Landbúnaðarsýningu lauk í Laugardalshöll í dag
Alla helgina hafa bændur og fyrirtæki kynnt fjölbreytni íslensks landbúnaðar og íslenskrar matvælaframleiðslu. Metaðsókn var á sýninguna í gær en á milli fjörutíu og fimmtíu þúsund manns nutu sýningarinnar. Húsfylli var í höllinni í dag þegar myndatökumaður okkar leit við og bragðaði fólk á íslensku kjöti og salati sem skolað var niður með íslenskum drykkjum.