

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Skipverjarnir ákærðir
Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn hafa verið ákærðir vegna árekstur skipsins og strandveiðibátsins Höddu HF við Garðskaga um miðjan maí.

Gæti reynst erfitt að senda Kourani úr landi
Það gæti reynst erfitt að brottvísa Mohamad Kourani úr landi fái hann ekki framlengingu um alþjóðlega vernd hér á landi. Kourani hefur hlotið dóm hér á landi fyrir fjölda hegningarlagabrota, og bíður dóms í máli sem varðar meðal annars stunguárás í OK Market í Valshverfinu í Reykjavík í mars á þessu ári.

Skvetti þvagi á fangaverði og maki saur á veggi
Mohamed Kourani hefur gert fangavörðum á Litla-Hrauni lífið leitt síðan hann var færður þangað úr fangelsinu á Hólmsheiði. Heimildir Vísis herma að hann hafi beitt hinum ýmsu bellibrögðum gegn fangavörðum, meðal annars að skvetta á þá þvagi, hrækja á þá og skvetta á þá sjóðandi vatni. Þá hafi hann makað saur á veggi klefa síns.

„Þessi viðbúnaður er meira varúðarráðstöfun fyrir hann sjálfan“
Mikill viðbúnaður er nú á Litla-Hrauni vegna Mohamads Kourani, fanga með langa afbrotasögu sem bíður nú dómsuppkvaðningar fyrir stunguárás, að sögn formanns Afstöðu. Hann segir um að ræða veikan mann sem ekki eigi heima í fangelsi heldur á sjúkrastofnun. Afstaða hyggst vitja fangans í fangelsinu síðar í vikunni.

Nýr verjandi Quang Le segir búið að dæma skjólstæðing sinn
Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður hefur tekið við máli Quang Lé og er nú verjandi hans. Sveinn segir skjólstæðing sinn grátt leikinn, og enginn Íslendingur hefði mátt þola annað eins.

Blóðugur hnífur fannst á heimili hins grunaða
Blóðugur hnífur fannst á heimili karlmanns á fimmtugsaldri sem hefur verið ákærður fyrir tilefnislausa stunguárás í janúar á þessu ári. Maðurinn neitar sök, en samkvæmt niðurstöðum sérfræðinga er hann talinn sakhæfur.

Læknirinn sem varð fyrir árásinni ætlar lengra með málið
Heimilislæknir sem varð fyrir árás sjúklings á heilsugæslu í Reykjavík en fær ekki bætur frá ríkinu vegna málsins hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis.

„Ég þekki líka kolruglaða menn og ég læt drepa þig“
Karlmaður á fertugsaldri hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum fyrir að hafa haft í ítrekuðum hótunum við lögreglumenn á ellefu mánaða tímabili.

Myndband með jólalagi lykilsönnunargagn í fíkniefnamáli
Adam Benito Pedie hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot. Hann var ákærður fyrir að standa í innflutningi á fíkniefnum til Íslands í lok síðasta árs og upphafi þessa árs.

Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið
Karlmaður hefur hlotið átján mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness, en þar af verða fimmtán mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára, vegna fjölda brota gegn konu og börnum.

Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir skaðabótamál fyrrverandi eigenda Brúneggja á hendur Ríkisútvarpinu og Matvælastofnun. Málið varðar umfjöllun Kastljóss 28. nóvember 2016 um dýrahald og eggjaframleiðslu Brúneggja ehf.

Taka fyrir nauðgun á táningsstúlku vegna vinnubragða Landsréttar
Hæstiréttur mun taka fyrir mál Inga Vals Davíðssonar, Ólafsfirðings á fertugsaldri, sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Landsrétti í apríl síðastliðnum fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar síns.

Dæmdar tæplega fimmtíu milljónir fjórtán árum eftir handtökuna
Guðmundur Gunnlaugsson lagði íslenska ríkið í gær sem þarf að greiða honum 47,8 milljónir króna í bætur vegna handtöku og gæsluvarðhalds sem hann sætti árið 2010. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, en 26,3 milljónir sem Guðmundur hefur þegar fengið í bætur verða dregnar frá bótaupphæðinni.

Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás og stórfelld brot í nánu sambandi, en meint brot mannsins beindust að unnustu hans. Honum er gefið að sök að hafa endurtekið og á sérstaklega sársaukafullan hátt ógnað lífi og heilsu konunnar með andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum.

Fimmtán mánaða skilorð fyrir vörslu barnaníðsefnis
Karlmaður um fimmtugt var á dögunum dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft í vörslu sinni ljósmyndir og myndskeið sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, og fyrir að hafa dreift slíku myndefni til ótilgreindra aðila í gegn um spjallhópa á netinu.

Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni
Þjóðkirkjan er skaðabótaskyld gagnvart Kristni Jens Sigurþórssyni, fyrrverandi presti í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, en prestakallið var lagt niður árið 2019. Í kjölfarið bauð biskup Kristni að taka við nýju embætti sem hann þáði nokkru síðar, en svo tilkynnti Þjóðkrikjan að það boð hefði fallið niður.

Slæleg vinnubrögð álagi og tímapressu að kenna
Páll E. Winkel fangelsismálastjóri harmar úrskurð dómsmálaráðuneytisins þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að verulegir ágallar séu á inntökuferli í fangavarðanám. Stjórnendur fangelsanna, yfirmenn umsækjenda, hafi metið andlegt og líkamlegt heilbrigði umsækjenda sem fengu ekki boð í viðtal.

Kolbeinn fer ekki fyrir Landsrétt
Sýknudómi Kolbeins Sigþórssonar, fyrrverandi landsliðsmanns í fótbolta, verður ekki áfrýjað til Landsréttar.

Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi
Saksóknari krefst þess að Mohamad Kourani frá Sýrlandi verði dæmdur í sex til átta ára fangelsi fyrir hnífsstunguárás í OK Market í mars og fjölda annarra brota. Kourani neitar alfarið sök þótt stunguárásin sé til á upptöku.

Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu
Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfum heimilislæknis sem varð fyrir árás sjúklings á meðan hann var í vinnunni.

Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök
Endurupptökudómur hefur fyrirskipað að mál Sigurðar Kristins Árnasonar verði tekið upp að nýju að kröfu Ríkissaksóknara. Sigurður Kristinn var í desember síðastliðnum dæmdur til fjórtán mánaða fangelsisvistar. Þar af voru fimm mánuðir óskilorðsbundnir, sem er bannað.

„Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“
Tveir menn sem urðu fyrir stunguárás í OK Market í Valshverfinu í Reykjavík í mars á þessu ári segjast vissir um að Mohamad Kourani hafi framið árásina, en hann er ákærður í málinu.

„Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“
„Ég kann ekki að gera árás með hníf. Ég er ekki ógnandi maður. Ég er bara venjulegur maður. Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál,“ sagði Mohamad Kourani fyrir dómi í dag en hann er meðal annars grunaður um að stinga tvo menn í OK Market í Valshverfinu í Reykjavík í mars á þessu ári.

Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á
Karlmaður á Akranesi hefur verið ákærður fyrir fjölda grófra kynferðisbrota gegn andlega fatlaðri konu. Hann er einnig ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn syni konunnar og annarri konu. Þau eru bæði andlega fötluð. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa nauðgað konunni og neytt son hennar til þess að fylgjast með.

Albert ákærður fyrir kynferðisbrot
Ákæra hefur verið gefin út á hendur Alberti Guðmundssyni, landsliðsmanni í knattspyrnu, fyrir kynferðisbrot.

Guðmundur Elís í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun
Guðmundur Elís Briem Sigurvinsson hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað í Vestmannaeyjum í september árið 2021. Hann hefur áður komist í kast við lögin vegna grófs ofbeldis.

Hörður Ellert dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur sinni
Hörður Ellert Ólafsson, frumkvöðull og ljósmyndari, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar. Þegar stúlkan var níu til tólf ára braut hann margítrekað gegn henni, meðal annars með því að láta hana veita honum munnmök. Hann fékk síma stúlkunnar afhentan hjá lögreglu á meðan málið var til rannsóknar og fékk nálgunarbann á föður hennar um tíma.

Í gíslingu Ríkislögmanns, samtryggingar og spillingar
Þú átt ekki sjens ef ríkið, „kerfið“, brýtur á þér. Það er hin einfalda staðreynd málsins.

Á sér engar málsbætur vegna hrottafenginna brota gegn eiginkonu
Landsréttur staðfesti í dag átta ára fangelsisrefsingu Heiðars Arnar Vilhjálmssonar vegna grófra brota gegn eiginkonu hans. Þó að Landsréttur hafi staðfest refsinguna sem Héraðsdómur Reykjaness lagði upp með sýknar Landsréttur hann fyrir brot sem Héraðsdómur hafði sakfellt hann fyrir.

Hvorugt þeirra man eftir slysinu
Karlmaður hlaut í dag þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til eins árs, í Héraðsdómi Norðurlands eystra vegna ofsaaksturs í Öxnadal í byrjun nóvember árið 2020, en bíll mannsins endaði utan vegar. Ökumaðurinn og kona sem var farþegi í bílnum slösuðust, en hvorugt þeirra man eftir slysinu.