Allt eftir bókinni í kvöld Fjórir leikir voru háðir í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld og þá var einn leikur í kvennaflokki. Segja má að úrslit kvöldsins hafi verið nokkuð eftir bókinni, en toppliðin unnu sigur í sínum leikjum. Körfubolti 8. nóvember 2006 21:30
Stórt tap hjá Keflvíkingum Keflvíkingar töpuðu fyrsta leik sínum í Áskorendakeppni Evrópu í körfubolta 107-74 gegn Mlekana Kurin frá Tékklandi ytra í kvöld. Tékkneska liðið er mjög sterkt og því var við ramman reip að draga fyrir Keflvíkinga, sem auk þess voru án Magnúsar Gunnarssonar sem var að eignast sitt fyrsta barn með konu sinni. Körfubolti 8. nóvember 2006 18:27
Mikið fjör á öllum vígstöðvum í kvöld Það verður mikið um að vera í körfuboltanum í kvöld. Karlalið Keflavíkur spilar sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni á útivelli gegn tékkneska liðinu Mlekarna Kunin og þá eru fjórir leikir í úrvalsdeild karla og einn í efstu deild kvenna. Körfubolti 8. nóvember 2006 15:23
Snæfell skellti Íslandsmeisturunum Njarðvíkingar töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar þeir heimsóttu Snæfell í kvöld. Heimamenn unnu fyllilega verðskuldaðan 88-70 sigur og komust þar með upp fyrir Njarðvík í efsta sæti deildarinnar. Keflavík er komið upp í þriðja sæti eftir stóran sigur á ÍR í kvöld, 95-72. Körfubolti 5. nóvember 2006 21:06
Skallagrímur lagði Fjölni Skallagrímsmenn úr Borgarnesi gerðu góða ferð í Grafarvoginn í kvöld og unnu 94-80 sigur á Fjölni í úrvalsdeild karla í körfubolta. Hamar/Selfoss lagði Tindastól 82-78 í Hveragerði og nældi þar með í sinn fyrsta sigur í deildinni. Einn leikur var í efstu deild kvenna og þar vann Grindavík auðveldan 80-60 sigur á Breiðablik í Kópavogi. Körfubolti 3. nóvember 2006 21:28
Þrír leikir í kvöld Tveir leikir fara fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Hamar tekur á móti Tindastóli í Hveragerði og Fjölnir tekur á móti Skallagrími í Grafarvogi. Í kvennaflokki mætast Breiðablik og ÍR í Kópavogi og verður sá leikur sýndur beint á netinu á heimasíðu Blika. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 í kvöld. Körfubolti 3. nóvember 2006 15:21
Íslandsmeistararnir höfðu betur í toppslagnum Íslandsmeistarar Njarðvíkur eru eina taplausa liðið í úrvalsdeild karla í körfubolta eftir leiki kvöldsins en liðið lagði granna sína frá Grindavík í einvígi taplausu liðanna í kvöld 76-73. Körfubolti 2. nóvember 2006 21:18
Stórleikur í Njarðvík í kvöld Fjórir leikir eru á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld og hefjast þeir allir klukkan 19:15 að venju. Stórleikur kvöldsins er viðureign grannliðanna Njarðvíkur og Grindavíkur í Njarðvík, en hvorugt liðanna hefur tapað leik til þessa í deildarkeppninni. Körfubolti 2. nóvember 2006 15:59
Dregið í 32 liða úrslitin í dag Í dag varð ljóst hvaða lið mætast í 32 liða úrslitum bikarkeppni Lýsingar í körfubolta í karlaflokki. Þrjár úrvalsdeildarviðureignir líta dagsins ljós strax í þessari umferð, þar sem UMFG mætir Snæfelli, KR mætir Haukum og þá eigast við ÍR og Njarðvík. Leikirnir fara fram dagana 24.-26. nóvember. Körfubolti 1. nóvember 2006 17:30
Nemanja Sovic bestur í 3. umferð Framherjinn Nemanja Sovic hjá Fjölni var í dag útnefndur leikmaður 3. umferðar í úrvalsdeild karla í körfubolta samkvæmt frammistöðuformúlu á tölfræðivef KKÍ. Sovic fékk 44 stig fyrir frammistöðu sína gegn Keflavík á dögunum þar sem hann skoraði 35 stig, hirti 11 fráköst og hitti mjög vel úr skotum sínum í sigri Fjölnis. Körfubolti 29. október 2006 18:30
Fimm leikir í kvöld Fimm leikir eru á dagskrá í körfuboltanum hér heima í kvöld. Fjórir leikir eru hjá körlunum og einn í kvennaflokki þar sem Íslandsmeistarar Hauka taka á móti nýliðum Hamars/Selfoss. Sá leikur hefst klukkan 19:15 eins og raunar allir leikir kvöldsins. Körfubolti 29. október 2006 17:36
Tindastóll lagði ÍR Lið Tindastóls gerði góða ferð í Breiðholtið í kvöld og lagði ÍR 93-78 í úrvalsdeild karla í körfubolta. Lamar Karim skoraði 29 stig og Svavar Birgisson 19 fyrir Stólana, en LaMar Owen skoraði 30 stig og Ólafur Sigurðsson 14 fyrir ÍR. Þetta var annar sigur nýliða Tindastóls í deildinni í þremur leikjum. Þá vann Fjölnir góðan sigur á Keflavík á heimavelli 110-108 eftir framlengdan leik. Körfubolti 27. október 2006 20:47
Tindastóll yfir í Seljaskóla Tindastóll hefur góða 54-41 forystu gegn ÍR þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í úrvalsdeildinni sem fram fer í Seljaskóla. Lamar Karim hefur skoraði 18 stig fyrir Tindastól og Svavar Birgisson 12, en hjá ÍR er LMar Owen kominn með 15 stig og Ólafur Sigurðsson 12. Í hinum leik kvöldsins höfðu Fjölnismenn yfir 33-24 forystu gegn Keflavík þegar síðast fréttist. Körfubolti 27. október 2006 20:05
Tveir leikir í kvöld Tveir síðustu leikirnir í þriðju umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta fara fram í kvöld. Fjölnir tekur á móti Keflavík í Grafarvogi og ÍR tekur á móti Tindastól í Seljaskóla. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15. Körfubolti 27. október 2006 17:20
George Byrd í Hamar Miðherjinn George Byrd sem lék við góðan orðstír með Skallagrími í Borgarnesi á síðustu leiktíð, gengur í raðir Hamars/Selfoss um helgina. Þetta kemur fram á vefsíðunni Karfan.is í gærkvöld. Byrd verður Hamarsmönnum eflaust mikill styrkur, en hann fær það hlutverk að fylla skarð Lewis Monroe sem var látinn fara frá liðinu á dögunum. Körfubolti 27. október 2006 15:20
Skallagrímur lagði KR Skallagrímur úr Borgarnesi gerði góða ferð í höfuðborgina í kvöld þegar liðið færði KR fyrsta tap sitt í úrvalsdeildinni með 88-81 sigri. Gestirnir höfðu undirtökin lengst af leik og unnu verðskuldaðan sigur. Körfubolti 26. október 2006 20:43
Enn leiðir Skallagrímur Skallagrímur úr Borgarnesi hefur enn forystu gegn KR þegar þremur leikhlutum er lokið í aðalleik kvöldsins í úrvalsdeild karla. KR-ingar náðu að jafna metin þegar skammt var eftir af þriðja leikhlutanum, en góð rispa Borgnesinga tryggði þeim 63-55 forystu fyrir lokaleikhlutann. Körfubolti 26. október 2006 20:21
Skallagrímur yfir í hálfleik Skallagrímsmenn hafa yfir 44-35 gegn KR þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í úrvalsdeild karla í DHL höllinni. Gestirnir hafa verið með frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn og þar er Darryl Flake atkvæðamestur með 14 stig. Körfubolti 26. október 2006 19:51
Skallagrímur leiðir Skallagrímur hefur yfir 20-13 gegn KR að loknum fyrsta leikhluta í viðureign liðanna í úrvalsdeild karla í körfubolta, en leikið er í vesturbænum. Gestirnir hafa verið mun betri framan af leik og ætla greinilega að velgja KR-ingum undir uggum. Körfubolti 26. október 2006 19:31
Steven Thomas leikmaður 2. umferðar Bandaríkjamaðurinn Steven Thomas var besti leikmaður 2. umferðar úrvalsdeildar karla í körfubolta samkvæmt töfræðigrunni KKÍ. Thomas fór mikinn í leik gegn Haukum á dögunum, skoraði 24 stig, hirti 23 fráköst og varði 4 skot - en þessi tölfræði skilaði honum 43 stigum fyrir frammistöðuna á leikvarpinu hjá KKÍ. Körfubolti 26. október 2006 17:45
Stórleikur í vesturbænum í kvöld Í kvöld hefst þriðja umferðin í úrvalsdeild karla í körfubolta með fjórum leikjum. Stórleikur kvöldsins verður án efa viðureign KR og Skallagríms í DHL höllinni. Njarðvík tekur á móti Hamri í Njarðvík, Haukar mæta Snæfelli og Þór Þorlákshöfn fær Grindavík í heimsókn. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 og fylgst verður með gangi mála hér á Vísi. Körfubolti 26. október 2006 17:07
Mikil spenna í fyrstu umferðunum Það er óhætt að segja að fyrstu tvær umferðirnar í úrvalsdeild karla í körfubolta lofi góðu um framhaldið í vetur, því aldrei áður hefur verið eins mikil spenna á jafnmörgum vígstöðvum eftir tvær umferðir á miðað við núverandi keppnisfyrirkomulag. Körfubolti 26. október 2006 15:58
Öruggur sigur hjá KR-ingum KR-ingar gerðu góða ferð í Reykjanesbæ í gær og báru sigurorð af Keflvíkingum, 81-90. Keflvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti en KR-ingar sigu framúr og stóðu að lokum uppi sem öruggir sigurvegarar. Körfubolti 24. október 2006 06:00
KR lagði Snæfell í hörkuleik KR byrjaði leiktíðina með sigri í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið lagði Snæfell á heimavelli sínum 83-79. Heimamenn voru yfir nær allan leikinn, en gestirnir komust yfir þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka. Þá fékk Hlynur Bæringsson sína fimmtu villu og eftir það gengu KR-ingar á lagið og höfðu sigur. Körfubolti 20. október 2006 21:34
Tveir stórleikir í kvöld Fyrsta umferðin í úrvalsdeild karla í körfubolta klárast í kvöld þegar tveir stórleikir verða á dagskrá. Grannarnir Hamar/Selfoss og Þór eigast þá við í Þorlákshöfn og í DHL Höllinni mætast KR og Snæfell. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15 og rétt er að hvetja alla til að mæta á völlinn, enda verður eflaust hart barist á báðum vígstöðvum. Körfubolti 20. október 2006 17:28
Suðurnesjaliðin unnu leiki sína Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í kvöld. Suðurnesjaliðin unnu öll fyrstu leiki sína og þá unnu Haukar afar nauman sigur á nýliðum Tindastóls í Hafnarfirði. Körfubolti 19. október 2006 21:44
Deildarkeppnin hefst í kvöld með fjórum leikjum Keppni í úrvalsdeild karla í körfubolta hefst með látum í kvöld þegar fjórir leikir eru á dagskrá og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Íslandsmeistarar Njarðvíkur hefja titilvörnina í Seljaskóla gegn ÍR, Keflavík tekur á móti Skallagrími, Fjölnir fær Grindavík í heimsókn og þá taka Haukar á móti Tindastól. Körfubolti 19. október 2006 18:31
Keflavík lagði Skallagrím í spennandi leik Fyrsta umferð Iceland Express deildarinnar hófst í gær þegar Keflvíkingar mættu Skallagrímsmönnum í íþróttahúsinu við sunnubraut en báðum liðum hefur verið spáð góðu gengi í vetur. Leikurinn var jafn og æsispennandi allan tímann og fór í framlengingu en lyktaði með naumum sigri Keflvíkinga 87-84. Körfubolti 19. október 2006 05:00
Íslandsmeistararnir verja titla sína Í dag var haldinn árlegur blaðamannafundur fyrir upphaf leiks í úrvalsdeildum karla og kvenna í körfubolta og þar spá þjálfarar og fyrirliðar allra liða í deildunum í spilin fyrir komandi leiktíð venju samkvæmt. Njarðvík og Haukar munu verja titla sína ef marka má spár í dag. Sport 17. október 2006 17:44
Páll Axel safnaði mestu fé Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson safnaði mestu fé allra í gær þegar fram fóru úrslitaleikirnir í meistarakeppni KKÍ, en Iceland Express og Lýsing borguðu ákveðnar peningaupphæðir fyrir hverja troðslu og 3ja stiga körfu sem skoruð var í leiknum og rann upphæðin til heyrnadaufra barna. Körfubolti 16. október 2006 21:45