Fleiri fréttir

Stefnir í metafgang af vöruskiptum

Á morgun mun Hagstofan birta tölur um vöruskipti við útlönd á tímabilinu janúar til nóvember 2010. Ef bráðabirgðatölur nóvembermánaðar reynast réttar nemur afgangur af vöruskiptum á þessu tímabili um 109 milljörðum króna. sem jafngildir aukningu upp á 44% á föstu gengi frá sama tímabili árið á undan.

Uppsjávarafli HB Granda 3,4 milljarðar í fyrra

Afli uppsjávarveiðiskipa HB Granda var alls tæplega 96.400 tonn á síðasta ári og aflaverðmætið nam rúmlega 3,4 milljörðum króna. Aflinn dróst saman um tæp 8% frá því á árinu 2009 en þrátt fyrir það jókst aflaverðmætið um 28,3% milli ára.

Dohop semur við ástralskt fyrirtæki

Íslenski ferðavefurinn Dohop hefur gert samning við ástralska fyrirtækið HotelsCombined um rekstur íslenskrar hótelleitar á vef Dohop.

Nýtt fyrirtæki stofnað í heilbrigðisgeiranum

Til þess að mæta þörf fyrir aukna sérhæfingu í sölu og þjónustu á hágæða lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknavörum hefur verið ákveðið að heilbrigðistæknisvið Vistor verði sjálfstætt fyrirtæki, MEDOR ehf.

Íslandsbanki samdi við Seðlabankann um gjaldeyrissölu

Það er Íslandsbanki sem á stærstan hluta að þeirri aukningu á gjaldeyrisforðanum sem Seðlabankinn greindi frá í gær. Íslandsbanki mun selja Seðlabankanum gjaldeyri fyrir 48 milljarða kr. á næstu fimm árum.

Íslendingar henda 10 kílóum af gulli á ári

Auðvelt er að reikna út að Íslendingar hendi um 10 kílóum af gulli á hverju ári. Þetta gerist þegar landsmenn endurnýja farsíma sína. Andvirði þessa gulls, miðað við heimsmarkaðsverð, er um 57 milljónir kr.

Talsverð auknning hjá norrænu kauphöllunum

Viðskipti á mörkuðum NASDAQ OMX Nordic jukust töluvert árið 2010 frá því árinu áður. Dagleg velta hlutabréfa nam að meðaltali um 2,5 milljarða evra (2009: 2,2 milljarðar).

Gjaldeyrisforðinn aukinn um 72,5 milljarða

Seðlabankinn hefur átt í viðamiklum kaupum á gjaldeyri undir lok síðasta árs. Samtals munu þessi kaup styrkja gjaldeyrisforða bankans um 72,5 milljarða kr.

Um 5,4 milljarða viðskipti á skuldabréfamarkaði

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI stóð í stað í dag í 5,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 2,2 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 3,1 ma. viðskiptum.

Krónan styrktist um tæp 12 prósent á árinu

Gengi krónunnar styrktist lítillega í vikunni og lækkaði gengisvísitalan um 0,11% og endaði í 208,04. Á árinu sem var að líða styrktist krónan um 11,9% en gagnvart helstu gjaldmiðlum var breytingin nokkuð misjöfn. Þetta kemur fram í vikulegum markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa.

Þreföld lengd símtala á jóladag

Á jóladag bauð Síminn viðskiptavinum sínum að hringja án endurgjalds úr heimasíma í vini og vandamenn sem búa eða dvelja erlendis. Fólk nýtti sér þennan möguleika vel en símtölum til útlanda í kerfum Símans fjölgaði úr rúmlega 5000 á jóladag 2009 í tæplega 12.000 núna. Fólk talaði einnig miklu lengur en venjulega á jóladag en heildarlengd símtala rúmlega þrefaldaðist á milli ára og var vel yfir 140.000 mínútur.

Sérstakur: Gögnin frá Lúx ættu að skila sér í febrúar

Sérstakur saksóknari segist eiga von á því að fá gögn úr Banque Havilland bankanum í Lúxemborg í febrúar þegar niðurstaða hæstaréttar í Lúxemborg á að liggja fyrir. Embættið telur gögnin hafa grundvallarþýðingu fyrir rannsókn á málefnum Kaupþings.

VBS á borð sérstaks saksóknara

Slitastjórn VBS Fjárfestingarbanka undirbýr það nú að stefna nokkrum málum tengdum viðskiptum bankans fyrir fall hans í fyrra og er líklegt að einhver þeirra lendi á borði sérstaks saksóknara.

Norðmenn og Íslendingar geta sameinast um Jan Mayen

Einn kunnasti olíuráðgjafi Noregs telur að breytingar á íslensku olíuskattkerfinu séu forsenda þess að starfsemi hefjist á Drekasvæðinu og segir að Norðmenn og Íslendingar geti sameinast um að gera Jan Mayen-svæðið aðlaðandi til olíuleitar.

Fréttaárið 2010: Lítið þokaðist í atvinnuuppbyggingu

Lítið þokaðist í atvinnuuppbyggingu á árinu og gekk erfiðlega að koma stórframkvæmdum á koppinn. Árið einkenndist af ósamstöðu í atvinnumál. Samtök atvinnulífsins og ASÍ sögðu sig frá stöðugleikasáttmálunum ári eftir undirritun. Sigríður Mogensen, fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, tók saman helstu fréttir af atvinnumálum og var samantekin sýnd í árlegri Kryddsíld Stöðvar 2 í gær. Hægt er að sjá samantekina hér.

Seðlabankinn samdi vegna fimm sparisjóða

Seðlabanki Íslands hefur lokið samningum um skuldir fimm sparisjóða sem ekki uppfylltu skilyrði um lágmark eigin fjár í kjölfar bankahrunsins. Þeir sparisjóðir sem um ræðir eru Sparisjóður Bolungarvíkur, Sparisjóður Norðfjarðar, Sparisjóður Svarfdæla, Sparisjóður Vestmannaeyja og Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis. Auk þess hafa Sparisjóður Suður-Þingeyinga og Sparisjóður Höfðhverfinga greitt skuldir sínar við Seðlabankann.

Um 8,5 milljarða viðskipti á skuldabréfamarkaði

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,4% í dag í 8,5 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,5% í 3,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 4,8 ma. viðskiptum.

Rannveig Rist hlaut verðlaun Viðskiptablaðsins

Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík, fékk afhent Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins í hádeginu í dag. Það var Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Grillinu á Hótel Sögu. Tilkynnt var um gríðarlega mikil áform um stækkun álversins í haust. Um er að ræða 86 milljarða króna fjárfestingu og um 1300 ársverk á framkvæmdatímanum.

Býst við 10-15% hækkun á flugfargjöldum

Forstjóri Icelandair segir að flugfargjöld geti hækkað um 10 til 15 prósent á næsta ári vegna aukinnar gjaldtöku ríkisins. Skattar og gjöld á fyrirtækið hækki um einn milljarð króna á næsta ári.

Bankasýslan eignast 76% hlut í Sparisjóði Þórshafnar

Bankasýsla ríkisins hefur tekið við 76% eignarhlut í Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis. Fjárhagslegri endurskipulagningu sjóðsins er lokið en Seðlabankinn, Byggðastofnun og Tryggingasjóður sparisjóða tóku þátt í henni. Stofnfjárhlutur Seðlabankans og Byggðastofnunar hefur nú verið framseldur til Bankasýslu ríkisins. Í lok árs 2007 námu eignir sparisjóðsins tæpum þremur milljörðum króna en engir ársreikningar hafa verið birtir eftir það.

Jólaverslun Visa náði hámarki síðustu tvo dagana fyrir jól

Jólaverslun Visa korthafa náði hámarki síðustu tvo dagana fyrir jól eins og undanfarin ár en alls varð rúmlega 5% veltuaukning innanlands nú fyrir jólin ef miðað er við sama tímabil og í fyrra, að sögn Viðars Þorkelssonar forstjóra VALITOR.

Færri fyrirtæki eru stofnuð

Nýstofnuðum fyrirtækjum í landinu hefur fækkað um meira en helming frá góðærisárinu 2007. Samlags- og sameignarfélögum hefur hins vegar fjölgað mikið á árinu vegna breytinga á skattkerfinu.

Eftirspurn eftir hlutum mikil

Stjórn Icelandair hefur ákveðið að samþykkja áskriftir fyrir 1.059.000.000 nýrra hluta sem boðnir voru út í almennu hlutafjárútboði sem lauk 23. desember. Alls bárust 852 áskriftir fyrir samtals 2.855.633.620 bréf, sem er næstum þrefalt það magn sem í boði var.

Hlutur Margeirs í MP þynnist út

Hlutur Margeirs Péturssonar þynnist út og ríkjandi hluthafar verða í minnihluta þegar nýir fjárfestar koma að MP banka, en bankann vantar þrjá milljarða króna til að uppfylla kröfur Fjármálaeftirlitsins. Evrópskir fjárfestar hafa sýnt áhuga á bankanum.

Kampavínssala heldur áfram að hrynja á Íslandi

„Það eru fáar vörutegundir sem hafa hrapað eins og kampavínið. Línuritið sem var á uppleið árið 2007 hefur alveg snúist við,“ segir Bjarni Brandsson, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni.

Íslenskur bjór sífellt vinsælli

„Innlend bjórframleiðsla er almennt að auka markaðshlutdeild sína,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. Á undanförnum árum hafa sprottið upp nýir íslenskir bjórframleiðendur. Þar má meðal annars nefna brugghúsið á Árskógsströnd sem selur meðal annars Kalda og Ölvisholt Brugghús sem framleiðir meðal annars Skjálfta. Sigrún sagði, í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni, að þessi aukna markaðshlutdeild bendi til þess að innlendri bjórframleiðslu hafi reitt ágætlega af

Nýjar valdablokkir munu rísa

Áhrifamiklar valdablokkir hafa verið ráðandi hér með einum eða öðrum hætti um nokkurra áratuga skeið. Segja má að Kolkrabbinn og Smokkfiskurinn, birtingarmyndir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hafi ráðið lögum og lofum jafnt í stjórnmálum sem viðskiptalífi í einni eða annarri mynd allt frá því sjálfstæði frá Dönum árið 1944 var enn volgt og fram yfir einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans árið 2003. Taugin var reyndar enn römm eftir sölu bankanna enda kaupendurnir hliðhollir flokkunum; í tilviki Landsbankans fylgdi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins með í kaupunum auk þess sem fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins tók við Búnaðarbankanum úr höndum flokks­systkina sinna.

Verstu viðskipti ársins: Björgun Sjóvár

Þegar skilanefnd Glitnis tók yfir rekstur trygginga­félagsins Sjóvár kom í ljós að Milestone-bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir höfðu gengið þar svo illa um að félagið uppfyllti ekki lengur skilyrði um gjaldþol. Bóta­sjóðurinn var tómur, í stað fjármuna voru tryggingar bundnar í ótryggum fasteignum í fjarlægum löndum. Félagið var í raun gjaldþrota og vantaði milljarða til að koma rekstrinum á réttan kjöl.

Útlendingar sýna MP banka áhuga

MP banki þarf þrjá milljarða í formi nýs eigin fjár til að uppfylla kröfur FME. Bankinn á núna í viðræðum við þrjá aðskilda fjárfestahópa og eru útlendingar þar á meðal.

Botninum líklegast náð á íbúðamarkaði

Allt bendir nú til þess að botninum á íbúðamarkaði hafi verið náð á þessu ári, segir í Morgunkorni Íslandsbanka. Með því lýkur þriggja ára lægð á íbúðamarkaði, en samdráttur hófst á þessum markaði í ársbyrjun 2008.

Guðný Helga til Íslandsbanka

Guðný Helga Herbertsdóttir, fyrrverandi fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Íslandsbanka. Hún mun bera ábyrgð á samskiptum bankans við fjölmiðla og móta samskiptastefnu bankans útá við, að því er fram kemur í tilkynningu. Þá mun Guðný Helga bera ábyrgð á samfélagsstefnu bankans.

Bankarnir eru með of mikil völd

„Völdin liggja hjá bönkunum, sem hafa leyst til sín mikið af fyrirtækjum. Þar virðast hlutirnir sitja fastir. Það er viðskiptalífinu ekki til framdráttar,“ segir Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá verðbréfafyrirtækinu Auði Capital. Auður Capital rekur fagfjárfestasjóðinn Auði 1, sem keypti fjölda fyrirtækja á árinu sem er að líða. Þar á meðal fjarskiptafyrirtækið Tal, upplýsingaveituna Já, matvöruverslunina Mann lifandi og hlut í Ölgerðinni.

Bestu viðskipti ársins: Icesave-samningarnir

Dómnefnd Markaðarins tilnefndi fimmtán viðskipti sem þau bestu á árinu. Tilnefningarnar voru allt frá viðsnúningi í afkomu, markaðssetningu, kosningasigrum í borgarstjórnarkosningum til umfangs­mikilla samninga sem ekki sér fyrir endann á enn.

Niðurstöðu að vænta í janúar

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka á enn í viðræðum við valda fjárfesta vegna sölunnar á kjölfestuhlut í Högum. Iða Brá Benediktsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, segir að gera megi ráð fyrir að viðræðurnar standi til loka janúar.

Icelandair Group samþykkir áskriftir

Stjórn Icelandair Group hf. ákvað í dag að samþykkja áskriftir fyrir 1.059.000.000 nýrra hluta sem boðnir voru í almennu hlutafjárútboði sem lauk 23. desember sl.. Alls bárust 852 áskriftir fyrir samtals 2.855.633.620 bréfa.

Frumtak kaupir hlut í PM endurvinnslu

Frumtak hefur fest kaup á hlut í PM Endurvinnsla ehf. Félagið einbeitir sér að móttöku plastúrgangs til endurvinnslu, en framleiðslan er síðan seld innanlands og erlendis. Kaupverðið er 100 milljónir króna.

Hafa 60 daga frest til útreikninga á ólögmætum lánum

Frumvarp Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, um gengisbundin lán varð í dag að lögum. Þetta þýðir að lánastofnanir hafa nú 60 daga frest til útreikninga á ólögmætum gengisbundnum bíla- og fasteignveðlánum.

Sjá næstu 50 fréttir