Narsarsuaq-flugvöllur dyrnar að hinni fornu norrænu byggð
Flugvöllurinn í Narsarsuaq á Suður-Grænlandi er skammt frá Brattahlíð, landsnámsbæ Eiríks rauða í Eystribyggð. Þar er gróðursælasti hluti Grænlands og hefur flugvöllurinn lengi þjónað sem dyrnar að skoðunarferðum um hina fornu norrænu byggð. Því má kynnast í þætti Flugþjóðarinnar um Grænlandsflugið. Hér er fjögurra mínútna myndskeið.