Hitabylgjur gætu orðið sterkari í ár
Alþjóðaveðurfræðistofnunin varar við því að yfirgnæfandi líkur séu á svokölluðum El-Nino skilyrðum á næstu mánuðum. Áhrifin eru misjöfn eftir heimshlutum en geta komið fram í sterkari hitabylgjum, mikilli úrkomu og flóðum á sumum svæðum en þurrkum á öðrum.