Alexander Petterson með á nýjan leik
Það styttist í Evrópumót karlalandsliða í handbolta. Leikmenn sem spila með erlendum liðum eru að týnast til landsins og sumir þeirra voru mættir á æfingu í dag. Alexander Petterson er með á nýjan leik en hann á að baki 173 leiki með landsliðinu.