Innlent

Svandís með dóma á bakinu fyrir ólögmæta stjórnsýslu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra í umræðum á Alþingi.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra í umræðum á Alþingi. Vísir/Vilhelm

Efasemdir hafa vaknað um lögmæti ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar. Þannig hefur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur efast um réttmæti hennar og sagt að hún standist mögulega ekki kröfur um meðalhófsreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur lýst samskonar efasemdum.

Fari svo að ákvörðun Svandísar verði borin undir dómstóla og þar hnekkt yrði það ekki í fyrsta sinn á hennar ráðherraferli sem slíkt gerðist. Árið 2011 fékk Svandís á sig hæstaréttardóm fyrir að hafa sem umhverfisráðherra árið 2010, í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, neitað að staðfesta þann hluta aðalskipulags Flóahrepps sem laut að Urriðafossvirkjun. Svandís byggði ákvörðun sína á því að greiðsla Landsvirkjunar á viðbótarkostnaði sveitarfélagsins við gerð aðalskipulags vegna virkjunarinnar hefði verið andstæð skipulagslögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að synjun ráðherra ætti sér ekki lagastoð. Ekkert í lögunum bannaði slíka greiðsluþátttöku og féllst dómurinn heldur ekki á þau málsrök ráðherra að slíkt ógnaði réttaröryggi í meðferð skipulagsmála. Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu og dæmdi íslenska ríkið til að greiða allan málskostnað.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um dóminn árið 2011:

Óhefðbundin viðhorf forystumanna Vinstri grænna gagnvart lögum þegar kemur að umhverfismálum sáust árið 2008 þegar þeir sóttu að Þórunni Sveinbjarnardóttur, þáverandi umhverfisráðherra Samfylkingarinnar í ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Forystumenn VG vildu að Þórunn ógilti umhverfismat vegna álvers í Helguvík og að nýtt mat færi fram þar sem álver og tengdar virkjanir yrðu metnar saman.

Þótt Þórunn lýsti sig andsnúna álverinu og efnislega sammála þessum sjónarmiðum taldi hún sér ekki fært að verða við þessari kröfu þar sem hún stæðist ekki lög. Þegar þáverandi formaður VG, Steingrímur J. Sigfússon, var spurður hvort hann sem umhverfisráðherra myndi ekki hika við að ganga gegn lögum svaraði hann að ráðherra gæti ekki hunsað lög en ef óvissa væri uppi yrði ráðherra að velja hvort hann myndi vilja láta fyrirtæki njóta vafans eða náttúruna og að í þessu tilviki hefði hann hiklaust látið náttúruna njóta vafans.

Sem ráðherra heilbrigðismála í fyrstu ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fékk Svandís Svavarsdóttur einnig á sig dóm árið 2021 í máli sem laut að frelsisskerðingu fólks þegar covid-heimsfaraldurinn gekk yfir. Reglugerð hennar, um skylduvistun á sóttkvíarhóteli, var þá úrskurðuð ólögmæt. Ekki aðeins var niðurstaðan sú að reglugerðina skorti lagastoð heldur þótti frelsisskerðingin ganga gegn meðalhófi og gegn mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu.


Tengdar fréttir

Engar hvalveiðar í sumar

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að stöðva veiðar á langreyðum í sumar. Til stóð að hefja hvalveiðar á morgun en nú er ljóst að það verður ekki gert fyrr en 1. september, í fyrsta lagi. „Nú er spurningin sú hvort þessi atvinnugrein eigi sér yfir höfuð framtíð,“ segir hún.

Fagra Ísland niður í svelginn

Fagra Ísland er að fara niður í svelginn og Samfylkingin svíkur kosningaloforð með því að láta stóriðjustefnuna ryðjast áfram óhefta, segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×