Krónan vill rúman milljarð króna í bætur frá ríkinu Krónan fer fram á ríflega milljarð króna í bætur frá íslenska ríkinu út af meintum hagnaðarmissi á árunum 2015 til 2018 af völdum innflutningshamla sem brutu gegn EES-samningnum. Málið á sér langan aðdraganda og varðar innflutning á fersku kjöti, eggjum og mjólkurvörum. Viðskipti innlent 20. júlí 2021 16:37
Hjalti Úrsus heldur því fram að lögregla ljúgi til um blóðprufu í máli sonar hans Hjalti Úrsus Árnason segir að vænta megi skaðabótakröfu á hendur íslenska ríkinu af áður óþekktri stærðargráðu í hliðstæðum málum. Innlent 20. júlí 2021 12:53
Dæmdur nauðgari í sex mánaða gæsluvarðhald vegna almannahagsmuna Joshua Ikechukwu Mogbolu, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði vegna gruns um nauðgun, hefur verið úrskurðaður í sex mánaða gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Innlent 20. júlí 2021 11:13
Ferðaskrifstofa Íslands dæmd til að endurgreiða skíðaferð vegna Covid-19 Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á dögunum að stórfjölskyldu hafi verið heimilt að afpanta skíðaferð til Madonna Di Campiglio á Ítalíu með dagsfyrirvara. Ferðaskrifstofan var dæmd til að endurgreiða 2,6 milljónir króna. Um er að ræða þrjú dómsmál sem rekin voru samhliða. Innlent 20. júlí 2021 10:12
Maðurinn sem flúði land grunaður um manndráp kominn aftur til Íslands Rúmenskur karlmaður sem braut farbann og flúði land á dögunum er kominn aftur til landsins. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið Daníel Eiríkssyni að bana og var í farbanni til 1. september. Innlent 19. júlí 2021 17:03
Rás 2 ekki með Ingó á sérstökum bannlista Útvarpskonan Heiða, sem sér um Næturvakt Rásar 2 þar sem tekið er á móti óskalögum hlustenda, kom sér hjá því að spila lög með Ingólfi Þórarinssyni um helgina þó óskir um það lægju fyrir. Innlent 19. júlí 2021 15:33
Áttmenningar ákærðir fyrir milljónasvik á Ábyrgðasjóði Sjö karlmenn og ein kona eru ákærð fyrir að hafa með ólögmætum hætti haft fjármuni af Ábyrgðarsjóði launa. Talið er að heildarávinningur af brotunum nemi um sautján milljónum króna. Fólkið er ýmist ákært fyrir brotin eða hlutdeild í þeim. Á meðal hinna ákærðu eru feðgar og mæðgin. Innlent 19. júlí 2021 11:38
Hafði upp á stærstum hluta þýfisins af sjálfsdáðum Gunnar Sean Eggertsson, vélfræðingur á Patreksfirði, dó ekki ráðalaus þegar BMW Alpina B-10 bíll hans frá árinu 1991 var strípaður í upphafi árs. Hann lagðist í mikla rannsóknarvinnu sem varð til þess að hann endurheimti stóran hluta þýfisins þótt þjófurinn hafi bíllykilinn enn í sínum fórum. Kom hann lögreglu á snoðir um það sem virkar sem umfangsmikinn þjófnað og útflutning á þýfi. Innlent 17. júlí 2021 07:01
Dánarvottorð eiginmanns og stjúpdætra talin fölsuð Víetnömsk kona sem fullyrðir að eiginmaður og tvær stjúpdætur hennar hafi látist í hörmulegu slysi í Víetnam árið 2010 fær ekki dánarbætur frá tveimur íslenskum tryggingafélögum. Dánarvottorð sem framvísað var vegna málsins eru talin fölsuð. Héraðsdómur telur ekki sannað að eiginmaðurinn og stjúpdæturnar hafi látist í umræddu slysi. Innlent 15. júlí 2021 09:28
Segir framferði Ingó sérkennilegt og að blaðið standi við fréttina Ritstjóri Fréttablaðsins segir framferði Ingólfs Þórarinssonar, sem hefur krafið blaðamenn um miskabætur og afsökunarbeiðni vegna ummæla um hann, sérkennilegt. Blaðið standi við fréttina. Innlent 14. júlí 2021 18:08
Grunaður um manndráp en komst úr landi á nýju vegabréfi Til stendur að gefa út evrópska handtökuskipun vegna rúmensks karlmanns sem flúði land á dögunum þrátt fyrir að vera í farbanni grunaður um manndráp. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögreglu vita hvar maðurinn er niðurkominn en talið er að hann hafi orðið sér út um nýtt vegabréf og þannig komist út landi. Innlent 14. júlí 2021 11:51
Tekinn með 27 kíló af grasi og 53 lítra af gambra Karlmaður nokkur hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn var tekinn með mikið magn maríjúana, kannabisstangla, plöntur og tæpt kíló af amfetamíni. Þá bruggaði maðurinn sömuleiðis gambra. Innlent 13. júlí 2021 13:45
4,5 ár í fangelsi fyrir að nauðga konum fyrir sunnan og norðan Joshua Ikechukwu Mogbolu hefur verið dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir endurteknar nauðganir árið 2020. Innlent 9. júlí 2021 16:51
Endurtekið tekinn á amfetamíni undir stýri Ólafur Gottskálksson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aka endurtekið undir áhrifum fíkniefna og þjófnað. Ólafur hefur um árabil glímt við fíkniefnadjöfulinn en hann var bæði afreksmaður í körfubolta og fótbolta á sínum tíma. Innlent 9. júlí 2021 11:08
Illvígar nágrannaerjur: 200 þúsund í miskabætur og athugasemdir fjarlægðar Karlmaður á áttræðisaldri var í dag dæmdur til að greiða nágranna sínum, sem tvívegis hefur setið sem varamaður í hreppsnefnd Kjósahrepps og setið í skipulags- og bygginganefnd hreppsins, 200 þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla sem hann lét falla um nágrannann á samfélagsmiðlum og í kommentakerfum. Innlent 8. júlí 2021 12:07
Aldraður sjómaður lagði VÍS í héraðsdómi Vátryggingarfélag Íslands hefur verið dæmt til að greiða 71 árs sjómanni bætur úr slysatryggingu sjómanna, sem KG Fiskverkun ehf. var með hjá tryggingarfélaginu. Innlent 6. júlí 2021 18:38
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárásir, fíkniefnalagabrot og ofbeldi gegn maka Karlmaður var í gær dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ítrekaðar líkamsárásir, ítrekuð fíkniefnalagabrot og brot í nánu sambandi gegn þáverandi eiginkonu sinni. Maðurinn var ákærður í sjö liðum í málinu og sakfelldur fyrir flest þau brot sem hann var ákærður fyrir. Innlent 6. júlí 2021 13:00
Ákærð fyrir að svipta barnsföður umsjá yfir börnum þeirra Kona nokkur hefur verið ákærð fyrir sifskaparbrot með því að hafa á tveggja ára tímabili svipt barnsföður sinn valdi og umsjá yfir tveimur börnum þeirra. Málið er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjaness þar sem það var þingfest á föstudaginn. Innlent 5. júlí 2021 12:45
Martraðarnágrannar hafa valdið ónæði í mörg ár Kaupandi íbúðar í þriggja hæða fjölbýlishúsi á Seltjarnarnesi hefði líklega aldrei keypt hana ef seljendur hefðu sagt henni alla söguna af nágrönnum hennar. Kaupandinn vill ekki koma fram undir nafni af ótta við nágranna sína. Þá hefur hún áhyggjur af börnum sem búa í húsinu. Innlent 3. júlí 2021 21:21
Einn af fimm í fangelsi vegna hrottalegrar frelsissviptingar Fimm karlmenn á aldursbilinu 20 til 38 ára hafa fengið dóm meðal annars fyrir frelsissviptingu og líkamsárás á Akureyri í febrúar 2018. Fjórir af fimm fengu skilorðsbundna dóma en þyngsti dómurinn var 22 mánaða fangelsi. Innlent 3. júlí 2021 07:01
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl Mohamed Hicham Rahmi var á miðvikudag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var dæmdur fyrir að hafa í desember á síðasta ári staðið að skipulagningu og fjármögnun á innflutningi 4.832,5 gramma af hassi, 5.087 stykkjum af MDMA, 100 stykkjum af LSD og 255,84 grömmum af metamfetamíni til landsins. Innlent 2. júlí 2021 20:58
„Erfitt að mæta í vinnu ef maður fær ekki borgað“ „Fyrir mér hefði þetta mál aldrei átt að þurfa að fara alla þessa leið. Rétt skal hins vegar vera rétt,“ segir Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, eftir að hafa unnið mál sitt gegn KR vegna ítrekaðra vanefnda á samningi. Körfubolti 2. júlí 2021 13:01
Ekki nóg að nágranni sé leiðinlegur Ung kona þarf ekki að greiða lokagreiðslu af íbúð sem hún keypti þar sem hún var metin gölluð í Hæstarétti vegna nágrannaerja. Lögmaður hjá Húseigendafélaginu segir dóminn fordæmisgefandi og á von á að fjölmargir hafi samband vegna samskonar mála. Innlent 1. júlí 2021 20:01
KR gert að greiða Kristófer tæpar 4 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag körfuknattleiksdeild KR til að greiða Kristófer Acox, landsliðsmanni og fyrrum leikmanni KR, tæpar 3,8 milljónir króna í vangoldin laun. Auk þess var KR gert að greiða málskostnað Kristófers. Körfubolti 1. júlí 2021 17:00
Íbúð dæmd gölluð vegna erfiðs nágranna Ung kona þarf ekki að greiða lokagreiðslu af íbúð sem hún keypti þar sem íbúðin var metin gölluð í Hæstarétti vegna nágrannaerja. Hæstiréttur hefur aldrei áður dæmt fasteign gallaða vegna nágranna. Innlent 1. júlí 2021 13:28
Þriggja ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barni vinahjóna Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur vina sinna. Innlent 30. júní 2021 16:16
Háseti rekinn fyrir Instagram-færslu og fær ekki bætur Háseti sem sagt var upp störfum hjá Landhelgisgæslunni fór fram á rúmlega sex milljónir króna í bætur vegna uppsagnar sem hann taldi ólögmæta. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af öllum kröfum mannsins í gær. Innlent 30. júní 2021 14:16
Nóg hafi verið að þiggja afmælisboð Björgólfs til að komast á svartan lista Halldór Kristmannsson segir að Róbert Wessman hafi beitt undirmenn sína þrýstingi árum saman til að koma höggi á hóp athafnamanna í íslensku viðskiptalífi. Halldór telur upp fjölda fólks sem hann segir Róbert hafa horn í síðu. Meðal annars Björgólfsfeðga, Birgi Bieltvedt og Heiðar Guðjónsson. Þá hafi Róbert haft frumkvæði að málsókn á hendur Björgólfi yngri í nafni hluthafa bankans. Viðskipti innlent 30. júní 2021 13:13
SAF vara eindregið við óhóflegri og einhliða gjaldtöku landeigenda Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem varað er eindregið við gjaldtöku af hálfu landeigenda auk þess sem vafi leiki á um lögmæti þess. Innlent 30. júní 2021 11:11
Landeigendur vilja fá 20 þúsund krónur fyrir hverja lendingu Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Norðurflugs segir komna glýju í augu landeigenda og lögbann á þyrlur fyrirtækisins sé spennandi lögfræðilegt álitaefni. Ferðaþjónustan er harðorð vegna áformanna. Innlent 30. júní 2021 10:16