„Hver heldurðu að fljúgi svona, Ómar?“
„Hver heldurðu að fljúgi svona, Ómar?“ á Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra að hafa spurt eftir að hafa verið farþegi Ómars Ragnarssonar í lendingu á hinum ægilega Suðureyrarflugvelli, sem stóð á syllu ofan þorpsins. Í þættinum Flugþjóðin á Sýn+ rifjar Ómar upp sögur úr fluginu með Þórólfi Magnússyni flugstjóra.