Kvöldfréttir Stöðvar 2: Vilja að fólk fái að ákveða sjálft að deyja

Ingrid Kuhlman er einn stofnfélaga félagsins Lífsvirðing, sem stofnað verður síðar í janúar. Ingrid, sem er íslensk, átti hollenskan föður sem dó með aðstoð lækna. Dánaraðstoð er þegar sjúklingur óskar eftir aðstoð frá lækni við að deyja. Megintilgangur Lífsvirðingar er að samþykkt verði löggjöf á Íslandi um dánaraðstoð. Af því tilefni er hollenskur læknir staddur á landinu sem hefur barist fyrir sjálfsákvörðunarrétti fólks þegar kemur að dauðanum Ingrid kveðst sátt við ákvörðun föður síns og segir fjölskylduna alla sama sinnis. Þannig hafi hann fengið að kveðja, segja allt sem segja þurfti, rifja upp góðar minningar og kveðja svo með reisn. Nánari umfjöllun um málið verður í kvöldfréttum Stöðvar 2, sem hefjast að vanda á slaginu 18.30.

1564
00:34

Vinsælt í flokknum Fréttir