Ísland í dag - „Ég gat ekki labbað í tvo daga eftir á“
Hvað er eiginlega Hyrox? Þessu komst fréttamaður að þegar hann prófaði þetta nýjasta æði á eigin skinni með misjöfnum árangri. Íslendingar virðast flykkjast til útlanda til að taka þátt í Hyrox-keppnum og birta af því fjöldan allan af myndskeiðum og myndum á samfélagsmiðlum. Við ræðum við tvo iðkendur sem tóku þátt í slíkri keppni. Að þeirra sögn gátu þær ekki gengið í tvo daga eftir mótið.