Stokkið í eldinn — SÁTAN 2025

Á sjálfan Slayer-daginn, föstudaginn 6. júní , var Stokkið í eldinn í þráðbeinni frá Narfeyrarstofu í Stykkishólmi þar sem þungarokkshátíðin Sátan fer fram um helgina. Smári Tarfur og Kiddi Crowley voru umvafðir glæsilegum rokkurum og fulltrúar Duft og The Vintage Caravan litu við og ræddu málin. Forsprakki Sátunnar — Gísli Sigmundsson — sagði okkur frá gangi mála á hátíðinni og lék við hvurn sinn fingur eins og honum einum er lagi-ð . Þá var söguleg upptaka, sem sameinar Sororicide, Death og Vestfirði — frumflutt á heimsvísu. Ó, lof sé þér, heilaga Sátan.

18
2:02:17

Vinsælt í flokknum Stokkið í eldinn