Sjáðu mörkin sem fengu stuðningsmenn Tottenham til að fara í hálfleik Tottenham er aðeins einu stigi frá fallsæti eftir tap á heimavelli á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi. Nú má sjá mörkin úr leiknum inni á Vísi. Enski boltinn 6.3.2026 08:02
Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti Þrátt fyrir að hafa komist yfir gegn Crystal Palace í kvöld endaði Tottenham á að tapa 3-1 og er aðeins stigi frá fallsæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Enski boltinn 5.3.2026 19:31
Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær og nú má sjá mörkin úr þessum leikjum inni á Vísi en Manchester United, Arsenal, Fulham og Brighton unnu öll 2-1 heimasigra. Enski boltinn 2.3.2026 09:00
Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Enski boltinn 12.2.2026 08:48
Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Chelsea sótti 3-0 sigur á útivelli gegn Crystal Palace á Selhurst Park í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Ungstirnið Estevao kom að fyrstu tveimur mörkunum, Enzo Fernandez skoraði svo úr vítaspyrnu áður en tíu heimamenn minnkuðu óvænt muninn. Enski boltinn 25. janúar 2026 13:31
Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Stjórnarformaður Crystal Palace, Steve Parish, var undrandi og reiður vegna ummæla knattspyrnustjóra liðsins, Olivers Glasner, í viðtali eftir leikinn gegn Sunderland í gær og íhugar að reka hann. Enski boltinn 18. janúar 2026 11:32
Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Oliver Glasner, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace er allt annað en sáttur við forráðamenn félagsins og lét óánægju sína í ljós í viðtali eftir tap gegn Sunderland í dag. Enski boltinn 17. janúar 2026 19:50
Dagar Frank hjá Tottenham taldir? West Ham United vann Lundúnaslag dagsins í ensku úrvalsdeildinni gegn Tottenham í leik sem gæti markað endalok stjóratíðar Thomas Frank hjá Tottenham. Lokatölur 2-1 sigur West Ham. Enski boltinn 17. janúar 2026 17:03
Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Oliver Glasner knattspyrnustjóri Crystal Palace hefur nú gefið það út að hann verður ekki áfram með Lundúnaliðið. Enski boltinn 16. janúar 2026 14:30
Utandeildarlið henti meisturunum úr keppni Utandeildarlið Macclesfield gerði sér lítið fyrir og sló bikarmeistara Crystal Palace úr leik í ensku bikarkeppninni í fótbolta. Enski boltinn 10. janúar 2026 14:12
Stjóri Palace heimspekilegur í svörum um sölu á Guéhi til Man. City Oliver Glasner, knattspyrnustjóri Crystal Palace, viðurkenndi líka að fyrirliðinn Marc Guéhi gæti farið til Manchester City í þessum mánuði ef rétt verð fæst fyrir hann. Enski boltinn 7. janúar 2026 12:30
Segir rugl að ætla að ræða United „Það er ekkert vit í því“ fyrir Oliver Glasner, þjálfara Crystal Palace, að ræða laust þjálfarastarf Manchester United, að hans sögn. Enski boltinn 6. janúar 2026 23:31
Gvardiol þarf að fara í aðgerð og City horfir til Guéhi Varnarmaður Manchester City, Josko Gvardiol, þarf að fara í aðgerð eftir að hafa fótbrotnað í leiknum gegn Chelsea. Enski boltinn 6. janúar 2026 09:30
Brassinn var áfram í stuði þegar Brentford afgreiddi Everton Brentford vann sannfærandi útisigur á Everton í Bítlaborginni í kvöld og er komið upp í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Newcastle vann Crystal Palace fyrir norðan. Enski boltinn 4. janúar 2026 16:59
Brennan Johnson er orðinn leikmaður Crystal Palace Velski knattspyrnumaðurinn Brennan Johnson verður að öllum líkindum í leikmannahópi Crystal Palace á sunnudag eftir að félagaskipti framherjans frá Tottenham fyrir metfé, 35 milljónir punda, gengu í gegn á föstudag. Enski boltinn 2. janúar 2026 18:03
Sjáðu mörkin sem voru skoruð á nýársdag Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær en þremur þeirra leik með markalausum jafnteflum. Crystal Palace og Fulham gerðu líka jafntefli en komu boltanum allavega í netið. Enski boltinn 2. janúar 2026 09:30
Færir sig um set í Lundúnum Brennan Johnson mun gangast undir læknisskoðun hjá Crystal Palace í dag og kveðja Tottenham, sem samþykkti 35 milljóna punda tilboð í velska framherjann. Enski boltinn 2. janúar 2026 09:00
Fyrsta mark Mateta í langan tíma dugði ekki Palace til að taka öll stigin Crystal Palace og Fulham byrjuðu nýtt ár með að gera 1-1 jafntefli í hörku Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni á Selhurst Park í dag. Enski boltinn 1. janúar 2026 19:29
Sjáðu Mateta skora fyrsta mark ársins 2026 Jean-Philippe Mateta skoraði fyrsta mark ensku úrvalsdeildarinnar árið 2026. Enski boltinn 1. janúar 2026 18:17
Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Átjándu umferð ensku úrvalsdeildarinnar lauk í gær með tveimur leikjum. Dominic Calvert-Lewin heldur áfram að skora fyrir Leeds United á meðan fyrsta mark Archies Gray fyrir Tottenham reyndist gulls ígildi. Enski boltinn 29. desember 2025 08:34
Gray hetja Tottenham Tottenham vann 1-0 útisigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni síðdegis. Skotinn ungi Archie Gray var hetja gestanna. Enski boltinn 28. desember 2025 18:25
Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Hver á besta jólamark sögunnar í ensku úrvalsdeildinni? Þau tíu bestu eru hreinlega stórfengleg. Enski boltinn 25. desember 2025 11:02
Arsenal í undanúrslit eftir vító Arsenal vann afar torsóttan en sanngjarnan sigur á Crystal Palace í vítaspyrnukeppni, eftir 1-1 jafntefli, í lokaleik 8-liða úrslita enska deildabikarsins í fótbolta í kvöld. Arsenal mætir því Chelsea í undanúrslitum keppninnar. Enski boltinn 23. desember 2025 21:43
„Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Það styttist í það að leikmannaglugginn opni á ný í byrjun næsta mánaðar og Sunnudagsmessan var með augun á hvaða leikmenn gætu komist í eitt af bestu liðum ensku úrvalsdeildarinnar í janúarglugganum. Enski boltinn 22. desember 2025 10:00
Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Sænskir framherjar reimuðu á sig markaskóna í ensku úrvalsdeildinni í gær þar sem að breyting varð á toppi deildarinnar, en ekki lengi. Liverpool heldur áfram á sigurbraut, Wolves eru enn versta lið deildarinnar og Haaland heldur áfram að raða inn mörkum. Enski boltinn 21. desember 2025 09:03