB Granda. Jóhann Sigurjónsson, fjármálastjóri HB Granda, lætur nú af störfum að eigin ósk. Jóhann hefur verið fjármálastjóri félagsins frá október 2002 og hverfur nú til annarra verkefna. 8.10.2010 08:56
Iceland mun standa undir fjórðungi af Icesave skuldinni Auðvelt er að reikna úr að Iceland verslunarkeðjan ein og sér muni standa undir fjórðungi af Icesave skuld Íslands. 8.10.2010 07:15
Fleira en samspil gjaldmiðla skapar jarðveg fyrir kreppu Horfa þarf til fleiri þátta en gengis gjaldmiðla til að tryggja að ekki verði til jarðvegur fyrir aðra fjármálakreppu á borð við þá sem reið yfir heiminn 2008 og 2009. Þetta kom fram í máli Zhou Xiaochuan, seðlabankastjóra Kína, sem var í heimsókn hér á landi í gær. 8.10.2010 05:00
Rannsókn sérstaks sögð ónýt markleysa Sérstakur saksóknari hafði ekki heimild samkvæmt lögum til að rannsaka málefni Byrs og því ber að vísa svokölluðu Exeter-máli frá dómi. Þetta er samhljóða niðurstaða verjenda sakborninganna þriggja í málinu. 8.10.2010 05:00
Höft eru gróðrarstía lögbrota Seðlabankinn mun á næstu mánuðum ráðfæra sig við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, aðra ráðgjafa og stjórnvöld um endurskoðun á áætlun um afnám gjaldeyrishafta, að sögn Arnórs Sighvatssonar aðstoðarseðlabankastjóra. Hann segir gjaldeyrishöft brengla efnahagslega hvata, leiða til þess að viðskiptatækifæri glatast og vera gróðrarstíu lögbrota. 8.10.2010 02:30