Flóknar meirihlutaviðræður

Flókið gæti reynst að mynda meirihluta í Reykjavík miðað við nýjustu kosningaspá Vísis. Fylgið í borginni hefur verið á nokkru flugi þegar rúm vika er til kosninga og fulltrúar flokkanna á þönum við að kynna sína stefnu, hitta kjósendur og afla fylgis. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aukið fylgi sitt undanfarið og mælist nú með sjö borgarfulltrúa. Samfylkingin hefur gefið eftir, mælist með fimm fulltrúa, og þar á eftir mælast Vinstrið og Viðreisn með þrjá borgarfulltrúa hvor flokkur. Miðflokkur mælist með tvo borgarfulltrúa en Framsókn, Sósíalistar og Píratar með einn fulltrúa hver.

317
07:44

Vinsælt í flokknum Fréttir