Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu Héraðssaksóknari fer fram á þriggja til tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu svokallaða. Reiknað er með því að málflutningi í málinu ljúki á morgun og því má vænta dóms í málinu innan fjögurra vikna frá morgundeginum. Innlent 27.8.2026 16:13
Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Lögreglumaður sem handtók Andra Má Mortensen Birgisson, sakborning í Reykholtsmálinu, segir að hann hafi verið yfirvegaður þegar hann var handtekinn vegna Reykholtsmálsins. Vitnaleiðslur aðalmeðferðarinnar héldu áfram í dag. Innlent 24.8.2026 15:51
Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Heilbrigðisstarfsfólk bar vitni í dag við aðalmeðferð Reykholtsmálsins. Sálfræðingur segir brotaþola með einkenni áfallastreituröskunar. Tannlæknir og læknir staðfestu hluta áverkanna, þar á meðal tvíbrotinn kjálka og brotnar tennur. Innlent 24.8.2026 12:52
Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein sex ákærðra í Reykholtsmálinu, játaði fyrir dómara að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Hún neitar því að hafa tekið þátt í ofbeldi. Ingunn brast í grát þegar hún játaði. Innlent 19. ágúst 2026 09:15
Virtist taugaóstyrkur og brast í grát „Hann var mjög taugaóstyrkur,“ segir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir fréttamaður er hún lýsir fasi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag en hann er meðal sakborninga í Reykholtsmálinu. Á einum tímapunkti hafi hann brostið í grát þegar hann talaði um eiginkonu sína. Innlent 18. ágúst 2026 22:31
Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur „Ég er saklaus af öllum ákæruliðum. Ég beitti engu ófbeldi né hótaði þolanda.“ Þetta voru fyrstu orð Sigurðar Gunnars Ágeirssonar við skýrslutöku í Reykholtsmálinu. Hann mundi eftir fæstu og vildi ekki tjá sig um neitt sem varðaði dóttur hans, sem er ein af ákærðu. Innlent 18. ágúst 2026 16:26
Hafi aldrei farið í Reykholt Halldór Logi Sigurðsson, einn af sex ákærðu í Reykholtsmálinu, segist aldrei hafa komið á heimili brotaþola í Reykholti heldur hafi annar maður farið með. Hann gaf skýrslu fyrir dómara í morgun. Innlent 18. ágúst 2026 13:41
Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Níels Pálmar Benediktsson, einn ákærðra í Reykholtsmálinu, gaf skýrslu fyrir dómara í dag. Hann hafi einungis komið upphaflega í því skyni að lána bíl en neitar að hafa sent skilaboð þar sem lagt er á ráðin um hótanir um barnaklám. Innlent 18. ágúst 2026 11:06
Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Hlutfall erlendra ríkisborgara með búsetu á Íslandi er hæst í Mýrdalshrepp, eða 68,7 prósent. Þar á eftir koma Skaftárhreppur með 47,3 prósent, Bláskógabyggð með 40,1 prósent og Ásahreppur með 38,3 prósent. Innlent 18. ágúst 2026 10:25
Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram í dag. Þrír sakborningar fara fyrir dómara í dag. Innlent 18. ágúst 2026 08:59
Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Fyrsti morguninn í aðalmeðferð Reykholtsmálsins fór í að hlusta á upptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar. Þar heyrðist hann segja við félaga sinn að hann væri „í miðri frelsissviptingu“ og leggur á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður. Innlent 17. ágúst 2026 13:24
Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024. Innlent 17. ágúst 2026 07:35
Þrír handteknir á Þingvöllum Þrír voru handteknir af lögreglunni á Suðurlandi grunaðir um vasaþjófnað á Þingvöllum. Þar með bætist í hóp grunaðra vasaþjófa. Innlent 10. ágúst 2026 12:26
„Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Eigandi bústaðarins sem brann til kaldra kola við Þingvallavatn segir það hafa verið mikið áfall að ekki geta gert neitt til að sporna við logunum nema horft á. Logarnir voru það fljótir að breiða úr sér að ekki gafst tími nema til að hlaupa og sækja börnin. Innlent 2. ágúst 2026 18:12
Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Eldur kviknaði í sumarhúsi í Miðfellslandi við Þingvallavatn og varð húsið alelda þegar slökkvilið kom á staðinn. Fjöldi fólks fylgdist með slökkvistarfinu en útkallið barst á tíunda tímanum. Innlent 1. ágúst 2026 22:52
Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Eldur kviknaði í sumarhúsi við Þingvallavatn á laugardagskvöld og varð húsið fljótt alelda. Greiðlega gekk að ná niðurlögum eldsins og var slökkvistarfi lokið um eittleytið í nótt. Húsið er talið gjöreyðilagt. Innlent 1. ágúst 2026 21:57
Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Í hverri viku berast tugir tilkynninga um vasaþjófnað við ferðamannastaði og verulegar fjárhæðir eru oft undir að sögn lögreglu. Sex voru handteknir á Suðurlandi í gær og ferðaþjónustuaðilar við Seljalandsfoss segja þjófnað daglegan atburð við fossinn. Innlent 30. júlí 2026 20:00
Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Skjálftinn við Nesjavelli sem reið yfir eftir miðnætti í gær fannst í Grundarfirði og í Búðardal. Litlir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið en þegar leið á nóttina fór að róast á jarðskjálftamælunum. Innlent 27. júlí 2026 07:55
Stór skjálfti á Nesjavöllum Skjálfti að stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli klukkan tuttugu og fimm mínútur í eitt í nótt. Innlent 27. júlí 2026 00:40
Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Íbúi á Laugarvatni brýnir fyrir eigendum hunda að tilkynna þá þegar þeir týnast í sveit sem borg. Þeir beri ábyrgð á að koma dýrum sínum ekki í aðstæður eins og sköpuðust á Lyngdalsheiði. Að minnsta kosti ein kind er illa særð og óttast að fleiri hafi orðið illa úti. Innlent 22. júlí 2026 11:43
Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga hefur krafist þess að Sýslumaður á Suðurlandi leggi lögbann á ólögmætar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá þar sem hún mætir Hvítá. Ef sýslumaður skirrist við að sinna því mun réttaróvissuna um allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins skapast. Innlent 17. júlí 2026 13:12
Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, ritar harðorða grein á Vísi þar sem hún rekur flókna deilu sem á sér stað um veiði í Iðu, sem er ósasvæði Stóru-Laxár og Hvítár. Deilurnar eru harðar og meðal þess sem fram kemur í grein Estherar er að Finnur Harðarson, leigutaki Stóru-Laxár, hafi mátt þola líflátshótanir og líkamsárás. Finnur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra. Innlent 9. júlí 2026 15:00
Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Um klukkan fimm í morgun voru björgunarsveitir ræstar út vegna ungs manns sem skilaði sér ekki til baka úr ferð um uppsveitir Suðurlands. Maðurinn hafði haldið af stað í gærkvöldi einsamall og meðal annars ætlað sér að klífa fjöll. Innlent 4. júlí 2026 12:30
Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Lögregla á Suðurlandi handtók um nýliðna helgi mann í Reykholti vegna ræktunar kannabis. Innlent 29. júní 2026 14:47
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent