Ísland í dag - Heldur niðri ein­kennum Parkin­sons með styrktar­æfingum

Dagskrárgerðarmaðurinn vinsæli á Bylgjunni, Kristófer Helgason greindist með Parkinsons-veikina fyrir tveimur árum. En hann hefur fundið ýmsar leiðir til að halda niðri einkennum veikinnar. Ásamt lyfjum hefur Kristófer meðal annars notað hreyfingu sína sem þjálfari í gríðarlega vinsælum ketilbjöllunámskeiðum í World Class til þess að slá á einkennin og einnig passar hann upp á hollt mataræði og heldur streitu í lágmarki. Hann segist finna mikinn mun á líðan sinni í hvert sinn sem hann hreyfir sig og tekur á því með styrktaræfingum. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og ræddi við Kristófer og einnig fyrrverandi samstarfskonu hans í Reykjavík síðdegis þáttunum á Bylgjunni Þórdísi Valsdóttur sem nú er aðstoðarkona dómsmálaráðherra. En Þórdís er dugleg að mæta í ketilbjöllu tímana hjá Kristófer.

1393
11:47

Vinsælt í flokknum Ísland í dag