Baldur klárlega opinn fyrir því að snúa aftur til Íslands
Körfuboltaþjálfarinn Baldur Þór Ragnarsson, sem starfar sem þjálfari hjá þýska liðinu Ratiopharm í Ulm, segir endurkomu í íslenska boltann klárlega vera valmöguleika fyrir sig. Baldur hefur verið orðaður við þjálfarastöður hjá nokkrum íslenskum liðum undanfarið.