Einar og Baldur farnir að setja strípur í ígrædda hárið
Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason eru nú farnir að setja strípur í nýja hárið sitt sem þeir fengi ígrætt í Istanbúl og hefur það vakið gríðarlega athygli. Og nú eru þeir farnir að klippa hárið og lita eftir nýjustu tísku. En hverjar eru nýjustu klippingarnar og greiðslurnar hjá karlmönnum í dag? Hárgreiðslumeistarinn Róbert O´Neill á hárgreiðslustofunni Rauðhettu og úlfinum er alltaf með puttann á púlsinum og sýnir okkur nýja hártísku hjá karlmönnunum og þar kemur meðal annars hinn gríðarlega vinsæli útvarpsmaður og Idol stjarna Guðjón Smári Smárason við sögu með sína skemmtilegu klippingu. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og kannaði málið.