Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var í gær sakfelldur fyrir skjalafals til að hylma yfir greiðslur til klámstjörnu fyrir forsetakosningarnar 2016, með því markmiði að afvegaleiða kjósendur. Ólíklegt þykir að Trump verði dæmdur í fangelsi, þó það sé möguleiki, en lögmaður hans segir að forsetinn fyrrverandi ætli að áfrýja sakfellingunni. Erlent 31. maí 2024 09:58
Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Kviðdómur í New York sakfelldi Donald Trump fyrir að falsa skjöl til þess að hylma yfir greiðslur til klámstjörnu fyrir forsetakosningarnar árið 2016. Trump, sem var fundinn sekur í öllum ákæruliðum, segir niðurstöðuna „skammarlega“. Erlent 30. maí 2024 21:09
Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Samuel A. Alito, dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, ætlar ekki að segja sig frá tveimur málum sem dómstóllinn er með til skoðunar og snúa að árásinni á þinghúsi Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021. Hann hefur verið krafinn um það eftir að fregnir bárust af því að eftir árásina var tveimur fánum sem stuðningsmenn Donalds Trump hafa tekið að sér, hafa verið flaggað við hús í hans eigu. Erlent 30. maí 2024 15:25
Leyniskyttur gættu Trump og Rooney: „Hvað er eiginlega í gangi hér?“ Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er frægasti einstaklingurinn sem enska knattspyrnugoðsögnin Wayne Rooney hefur spilað golf með og sagði Englendingurinn kostulega sögu af þeim golfhring í þættinum The Overlap á Sky Sports sem fyrrverandi liðsfélagi hans hjá Manchester United sem og enska landsliðinu, Gary Neville stýrir. Fótbolti 29. maí 2024 13:00
Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Kviðdómendur í þagnargreiðslumál Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í New York munu leggjast undir feld í dag. Í kjölfarið munu þeir komast að niðurstöðu í fyrsta sakamáli Bandaríkjanna gegn fyrrverandi forseta. Erlent 29. maí 2024 11:26
De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið Stórleikarinn Robert De Niro mætti ásamt hópi stuðningsmanna Joe Biden fyrir utan dómsal í New York í dag þar sem réttarhöld yfir Donald Trump fóru fram. Erlent 28. maí 2024 23:29
Trump lofar að útrýma mótmælum til stuðnings Palestínu Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sagðist myndu útrýma mótmælum til stuðnings Palestínumönnum á háskólalóðum landsins ef hann snýr aftur í Hvíta húsið. Erlent 28. maí 2024 06:41
Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir fullyrðingar Donalds Trump og bandamanna hans að alríkislögreglan FBI hafi fengið heimild til þess að skjóta hann þegar hún gerði húsleit hjá honum stórhættulegar. Fullyrðingarnar byggjast á stöðluðu orðalagi í tengslum við húsleitir. Erlent 23. maí 2024 23:45
Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Síðasta sumar blakti annar umdeildur fáni fyrir utan sumarbústað hæstaréttardómarans Samuel Alito í New Jersey Í Bandaríkjunum. Fáninn hefur á undanförnum árum verið bendlaður við hreyfingu íhaldssamra Bandaríkjamanna sem vilja að hin kristna trú hafi stærra hlutverk þegar kemur að stjórnun ríkisins og við stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta. Erlent 22. maí 2024 23:00
Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag vera opinn fyrir því að takmarka aðgengi Bandaríkjamanna að getnaðarvörnum og að framboð hans myndi brátt birta stefnuskjal um málefnið. Þetta sagði hann í sjónvarpsviðtali, skömmu áður en hann dróg í land og sagði að ummæli sín hefðu verið rangtúlkuð. Erlent 21. maí 2024 23:53
Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Verjendur Donalds Trump luku við að kalla til vitni í þagnargreiðslumálinu í New York í dag. Trump bar ekki vitni í málinu þrátt fyrir að hann hefði fullyrt að hann ætlaði sér „algerlega“ að gera það áður en réttarhöldin hófust. Erlent 21. maí 2024 15:04
Samið um kappræður í júní og september Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafa samþykkt að mætast í tveimur kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Erlent 16. maí 2024 07:09
Biden skorar á Trump Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur skorað á mótherja sinn í tilvonandi forsetakosningum, hann Donald Trump, að mæta honum í kappræðum. Erlent 15. maí 2024 15:20
Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Fyrrverandi hægrihandarmaður Donalds Trump sagði fyrrverandi forsetinn hefði verið virkur þátttakandi í að greiða konum til að þegja um meinta kynlífsfundi þegar hann bar vitni fyrir dómi í gær. Hann sagðist jafnframt hafa logið og ógnað fólki fyrir hönd Trump. Erlent 14. maí 2024 09:09
Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Stormy Daniels lauk vitnisburði sínum í réttarhöldunum gegn Donald Trump í New York í gær. Vera hennar í dómsal og vitnisburður felur í sér áhættu fyrir bæði saksóknara og Trump sjálfan. Lögmenn Trumps reyndu aftur í gær að fá málið fellt niður vegna vitnisburðar hennar. Erlent 10. maí 2024 13:00
Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Málaferlum í skjalamálinu svokallaða hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Dómarinn í málinu, Aileen M. Cannon, ákvað upprunalega að réttarhöldin ættu að hefjast í maí en nú segir hún það ekki í boði, því hún þurfi að taka svo magar ákvarðanir sem varða flókna anga þessa máls og framkvæmd réttarhaldanna. Erlent 8. maí 2024 14:14
Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Þegar Stormy Daniels, fyrrverandi klámleikkona, bar vitni í einu málanna gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í gær kvartaði dómarinn yfir því að Trump blótaði í dómsal og virtist reyna að ógna Daniels. Í dómsal lýsti Daniels meintum kynlífsathöfnum þeirra ítarlega. Of ítarlega á köflum, að mati dómarans. Erlent 8. maí 2024 10:43
Stormy Daniels í dómsal með Trump Stormy Daniels, fyrrverandi klámmyndaleikkona, mun bera vitni í réttarhöldunum gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í New York í dag. Búist er við því að hún muni segja kviðdómendum frá því þegar Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Trumps, greiddi henni 130 þúsund dali í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 7. maí 2024 14:16
Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Bandarísku lögregluna grunar að sá sem sendi falska tilkynningu um morð á heimili vitnis í sakamáli á hendur Donald Trump hafi með henni reynt að siga vopnuðum sérsveitarmönnum á vitnið. Tilkynningin barst daginn sem vitnið kom fyrir dóm í New York. Erlent 7. maí 2024 12:06
Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið sektaður enn einu sinni fyrir að brjóta gegn þagnarskyldu sem hann hefur verið beittu vegna réttarhalda yfir honum í New York. Juan M. Merchan, dómarinn í málinu, hótaði enn einu sinni að fangelsa Trump ef hann léti ekki af ummælum sínum. Erlent 6. maí 2024 15:02
Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Donald Trump, forsetaefni Repúblikanaflokksins, sakaði Joe Biden Bandaríkjaforseta um að stýra „Gestapo-ríkisstjórn“ á lokuðum fundi með bakhjörlum sínum. Hann beindi einnig spjótum sínum að saksóknurum sem sækja sakamál gegn honum. Erlent 6. maí 2024 09:07
Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kristi Noem, ríkisstjóri Suður-Dakóta í Bandaríkjunum, sem hefur verið nefnd sem mögulegt varaforsetaefni Donalds Trump á ekki sjö dagana sæla. Hún liggur undir þverpólitísku ámæli fyrir að hafa drepið hundinn sinn og þarf nú að draga til baka frásögn um að hún hafi fundað með Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. Erlent 3. maí 2024 23:54
Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Saksóknarar í New York spiluðu í gær upptöku af Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmanni Donalds Trump, fyrrverandi forseta, þar sem Cohen sagði Trump frá ætlunum sínum varðandi það að greiða peninga til að koma í veg fyrir að fyrrverandi Playboy-fyrirsæta segði frá meintu framhjáhaldi Trumps með henni. Cohen tók samtalið upp á laun. Erlent 3. maí 2024 12:48
Trump sektaður um meira en milljón króna Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið sektaður um níu þúsund dali fyrir að brjóta gegn þagnarskyldu sem dómarinn hafði beitt hann. Dómarinn varaði Trump við því að héldi hann áfram að brjóta gegn þagnarskyldunni gæti hann endað í fangaklefa. Erlent 30. apríl 2024 16:04
Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómarar Hæstaréttar Bandaríkjanna þykja líklegir til að hafna kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um algera friðhelgi frá lögsókn vegna atvika sem áttu sér stað þegar hann sat í embætti forseta. Líklegt þykir þó að meirihluti dómaranna muni úrskurða á veg sem Trump muni hagnast á. Erlent 25. apríl 2024 22:30
Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun David Pecker, fyrrverandi útgáfustjóri National Enquirer, bar vitni fyrir dómstól í New York í gær, þar sem hann greindi frá því að hafa lagt á ráðin um að svæfa óþægilegar fréttir fyrir Donald Trump í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016. Erlent 24. apríl 2024 07:28
Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Saksóknari í New York fullyrti að Donald Trump hefði lagt á ráðin um glæpsamlega tilrauna til þess að spilla forsetakosningunum árið 2016 með ólöglegri greiðslu til klámstjörnu þegar málflutningur á sakamáli á hendur fyrrverandi forsetanum hófst í dag. Erlent 22. apríl 2024 15:27
Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Maður sem kveikti í sjálfum sér fyrir utan dómshús í New York-borg í gær er látinn. Í réttarsal dómshússins hefur verið réttað yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, síðustu daga. Erlent 20. apríl 2024 08:12
Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Lögreglan í New York telur ekki að karlmaður á fertugsaldri sem kveikti í sjálfum sér fyrir utan dómshús þar sem réttað er yfir Donald Trump hafi ætlað sér að skaða Trump eða aðra. Maðurinn er sagður í lífshættu á sjúkrahúsi. Erlent 20. apríl 2024 00:00
Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Karlmaður kveikti í sjálfum sér í garði gegnt dómshúsinu þar sem réttarhöld yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fara fram á Manhattan í New York. Vegfarendur slökktu í manninum sem var fluttur burt á sjúkrabörum. Erlent 19. apríl 2024 19:00