Bíblíulesturinn kveikti heldur betur í Ara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2010 15:45 Ari Gylfason. Mynd/Heimasíða KFÍ
Ari Gylfason átti frábæra frumraun með KFÍ í Lengjubikarnum í gær en hann skoraði þá 25 stig á 29 mínútum í sínum fyrsta opinbera leik með Ísafjarðarliðinu og hjálpaði KFÍ-liðinu að vinna óvæntan tólf stiga sigur á Stjörnunni í Garðabæ, 108-96. Ari hitti úr 8 af 10 skotum sínum þar af 6 af 8 þriggja stiga skotum sínum og KFÍ-liðið vann þær 29 mínútur sem hann spilaði með 19 stigum. Ari náði greinilega vel saman við leikstjórnandann Craig Schoen sem var með 14 stig og 9 stoðsendingar í leiknum. Ari var í viðtali við heimasíðu KFÍ eftir leikinn. „Það voru ekki margir sem töldu okkur tilbúna í þetta verkefni en við ákváðum að berjast sem ein heild, eða eins og ég segi sem fjölskylda" sagði Ari Gylfason en það var óvenjulegur undirbúningur sem átti mikinn þátt í hversu heitur hann varð í Ásgarði í gær. „Það sem hjálpaði mér var að lesa upphátt úr biblíunni í 40 mínútur" sagði Ari í viðtali við KFÍ-síðuna og segir jafnframt að hann ætli sér að endurtaka lesturinn fyrir næsta leik sem verður á móti KR í átta liða úrslitum keppninnar á sunnudagskvöldið. Ari endaði tímabilið í fyrra hjá Þór Þorlákshöfn eftir að hafa fengið lítil tækifæri hjá FSu en hann er frá Selfossi og er sonur Gylfa Þorkelssonar sem lék á árunum áður með Val, ÍR og Keflavík.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Fótbolti Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Fótbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn Fleiri fréttir NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic „Þegar liðsfélagar þínir hafa trú á þér þá kemur sjálfstraustið“ Stjarnan kláraði Ármann snemma en Stólarnir stóðu í Keflavík Sjá meira