Gunnar áfram þjálfari ÍR Gunnar Sverrisson mun halda áfram þjálfun meistaraflokks ÍR í körfubolta á næsta tímabili. Þetta kemur fram á vefsíðunni karfan.is. Körfubolti 17. apríl 2010 21:37
Pálmi þekkir ekkert annað en að vinna Snæfell-KR seríu Snæfellingurinn Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoraði eina af stærstu körfunum á lokamínútum oddaleiks KR og Snæfells í DHL-höllinni í gær þegar hann kom sínum mönnum í 84-80. Pálmi var langhæstur í plús og mínus í einvíginu. Körfubolti 16. apríl 2010 16:45
Enginn skorað meira en Sigurður í svona leik í tólf ár Sigurður Þorvaldsson fór á kostum í sigri Snæfells á KR í oddaleik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deild karla í DHl-höllinni í gær. Sigurður skoraði 28 stig í leiknum sem er það mesta sem Íslendingur hefur skorað í oddaleik um sæti í lokaúrslitum síðan árið 1998. Körfubolti 16. apríl 2010 15:45
Bandaríkjamaður tekur við KFÍ Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar hefur samið við bandaríska þjálfarann Bob Jerome Aldridge um að taka við þjálfun liðsins. KFÍ vann sér inn sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Körfubolti 16. apríl 2010 11:11
Snæfellingar sendu meistarana í sumarfrí - myndasyrpa Snæfellingar unnu í gær þriðja leikinn í röð í DHL-höll þeirra KR-inga og tryggðu sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn á móti Keflavík. Snæfell var nærri búið að missa niður 20 stiga forustu í lokaleikhlutanum en hélt út og fagnaði sigri. Körfubolti 16. apríl 2010 09:00
Hlynur: Sólin skín ekki endalaust „Að vinna KR hérna þriðja skiptið í röð í alveg hreint fáranlegri stemningu er svo sannarlega með því sætara," sagði Snæfellingurinn Hlynur Bæringsson eftir magnaðan sigur Snæfells á KR í kvöld. „Það voru forréttindi að fá að taka þátt í þessum leik því stemningin var lygileg." Körfubolti 15. apríl 2010 21:54
Pavel hefur áhuga á að vera áfram hjá KR Leikstjórnandinn Pavel Ermolinskij hefur staðið sig afar vel með KR allt frá því félagið fékk hann til liðsins er lítið var eftir af deildarkeppninni. Hann hefur nánast vaxið með hverjum leik en tilkoma hans dugði KR þó ekki til þess að fara alla leið að þessu sinni. Körfubolti 15. apríl 2010 21:46
Páll hættur að þjálfa KR Páll Kolbeinsson stýrði KR í síðasta skipti í kvöld er KR tapaði fyrir Snæfell í oddaleik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 15. apríl 2010 21:41
Umfjöllun: Úti er best Snæfell er komið í lokaúrslit Iceland Express-deildar karla eftir sigur á KR í rafmögnuðum oddaleik liðanna í DHL-höllinni í Vesturbænum. Lokatölur 83-93 fyrir Snæfell. Körfubolti 15. apríl 2010 21:00
Rífandi stemning í DHL-höllinni Þó svo það séu enn rúmar 45 mínútur í stórleik KR og Snæfells í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla er þegar komin mikil stemning í húsið. Körfubolti 15. apríl 2010 18:27
Valur Ingimundarson til í slaginn „Nú er í ég kominn í góðan gír og langar aftur í körfuboltaþjálfun, tilbúnari en nokkru sinni fyrr," segir Valur Ingimundarson í samtali við vef Víkurfrétta. Körfubolti 15. apríl 2010 16:45
Friðrik Ragnarsson: Hlynur Bæringsson er X-faktorinn KR og Snæfell leika í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta. Vísir fékk Friðrik Ragnarsson, fráfarandi þjálfara Grindavíkur til þess að spá í leik kvöldsins sem hefst klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 15. apríl 2010 15:30
Benedikt: Ég held að KR-liðið eigi meira inni KR og Snæfell leika í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta. Vísir fékk Benedikt Guðmundsson, þjálfara Íslandmeistara kvenna hjá KR til þess að spá í leik kvöldsins sem hefst klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 15. apríl 2010 14:30
Teitur Örlygsson: Ég held að Nonni komi til baka í þessum leik KR og Snæfell leika í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta. Vísir fékk Teit Örlygsson, þjálfara Stjörnunnar til þess að spá í leik kvöldsins sem hefst klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 15. apríl 2010 13:00
Pétur Ingvarsson: Snæfell græðir á því ef þetta fer út í slagsmál KR og Snæfell leika í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta. Vísir fékk Pétur Ingvarsson, þjálfara Hauka til þess að spá í leik kvöldsins sem hefst klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 15. apríl 2010 11:30
Bárður: Ætli þetta ráðist ekki bara á síðasta skotinu í leiknum KR og Snæfell leika í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta. Vísir fékk Bárð Eyþórsson, þjálfara Fjölnis til þess að spá í leik kvöldsins sem hefst klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 15. apríl 2010 10:00
Óþarfi að kalla dómarana fæðingarhálfvita Aðalstjórn Snæfells leggur mikið upp úr því að stuðningsmenn félagsins sýni af sér mikla háttvísi á leikjum félagsins og sendi af því tilefni frá sér tilkynningu á dögunum. Körfubolti 14. apríl 2010 22:30
Gunnar Einarsson: Við erum klárlega að toppa á réttum tíma Keflvíkingurinn Gunnar Einarsson fór fyrir sínu liði í 89-83 sigra í Njarðvík í kvöld og 12 stig og 5 fráköst segja minnst um framlag hans í leiknum. Barátta Gunnars var engu lík og hann var á eftir öllum lausum boltum í þessum leik. Keflavík sló Njarðvík því út 3-1 og er komið í lokaúrslitin á móti annaðhvort KR eða Snæfell. Körfubolti 13. apríl 2010 22:56
Guðjón Skúlason: Mikið afrek að koma hingað og vinna tvisvar Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, var kátur eftir að hans menn slógu nágrannana í Njarðvík út úr úrslitakeppninni með 89-83 sigri í Ljónagryfjunni í kvöld. Keflavík vann þar með undanúrslitaeinvígi liðanna 3-1 og er komið í lokaúrslitin á móti annaðhvort KR eða Snæfell. Körfubolti 13. apríl 2010 22:46
Sigurður: Liðið sem vinnur okkur það hlýtur að vinna Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkinga, sá sína menn detta út úr úrslitakeppninni í kvöld eftir 83-89 tap á heimavelli á móti nágrönnunum úr Njarðvík. Keflvík vann þar með undanúrslitaeinvígi liðanna 3-1 og er komið í lokaúrslitin á móti annaðhvort KR eða Snæfell. Körfubolti 13. apríl 2010 18:20
Hörður Axel: Það er enginn búinn að tala um okkur í allan vetur Hörður Axel Vilhjálmsson átti flottan leik í vörn og sókn þegar Keflavík tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn eftir 89-83 sigur á nágrönnum úr Njarðvík í kvöld. Keflavík vann einvígið 3-1 og báða leikina sem liðið spilaði í Ljónagryfju Njarðvíkinga. Körfubolti 13. apríl 2010 18:19
Keflavík í lokaúrslitin eftir sex stiga sigur í Ljónagryfjunni Keflvíkingar eru komnir í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn í sjötta sinn á síðustu níu árum eftir sex stiga sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík, 89-83 í Ljónagryfjunni í kvöld. Keflavík vann einvígið þar með 3-1 og mætir annaðhvort KR eða Snæfelli í úrslitunum. Körfubolti 13. apríl 2010 18:19
Fjórir Keflvíkingar í sérflokki í plús og mínus í einvíginu á móti Njarðvík Fjórir leikmenn Keflavíkurliðsins eru í algjörum sérflokki þegar kemur að plús og mínus tölfræðinni í fyrstu þremur leikjum Keflavíkur og Njarðvíkur í undanúrslitaeinvígi nágrannanna í Iceland Express deild karla. Körfubolti 13. apríl 2010 17:45
Hörður Axel með hæsta framlagið í einvíginu - Gunnar skorar mest Keflvíkingar eiga þá þrjá leikmenn sem hafa skilað mestu í framlagi til sinna liða í fyrstu þremur leikjum Keflavíkur og Njarðvíkur í undanúrslitaeinvígi nágrannanna í Iceland Express deild karla. Fjórði leikurinn fer fram í Njarðvík klukkan 19.15 í kvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 13. apríl 2010 16:45
Nick og Magnús hafa unnið alla upp á líf og dauða leiki saman Njarðvíkingarnir Nick Bradford og Magnús Þór Gunnarsson hafa ekki enn ekki tapað saman einvígi í úrslitakeppninni en þeir eru upp við vegginn fræga í kvöld ásamt félögum sínum úr Njarðvíkurliðinu í annað skiptið á þremur dögum. Fjórði leikurinn fer fram í Njarðvík klukkan 19.15 í kvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 13. apríl 2010 15:45
Hlynur: Það var mjög lélegt hjá okkur að tapa þessu Hlynur Bæringsson var ekki sáttur með eigin frammistöðu í tapinu á móti KR í fjórða leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Iceland Express deild karla í Hólminum í kvöld. KR vann leikinn 76-72 en Snæfell hafði komist í lokaúrslitin með sigri. Körfubolti 12. apríl 2010 22:40
Ingi Þór: Við ætlum að búa til sögu Ingi Þór Steinþórson, þjálfari Snæfells, sá sína menn tapa þriðja heimaleiknum á stuttum tíma fyrir KR og mistakast að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandmeistaratitilinn. KR vann 76-74 og því verður oddaleikur í DHL-höll þeirra KR-inga á fimmtudagskvöldið. Körfubolti 12. apríl 2010 22:31
Páll Kolbeinsson: Ekki fallegur körfubolti heldur bara blóðug barátta Páll Kolbeinsson, þjálfari KR var sáttur eftir frábæran baráttusigur sinna manna í Stykkishólmi í kvöld en þetta var þriðji sigur liðsins í Fjárhúsinu í Hólminum á síðustu fjórum vikum. Körfubolti 12. apríl 2010 22:03
KR-ingar unnu baráttusigur í Hólminum og tryggðu sér oddaleik KR-ingar tryggðu sér í kvöld oddaleik á móti Snæfelli í baráttu liðanna um sæti í lokaúrslitunum í Iceland Express deild karla eftir fjögurra stiga sigur, 72-76, eftir ótrúlega stöðu- og varnarbaráttu tveggja öflugra liða í Stykkishólmi. Körfubolti 12. apríl 2010 19:59
Gott fyrir liðin að hafa Pálma og Finn inn á velllinum Snæfell og KR mætast í kvöld í fjórða leik liðanna í undanúrslitunum Iceland Express deildar karla en Snæfell getur, tryggt sér sæti í lokaúrslitunum og sent Íslandsmeistarana í sumarfrí, með sigri. Körfubolti 12. apríl 2010 17:45