Áratuga afturför í íslenskri kvikmyndagerð
Áratuga afturför í íslenskri kvikmyndagerð og flótti hjá reynsluboltum úr greininni. Svona lýsa formenn fagfélaga í kvikmyndagerð ástandinu í bransanum en aðeins er reiknað með tveimur íslenskum kvikmyndum í fullri lengd á þessu ári og færri erlendum verkefnum en áður.